Kauptún 1, skilti Hyundai
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
13. (835). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna uppsetningu á skilti á lóðinni að Kauptúni 1, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan skal grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga.
Bæjarráð Garðabæjar
02
34. (1849). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Kauptúns vegna uppsetningu á skilti við lóðinni að Kauptúni 1, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan skal grenndarkynnt samkvæmt 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga, sbr. 2. mgr. 43. gr. sömu laga.
Fylgiskjöl
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
11. fundur
Lagt fram erindi Hyundai þar sem óskað er eftir leyfi til þess að reisa þrjú skilti á lóðinni Kauptún 1. Lagðar fram reglur um merkingar í Kauptúni sem samþykktar hafa verið af rekstrarfélagi Kauptúns. Einnig lögð fram umsögn rekstarfélagsins um umsókn Hyundai.
Skipulagsnefnd tekur undir þau atriði sem koma fram í umsögninni:
Skilti merkt 1 kallar á deiliskipulagsbreytingu en sé í samræmi við reglur rekstsrarfélagsins.
Skilti merkt 3 sé í samræmi við reglur rekstrarfélagsins (L2-skilti)og kalli ekki á deiliskipulagsbreytingu.
Skilti merkt 2 sé ekki í samræmi við reglur rekstrarfélagsins (K-merkingar) vegna legu sinnar nærri lóðarmörkum. Ef það verður fært innar á lóð verði það í samræmi við reglur og kalli ekki á deiliskipulagsbreytingu.
Skipulagsnefnd metur staðsetningu á skilti merkt 1 sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Kauptúns og vísar tillögunni til grenndarkynningar. Grenndarkynning nái til allra lóðarhafa og rekstraraðila í Kauptúni. Ef áritað samþykki allra þeirra sem grenndarkynning nær til liggur fyrir er skipulagstjóra heimilt að stytta tíma grenndarkynningar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
10. fundur
Lögð fram fyrirspurn BL ehf um skilti innan lóðar að Kauptúní 1. Fyrirspurn vísað til umsagnar rekstrarfélagsins.