Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi Mosagötu, deiliskipulagsbreyting á vesturhluta Urriðaholts, dags. 15.01.15.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
3 (1671). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillagan verði send til meðferðar skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
1. fundur
Lögð fram tillaga að lokinni auglýsingu sem stóð frá 3.desember 2014 til 14.janúar 2015. Engar athugasemdir bárust. Í samræmi við 3.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 skal skipulagsstjóri senda breytinguna til Skipulasstofnunar til athugunar. Geri Skipulagsstofnun engar athugasemdir skal birta auglýsingu um gildistöku deiliskipulagsbreytingarinnar.
Bæjarráð Garðabæjar
03
43. fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts þar sem gert er ráð fyrir að íbúðum við Mosagötu fjölgi um 22 eða úr 79 í 101. Þar af fjölgar íbúðum í fjölbýli úr 72 í 89 en íbúðum í sérbýli fjölgar úr 7 í 12. Íbúðir í sérbýli voru raðhús en verða parhús, þar af verða 8 neðan götu en 4 ofan götu. Bílastæðum fjölgar úr 170 í 233. Lóðamörk ofan fjölbýlishúsa breytast lítillega og svæðið sem skipulagið nær til stækkar lítillega til norðurs og austurs. Um málsmeðferð fer samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 43. gr. sömu laga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
17. fundur
Egill Guðmundsson arkitekt kynnti tillögu að breytingu deiliskipulags Vesturhluta Urriðaholts sem nær til götunnar Mosagötu. Svæðið sem breytingin nær til er 1426 m2. Við breytinguna fjölgar íbúðum um 22 úr 79 í 101. Þar af fjölgar fjölbýlisíbúðum úr 72 í 89 en sérbýlisíbúðum fjölgar úr 7 í 12. Sérbýlisíbúðir voru raðhús en verða parhús, þar af verða 8 neðan götu en 4 ofan götu. Bílastæðum fjölgar úr 170 í 233. Lóðamörk ofan fjölbýlishúsa breytast lítillega og svæðið sem skipulagið nær til stækkar lítillega til norðurs og austurs.$line$Tillagan var kynnt á íbúafundi 14.október síðastliðinn.$line$Skipulagsnefnd heimilar kynningu tillögunnar í samræmi við 1.mgr. 43.gr. Skipulagslaga.