Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðanna við Suðurhraun 1 og 3.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
45 (1811). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðanna við Suðurhraun 1 og 3 verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
14. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Molduhrauns ásamt greinargerð lóðarhafa um bílastæðaþörf. Tillagan gerir ráð fyrir því að grunnflötur húss getur orðið allt að 60 % af stærð lóðar í stað 40 % og að nýtingarhlutfall geti orðið allt að 1 í stað 0,6. Ennfremur er gert ráð fyrir breytingu á grein 2.3. í skilmálum þannig að hægt sé að veita byggingarleyfi fyrir færri bílastæðum á lóð en skilmálar miða við ef sýnt sé fram á hvernig bregðast megi við ef aðstæður breytast sem kalla á fleiri stæði. (t.d. með bílastæðahúsi innan byggingarreits).
Tillagan var í auglýsingu frá 1.september til 16.otkóber. Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem deiliskipulagbreyting í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
03
26. (1792). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi Molduhrauns vegna lóðanna við Suðurhraun 1 - 3.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
8. fundur
.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Molduhrauns ásamt greinargerð lóðarhafa um bílastæðaþörf. Sigurður Einarsson arkitekt hjá Batteríinu gerði grein fyrir tillögunni og meðfylgjandi greinargerð.
Tillagan gerir ráð fyrir því að grunnflötur húss getur orðið allt að 60 % af stærð lóðar í stað 40 % og að nýtingarhlutfall geti orðið allt að 1 í stað 0,6. Ennfremur er gert ráð fyrir breytingu á grein 2.3. í skilmálum þannig að hægt sé að veita byggingarleyfi fyrir færri bílastæðum á lóð en skilmálar miða við ef sýnt sé fram á hvernig bregðast megi við ef aðstæður breytast sem kalla á fleiri stæði. (t.d. með bílastæðahúsi innan byggingarreits)
Skipulagsnefnd vísar tillögunni í auglýsingu í samræmi við 1.mgr.41.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
6. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa um afstöðu nefndarinnar til tillagna að breytingu deiliskipulags lóðanna sem gerir ráð fyrir verulegu auknu byggingarmagni, stækkun byggingarreita og breytinga á ákvæðum um fjölda fermetra á hvert bílastæði. Gildandi krafa er 50 fermetrar á bílastæði en leitað er eftir afstöðu nefndarinnar um hugmynd að 100 fermetrum á hvert bílastæði. Í eldri byggingarreglugerð var gert ráð fyrir 35 fermetrum á bílastæði í skrifstofu og verslunarhúsnæði en í öðru atvinnuhúsnæði 50 fermtetum. Í Kauptúni er nú miðað við 30 fermetra og var sú tala nýverið hækkuð úr 22 fermetrum. Byggði það á fenginni reynslu.
Skipulagsnefnd er jákvæð gagnvart hugmyndum um uppbyggingu lóðanna en óskar eftir ítarlegri rökstuðningi um skilgreiningu á bílastæðaþörf.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
14. fundur
Fyrirspurn vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.