Styrkir til menningarmála 2015, auglýsing að vori
Ferill máls
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
01
5. fundur
Menningar- og safnanefnd samþykkir að fela upplýsinga-og menningarfulltrúa að auglýsa eftir umsóknum um styrki til verkefna og viðburða á sviði lista og menningarmála í Garðabæ og hvetja íbúa til að koma hugmyndum sínum á framfæri við menningar- og safnanefnd. $line$Listamenn eða menningarviðburðir skulu tengjast Garðabæ. Í umsókn skal skilgreina verkefni og kostnaðaráætlun skal fylgja með. Tilgreina þarf ósk um styrkupphæð. Mælst er til að umsækjendur kynni afraksturinn fyrir menningar- og safnanefnd og/eða bæjarbúum.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
02
4. fundur
Starfsáætlun menningar- og safnanefndar fyrir árið 2015 var lögð fram og rædd. Tilgangur með framlagningu starfsáætlunar nefndarinnar er að tryggja utanumhald helstu verkefna á starfsárinu, skipuleggja mætingu utanaðkomandi aðila á fundi og stuðla að markvissum undirbúningi funda menningar- og safnanefndar.
Menningar- og safnanefnd Garðabæjar
03
3. fundur
Farið var yfir helstu verkefni sem hafa verið á vorönn síðustu ára og þau sem framundan eru á vorönn 2015. $line$Safnanótt verður haldin föstudaginn 6. febrúar 2015 og flest söfn á höfuðborgarsvæðinu taka þátt í verkefninu. Safnanótt er hluti af Vetrarhátíð í Reykjavík. Fyrirhugað er að Bókasafn Garðabæjar og Hönnunarsafn Íslands taki þátt eins og undanfarin ár, auk þess sem opið hús hefur verið í Króki á Garðaholti í tengslum við Safnanótt.$line$Sundlauganótt verður haldin á laugardegi viku síðar og áhugi er fyrir því að vera með á ný. $line$Rætt var um Þriðjudagsklassík og hugsanlegt áframhald á því verkefni. Einnig var rætt um Jazzhátíð Garðabæjar á vorönn 2015. $line$Formaður og upplýsinga- og menningarfulltrúi munu hitta forsvarsmenn þessara verkefna að máli og taka saman upplýsingar um áframhald verkefnanna sem síðan verður farið yfir á næsta fundi menningar- og safnanefndar.$line$