Beint í efni

Urriðaholtsstræti 36,38,40,42 - Dsk Breyting

Málsnúmer 1612052

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

9. (811). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með sjö atkvæðum tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts þar sem farið er fram á fjölgun íbúða í fjölbýlishúsi á lóðinni við Urriðaholtsstræti 36, 38, 40 og 42. Guðrún Elín Herbertsdóttir, Halldór Jörgensson og Gísli Geir Jónsson sitja hjá við afgreiðslu málsins.

Bæjarráð Garðabæjar

02

18. (1784). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að hafna umsókn um breytingu á deiliskipulagi 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts þar sem farið er fram á fjölgun íbúða í fjölbýlishúsi á lóðinni við Urriðaholtsstræti 36, 38, 40 og 42.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

6. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluti 3 sem gerir ráð fyrir því að í fjölbýlishúsnum fjölgi íbúðum um 9 alls án þess að breyta eða stækka byggingarreit. Á lóðunum nr 36 og 38 er fjölgað um 4 íbúðir (úr 20 í 24) og á nr. 40-42 yrði fjölgað um 5 íbúðir (19 í 24). Allar nýjar íbúðir yrðu minni en 90 m2. Við fjölgun íbúða er gert ráð fyrir því að bílastæðum í bílageymslu sé fjölgað um 8.
Lögð fram umsögn deiliskipulagsráðgjafa og er niðurstaða hennar neikvæð.
Með vísan í umsögn deiliskipulagsráðgjafa og afgreiðslu fundarliðar 11 hafnar skipulagsnefnd tillögunni.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

5. fundur

Frestað til næsta fundar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

1. fundur

Lögð fram tillaga að breytingum á nýsamþykktu deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 3.
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.