26. fundur
26. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
08.07.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Guðrún Arna Kristjánsdóttir - varamaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
Ritari
- Guðjón E. Friðriksson
Dagskrá
01
Ályktanir frá 15. þingi Landssambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna.
Bæjarráð telur ástæðu til að taka undir ályktun um sérstöðu starfa slökkviliðs- og sjúkraflutningsmanna. Nýlegur stórbruni í Reykjavík sýnir bersýnilega þær lífshættulegu aðstæður sem starfsmenn þurfa að vera búnir undir að mæta bæði líkamlega og andlega. Í þessu sambandi áréttar bæjarráð mikilvægi þess að hér starfi samhæft starfslið slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna undir merkjum Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.$line$$line$Ályktanir frá þingi Landsambands slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna eru lagðar fram.
02
Bréf Skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins varðandi ársreikning og rekstraryfirlit fyrir janúar - apríl 2014, dags. 26.06.14.
Rekstraryfirlit fyrir janúar - apríl 2014 lagt fram.
03
Drög að leigusamningi um húsnæði og aðstöðu á Vífilsstöðum fyrir leikskóla.
Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti.$line$$line$Áslaug Hulda Jónsdóttir, vék sæti við meðferð og afgreiðslu málsins.
04
Bréf umhverfisstjóra varðandi sumarstörf í ágúst 2014, dags. 02.07.14.
Bæjarráð tekur jákvætt í tillögur umhverfisstjóra varðandi sumarstörf í ágúst og vísar þeim til afgreiðslu bæjarstjóra.
05
Umsókn um byggingarleyfi - Breiðabólsstaðir.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á reyndarteikningum fyrir íbúðarhúsið að Breiðabólsstöðum.
06
Umsókn um byggingarleyfi - Haukanes 22.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi fyrir nýbyggingu að Haukanesi 22.
07
Minnisblað forstöðumanns Hönnunarsafns Íslands varðandi Latabæjargarð í Garðabæ, dags. 25.06.14.
Bæjarráð telur málið áhugavert og vísar því til nánari skoðunar bæjarstjóra.
08
Bréf innanríkisráðuneytisins varðandi staðfestingu á samkomulagi um breytingu á staðarmörkum Hafnarfjarðar og Garðabæjar, dags. 02.07.14.
Lagt fram.
09
Minnisblað bæjarritara um skipulag og fyrirkomulag á félagslegri heimaþjónustu, dags. 04.07.14.
Bæjarráð samþykkir að framlengja samning við Sinnum ehf. um framkvæmd félagslegrar heimaþjónustu í Garðabæ til eins árs.$line$$line$Bæjarráð vísar til fjölskylduráðs að láta framkvæma úttekt á skipulagi og fyrirkomulagi félagslegra heimaþjónustu og marka stefnu til framtíðar með það að markmiði að auka gæði, val og fjölbreytni þjónustunnar fyrir notendur.
10
Bréf velferðarráðuneytisins varðandi umsókn um fjölgun rýma í dagdvöl hjá Ísafold, 30.06.14.
Bæjarráð lýsir sérstakri ánægju með ákvörðun ráðuneytisins um að heimila fjölgun á dvalarrýmum á Ísafold úr 10 í 16 frá og með 1. júlí 2014.