Verkefni næstu ára
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
1. fundur
Samantekt upplýsinga- og menningarfulltrúa og formanns, dags. 15.08.2014, með nokkrum hugmyndum að verkefnum nefndarinnar á næstu árum var lögð fram. Grunnur samantektarinnar er starf nefndarinnar á liðnum árum. Skjalið er hugsað sem vinnuskjal sem verður uppfært nánar jafnóðum í samstarfi við nefndarmenn. $line$$line$Fram komu ýmsar hugmyndir varðandi lista- og menningarverkefni næstu fjögurra ára í bænum. Í tengslum við fyrirhugaða stefnumótun nefndarinnar þar um í haust var samþykkt að nefndin og upplýsinga- og menningarfulltrúi fari að vinna að undirbúningi opins fundar/málþings um menningarmál í Garðabæ þar sem öllu áhugafólki um menningarmál í bænum, þ.m.t. forsvarsmönnum félagasamtaka í bænum, verði boðið að koma hugmyndum sínum og ábendingum á framfæri með það að markmiði að auka enn og bæta menningarlíf bæjarins á komandi misserum og árum.$line$