Afgreiðsla skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Holtsveg 41 - 43, dags. 13.08.15.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
31. (1699). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna Holtsvegar 41 - 43 sem gerir ráð fyrir fjölgun íbúða úr 9 í 10, á hvorri lóð, verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Lóðarhafa skal bent á að við fjölgun íbúða kemur til greiðslu gjalds til uppbyggingar skóla- og íþróttamála samkvæmt samningi um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti og nemur gjaldið kr. 701.249 á íbúð m.v. BVT 605,7 stig í janúar 2015 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
10. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts sem nær til lóðanna Holtsvegur 41 og 43 að lokinni kynningu sem stóð frá 15.maí til 26.júní. Tillagan gerir ráð fyrir því að hámarksfjöldi íbúða hækki úr 9 í 10 á hvorri lóð. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sbr. 3.mgr.41.gr. Skipulagslaga.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
6. fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Holtsveg 41 -43 vegna fjölgunar á íbúðum úr 9 í 10 á hvorri lóð.
Bæjarráð Garðabæjar
04
12. (1680). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóðanna við Holtsveg 41 -43 vegna fjölgunar á íbúðum úr 9 í 10 á hvorri lóð.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
3. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vesturhluta Urriaðholts sem nær til lóðanna Holtsvegur 41 og 43. Tillagan gerir ráð fyrir því að hámrksfjöldi íbúða á hvorri lóð hækki úr 9 í 10. Umsögn deiliskipulagshöfundar liggur fyrir.$line$Skipulagsnefnd vísar tillögunni til kynningar í samræmi við 1.mgr. 43.gr. Skipulagslaga. Þar sem að tillagan er í samræmi við meginforsendur aðalskipulags er fallið frá forkynningu.$line$Samkvæmt 13. gr. samnings Garðabæjar og Urriðaholts ehf. um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti, dags. 20. apríl 2007 skal reikna sérstakt gjald á hverja íbúð sem framlag til uppbyggingar skóla- og íþróttamála. $line$Urriðaholt ehf. greiðir umrætt gjald af íbúðum sem byggðar eru samkvæmt gildandi deiliskipulagi en lóðarhafar greiða gjald vegna fjölgunar íbúða umfram það. Gjaldið nemur kr. 701.249 á íbúð miðað við BVT 605,7 stig í janúar 2015 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.$line$$line$Guðrún Dóra vék af fundi undir þessum lið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
1. fundur
Lögð fram tillaga að um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir því að ákvæði um fjölda íbúða verði 10 í stað 9. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfundar og Urriðaholts ehf sem tekur jákvætt í tillöguna.$line$Skipulagsnefnd tekur undir framlagða umsögn og beinir því til umsækjanda að leggja fram tillögu að breytingu deiliskipulags.Samkvæmt 13. gr. samnings Garðabæjar og Urriðaholts ehf. um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti, dags. 20. apríl 2007 skal reikna sérstakt gjald á hverja íbúð sem framlag til uppbyggingar skóla- og íþróttamála. $line$Urriðaholt ehf. greiðir umrætt gjald af íbúðum sem byggðar eru samkvæmt gildandi deiliskipulagi en lóðarhafar greiða gjald vegna fjölgunar íbúða umfram það. Gjaldið nemur kr. 701.249 á íbúð miðað við BVT 605,7 stig í janúar 2015 og gjaldfellur við útgáfu á byggingarleyfi.$line$Guðrún Dóra vék af fundi undir þessum lið.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
18. fundur
Lögð fram tillag að breyting deiliskipulags sem gerir ráð fyrir því að heildarfjöldi íbúða verði 10 í stað 9 þar sem að hönnun hússins hefur leitt í ljós að aðstæður eru með þeim hætti á lóðinni að með viðbótaríbúð fáist betri heildarlausn.$line$Tillögu um fjölgun íbúða og útfærslu tillögunnar er vísað til umsagnar deiliskipulagshöfundar.$line$Guðrún Dóra vék af fundi undir þessum lið.