Urriðaholtsstræti 14-20. Dsk br Urriðaholt Norðurhl 3.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
9. (811). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum, tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts þar sem farið er fram á fjölgun íbúða í fjölbýlishúsi á lóðinni við Urriðaholtsstræti 14-20. Guðrún Elín Herbertsdóttir, Halldór Jörgensson og Gísli Geir Jónsson sitja hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
02
18. (1784). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts þar sem farið er fram á fjölgun íbúða í fjölbýlishúsi á lóðinni við Urriðaholtsstræti 14-20.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
6. fundur
Lögð tillaga að deiliskipulagi sem gerir ráð fyrir því að íbúðum að Urriðaholtsstræti 14-16 fjölgi um 2 en á nr. 18-20 fjölgi þeim um tvær. Gert er ráð fyrir einu bílastæði fyrir íbúðir undir 90 fermetrum en tveimur fyrir stærri íbúðir. Tillagan gerir ráð fyrir því að bílastæðum fjölgi á lóð sem nemur fjölgun íbúða og að allar íbúðir eigi bílastæð á lóð og allar íbúðir stærri en 90 m2 bílastæði í bílageymslu að auki.
Umsögn deilskipulagshöfundar er jákvæð.
Meirihluti skipulagsnefndar hafnar tillögu um fjölgun íbúða þar sem að deiliskipulag Urriðaholts Norðurhluta 3 er nýsamþykkt og til þess vandað á allan hátt. Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir greiðir atkvæði á móti öðrum nefndarmönnum og telur að vísa ætti tillögunni til auglýsingar.