Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 18/9 ´18.

Málsnúmer 1809020F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

12. (834). fundur

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 2. tl. fjárhagsáætlun 2019 (2019-2022) forsendur og vinnuferla og lagði fram eftirfarandi bókun.

„Garðabæjarlistinn hafnar alfarið þeim vinnubrögðum meirihlutans sem viðhöfð eru við vinnu á forsendum fyrir fjárhagsáætlunar og þeim rökum um að lýðræðislegum vinnubrögðum sé fullnægt með fyrrgreindu ferli og ítrekar ósk minnihlutans um aðkomu allra bæjarfulltrúa að þeirri vinnu þ.e. að allir fulltrúar bæjarstjórnar sameinist um þær forsendur sem lagðar eru fram við gerð fjárhagsáætlunar hverju sinni.“

Almar Guðmundsson, ræddi 2. tl., fjárhagsáætlun 2019 (2019-2022) forsendur og vinnuferla og framlagða bókun.

Sara Dögg Svanhildardóttir ræddi að nýju 2. tl., fjárhagsáætlun 2019 (2019-2022) forsendur og vinnuferla og framlagða bókun.

Gunnar Einarsson, ræddi 2. tl., fjárhagsáætlun 2019 (2019-2022) forsendur og vinnuferla og framlagða bókun.

Ingvar Arnarson, ræddi 8. tl., bréf Tækniskólans um lóð fyrir nýbyggingu er hýsi starfsemi skólans.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., fjárhagsáætlun 2019 (2019-2022) forsendur og vinnuferla og framlagða bókun.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi að nýju 2. tl., fjárhagsáætlun 2019 (2019-2022) forsendur og vinnuferla og framlagða bókun.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 2. tl., fjárhagsáætlun 2019 (2019-2022) forsendur og vinnuferla og framlagða bókun.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., persónuvernd ? innleiðingu á nýrri löggjöf.

Gunnar Einarsson, ræddi að nýju 2. tl., fjárhagsáætlun 2019 (2019-2022) forsendur og vinnuferla og framlagða bókun. Þá ræddi bæjarstjóri 8. tl., bréf Tækniskólans um lóð fyrir nýbyggingu er hýsi starfsemi skólans og sagði frá viðræðum við forsvarsmenn skólans.

Sigurður Guðmundsson, ræddi að nýju 2. tl., fjárhagsáætlun 2019 (2019-2022) forsendur og vinnuferla og framlagða bókun.

Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., persónuvernd ? innleiðingu á nýrri löggjöf og 4. tl., fjárhagsáætlun Garðabæjar 2018 ? viðauka 4-7 og óskaði eftir upplýsingum um viðauka 6.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 4. tl., fjárhagsáætlun 2018 viðauka 4-7 og svaraði fyrirspurn.

Afgreiðsla mála.
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 4-7 við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2018, samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.

Viðauki 4
Snjómokstur kr. 25.000.000
Strætó bs. - framlag kr. 27.000.000
Staðgreiðsla útsvars (hækkun) kr. -52.000.000

Viðauki 5
HM í knattspyrnu - útsending á Garðatorgi kr. 10.700.000
Staðgreiðsla útsvars (hækkun) kr. -10.700.000

Viðauki 6
Tómstundaheimili Urriðaholtsskóla kr. 5.000.000
Urriðaholtsskóli (lækkun) kr. -5.000.000

Viðauki 7
Framlag til Hrafnistu samkvæmt samningi kr. 25.500.000
Liðveisla fatlaðs fólks kr. 30.000.000
Lengd viðvera nemenda kr. 11.000.000
Húsaleigubætur kr. 6.500.000
Framlag Jöfnunarsjóðs (hækkun) kr. -12.000.000
Staðgreiðsla útsvars (hækkun) kr. -61.000.000


Fundargerðin sem er 14 tl. er samþykkt samhljóða.