Beint í efni

Akrabraut 1, breyting á deiliskipulagi Akra.

Málsnúmer 1603374

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

9. (811). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Akra samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna lóðarinnar við Akrabraut 1. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga og hefur verið komið á móts við athugasemdir við afgreiðslu tillögunnar. Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun.

Bæjarráð Garðabæjar

02

18. (1784). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Akra samkvæmt 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, vegna lóðarinnar við Akrabraut 1. Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga og hefur verið komið á móts við athugasemdir við afgreiðslu tillögunnar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

6. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Akra sem nær til verslunar-og þjónustulóðarinnar Akrarbraut 1 að lokinn grenndarkynningu.Tillagan geri ráð fyrir því að byggingarreitur stækki um 3 metra til suðurs en styttist um 14 metra úr vestri. Einnig er gert ráð fyrir skjólveggjum.
Lagt fram athugsemdabréf frá stjórn Húsfélagsins að Línakri 3.
Til að koma til móts við athugasemdir leggur skipulagsnefnd til að eftirfarandi ákvæðum verði bætt við deiliskipulag lóðarinnar:
Að skjólveggur á mörkum Línakurs 3 og Akrabrautar 1 verði 1,5 til 2,0 metrar að hæð.
Að skjólveggurinn verði klæddur tvöfaldi timburklæðningu á steyptum sökkli.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Akra í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

5. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Akra að lokinni kynningu. Athugasemdabréf hefur borist og það lagt fram. Vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

6. (808). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Akra í tilefni umsóknar eigenda lóðarinnar við Akrabraut 1 um breytingu á byggingarreit o.fl., sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal tillöguna íbúum og eigendum við Línakur 3, 4, 6, 8, og 10.

Bæjarráð Garðabæjar

06

10. (1776). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari grenndarkynning vegna óverulegrar breytingar á deiliskipulagi Akra í tilefni umsóknar eigenda lóðarinnar við Akrabraut 1 um breytingu á byggingarreit o.fl., sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og 2. mgr. 44. gr. sömu laga.
Grenndarkynna skal tillöguna íbúum og eigendum við Línakur 3, 4, 6, 8, og 10.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

3. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Akra sem nær til verslunarlóðarinnar Akrabraut 1. Tillagan gerir ráð fyrir því að byggingarreitur stækkar um 3 metra til suðurs en styttist til 14 metra úr vestri. Einnig gert ráð fyrir skjólveggjum austan við húsið sem verði allt að 2,2 m að hæð og skjólveggjum á lóðarmörkum að Línakri 3 1,8 m að hæð. Felld verður út bindandi byggingarlína vestast á byggingarreit. Að númer lóðarinnar verði 1 en ekki 5 eins og fram kemur á deiliskipulagsuppdrætti.
Skipulagsstjóri og bæjarverkfærðingur gera grein fyrir samráðsfundum sem haldnir hafa verið með íbúum sem bæjarstjóri tók m.a. þátt í.
Skipulagsnefnd leggur áherslu á að vandlega verði skoðað með hvaða hætti megi bæta umferðarflæði við hringtorg á Arnarnesvegi og tengingar við Akrahverfi með það að markmiði að bæta ástandið eins og kostur er.
Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Akrar og vísar tillögunni til grenndarkynningar í samræmi við 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum Línakurs 3, 4,6,8 og 10.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

9. fundur

Lögð fram fyrirspurn um breytingu deiliskipulags Akra sem nær til lóðarinnar við Akrabraut 1. Breytingin gerir ráð fyrir því að byggingareitur færist um 3,5 metra að Línakri og að kvöð verði sett sem banni umferð um syðri hluta lóðarinnar þar sem bygginging stendur.
Skipulagsnefnd leggur til að gert verði ráð fyrir göngutengingu frá bílastæðum að Línakri og að girðing og kvöð um gróður verði á vesturmörkum lóðar til að draga úr sjónrænum og truflandi áhrifum bílaumferðar á bílastæðinu.
Skipulagsnefnd leggur til að boðað verði til kynningar- og samráðsfundar með eigendum húsa við Línakur 2-12 og Línakur 3 um tillöguna.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

09

8. fundur

Lögð fram fyrirspurn um breytingu á deiliskipulagi sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits á verslunarlóðinn Akrarbraut 1 í átt að Ljósakri. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.

Bæjarráð Garðabæjar

10

12. (1729). fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til skipulagsnefndar.

Fylgiskjöl