Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag norðurhluta 2, Urriðaholti, dags. 15.01.15.

Málsnúmer 1406288

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

3 (1671). fundur

Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillagan verði send til meðferðar skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

1. fundur

Lögð fram tillaga að lokinni auglýsingu sem stóð frá 3.desember 2014 til 14.janúar 2015. Engar athugasemdir bárust. Í samræmi við 3.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 skal skipulagsstjóri senda deiliskipiulagið til Skipulasstofnunar til athugunar. Geri Skipulagsstofnun engar athugasemdir skal birta auglýsingu um gildistöku deiliskipulagsbreytingarinnar.

Bæjarráð Garðabæjar

03

43. fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

17. fundur

Egill Guðmundsson arkitekt kynnti tillögu að deiliskipulagi 2.áfanga Norðurhluta Urriðaholts að lokinni forkynningu sem stóð frá 6.-29.október. Kynningarfundur var haldinn í Flataskóla þann 14.október. Tillagan gerir ráð fyrir 179-198 íbúðareiningum í blandaðri byggð. Þar af verða um 139-158 íbúðir í fjölbýli, 24 í raðhúsum, 12 í parhúsum og 4 í einbýlishúsum. Leitast er við að skapa fjölbreytni í húsagerðum og lifandi tengsl bygginga og göturýma.$line$Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

15. fundur

Lögð fram tilllaga að deiliskipulagi 2.áfanga Norðurhluta Urriðaholts. Tillagan gerir ráð fyrir 161-181 íbúðareiningum í blandaðri byggð. Þar af verða um 121-141 íbúð í fjölbýli, 24 í raðhúsum, 12 í parhúsum og 4 í einbýlishúsum. Leitast er við að skapa fjölbreytni í húsgerðum og lifandi tengsl bygginga og göturýma. Hæð og fyrirkomulag húsa leitast við að taka mið af skjólmyndum eftir því sem hægt er og að solar og útsýnis njóti sem víðast. Deiliskipulagshöfundar eru Arkís og Alta.$line$Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr. 40.gr. Skipuaglslaga. Halda skal kynningarfund á meðan forkynning stendur yfir.$line$Skipulagsstjóri gerði einnig grein fyrir tillögum að breytingum á deiliskipulagi Vesturhluta Urriðaholts sem nær til Mosagötu. Skipulagsstjóri hefur lagt til að sú breyting verði kynnt á íbúafundi í tengslum við forkynningu 2.áfanga Norðurhluta Urriðaholts. Skipulagsnefnd er sammála því að sú tillaga verði einnig kynnt þar sem að aðkoma að Mosagötu verður í gegnum Norðurhluta Urriðaholts.

Bæjarráð Garðabæjar

06

25. fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um gerð lýsingar samkvæmt 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga vegna tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

10. fundur

Lögð fram lýsing gerðar á nýju deiliskipulag í Urriðaholti, Norðurhluta tvo sem nær til 5 ha svæðis þar sem gert verður ráð fyrir um 200 íbúðareiningum í fjölbýli, rað og parhúsum auk nokkurra einbýlishúsa.$line$Skipulagsnefnd samþykkir lýsinguna í samræmi við 1.mgr. 40.greinar Skipulagslaga.