Keldugata 2, 4-6, 8-12. 14-18 og 20. Dsk breyting.
Ferill máls
Skipulagsnefnd Garðabæjar
01
9. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags lóða við ofanverða Keldugötu. Lagður fram tölvupóstur frá íbúum við Keldugötu. Skipulagsnefnd felur tækni-og umhverfissviði að ræða tillöguna við íbúa í götunni áður en ákvörðun verður tekin um framhald málsins.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
8. fundur
Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa Keldugötu 4-6, 8-12, 14-19 og 20 þar sem óskað er eftir afstöðu skipulagsnefndar til hugmyndar um breytingar á ákvæðum lóðanna í deiliskipulagi. Hugmyndin er m.a. sett fram á þrívíddarteikningum. Hugmyndin gerir ráð fyrir því að lóðirnar nr. 14-19 og 4-6 verði felldar út en að á lóð nr. 20 verði gert ráð fyrir 9 íbúðum í stað 3ja og á lóð 8-12 verði gert ráð fyrir 7 íbúðum í stað 3ja. Það þýðir fjölgun um 5 íbúðir á þessum fjórum lóðum sem yrðu tvær samkvæmt hugmyndinni. Þannig yrði þá opið grænt svæði beggja vegna lóðarinnar nr. 8-12 þar sem gerðar yrðu göngutengingar á milli Holtsvegar og Keldugötu.
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir samráðsfundum með íbúum og eigendum húsa neðan götu þar sem hugmyndir um breytingar á þessum lóðum hafa verið kynntar. Skipulagsnefnd óskar eftir því að lögð verði fram ein tillaga sem sýnir umrædda hugmynd sem breytingu deiliskipulags og verði hugmynd um breytingu á lóð nr.2 hluti af henni.