Beint í efni

Hlutverk og starfsemi menningar- og safnanefndar

Málsnúmer 1408354

Ferill máls

Menningar- og safnanefnd Garðabæjar

01

1. fundur

Fyrir fundinum lá samantekt bæjarritara, dags. 24.06.2014, um nokkur atriði er varða starfshætti nefnda í Garðabæ. $line$Farið var yfir hlutverk og starfsemi menningar- og safnanefndar en nefndin starfar í umboði bæjarstjórnar að eflingu lista- og menningarlífs í Garðabæ. Hulda Hauksdóttir, upplýsinga- og menningarfulltrúi sýndi glærukynningu af helstu verkefnum undanfarinna ára. $line$$line$Nefndarmenn fengu afhentan til upplýsingar bæklinginn Stefna í menningarmálum í Garðabæ sem gefinn var út af bænum árið 2005 en stefna Garðabæjar í menningarmálum var samþykkt í bæjarstjórn 6. október 2005. $line$ $line$Fundatilhögun menningar- og safnanefndar var rædd og fundarkerfi nefndarmanna kynnt. Áætlað er að nefndin fundi að jafnaði um sex sinnum á ári. Stefnt er að morgunfundum og að næsti fundur nefndarinnar verði fimmtudaginn 25. september 2014 kl. 08:00.