Minnisblað um Latabæjarheimsókn
Málsnúmer 1407216
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
1. fundur
Lagt var fram til upplýsingar minnisblað forstöðumanns Hönnunarsafns Íslands, dags. 29.06.2014, um heimsókn forstöðumannsins, formanns menningar- og safnanefndar og fulltrúa frá fræðslu- og menningarsviði Garðabæjar í Latabæjarstúdíóið í Garðabæ þann 25. júní sl. Minnisblaðið var tekið fyrir í bæjarráði Garðabæjar 1. júlí 2014 og vísað til bæjarstjóra. $line$Formaður greindi frá heimsókninni og umræður voru um málið.$line$
Bæjarráð Garðabæjar
02
26. fundur
Bæjarráð telur málið áhugavert og vísar því til nánari skoðunar bæjarstjóra.