Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna byggðar við Víkurgötu.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
45 (1811). fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að samþykkt tillaga um breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna lóða við Víkurgötu verði send til meðferðar Skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
14. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Vesturhluta sem nær til einbýlishúsa við Víkurgötu að lokinni auglýsingu skv.1mgr. 43.gr.Skipulagslaga sem fór fram 29.september til 10.nóvember sl. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum: Grunnflötur byggingarreits án bílgeymslu í húsagerði E3 stækkar úr 100 m2 í 120 m2. Hæðarfjöldi breytist í "2 hæðir" úr "2-3 hæðir" í húsagerð E3. Hámarkshæð lækkar um 3 metra. Húsagerð á lóðum Víkurgötu 19 og 21 breytist úr húsagerði E1b í E1a. Viðmiðunarbyggingarmagn minnkar. Ákvæði um að heimilt sé að fylgja skilmálum fyrir húsagerði 11b á lóðum með húsagerði E1a er felld út gildi. Kennisnið E1a, E1c og E4 eru óbreytt.
Engar athugasemdir bárust við tillöguna.
Tillagan skoðast því samþykkt sem deiliskipulagbreyting í samræmi við 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Samkvæmt 13. gr. samnings Garðabæjar og Urriðaholts ehf. um uppbyggingu byggðar í Urriðaholti, dags. 20. apríl 2007 skal reikna sérstakt gjald á hverja íbúð sem framlag til uppbyggingar skóla- og íþróttamála.
Urriðaholt ehf. greiðir umrætt gjald af íbúðum sem byggðar eru samkvæmt gildandi deiliskipulagi en lóðarhafar greiða gjald vegna fjölgunar íbúða umfram það.
Gjaldið er greitt við útgáfu á byggingarleyfi.
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
14. (816). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna einbýlishúsalóða við Víkurgötu samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga.
Bæjarráð Garðabæjar
04
35. (1801). fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts vegna einbýlishúsalóða við Víkurgötu samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
10. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Vesturhluta sem nær til einbýlishúsa við Víkurgötu. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum: Grunnflötur byggingarreits án bílgeymslu í húsagerði E3 stækkar úr 100 m2 í 120 m2. Hæðarfjöldi breytist í "2 hæðir" úr "2-3 hæðir" í húsagerð E3. Hámarkshæð lækkar um 3 metra. Húsagerð á lóðum Víkurgötu 19 og 21 breytist úr húsagerði E1b í E1a. Viðmiðunarbyggingarmagn minnkar. Ákvæði um að heimilt sé að fylgja skilmálum fyrir húsagerði 11b á lóðum með húsagerði E1a er felld út gildi. Kennisnið E1a, E1c og E4 eru óbreytt.
Skipulagsnefnd vísar tilllögunni til auglýsingar í samræmi við 1.mgr. 43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.