Mosagata 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
36. (1802). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita RK bygg ehf., kt. 560916-1830, byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi með 5 íbúðum að Mosagötu 2.
afgreiðslufundir skipulagsstjóra
02
4. fundur
Tekin fyrir byggingarleyfisumsókn fjölbýlishúss að Mosagötu 2. Hönnuður er Eggert Guðmundsson byggingarfræðingur.
Með vísan í lið e í 2.gr. Viðauka II við samþykkt nr.20/2017 heimilar skipulagsstjóri að við samþykkt byggingarleyfis sé vikið frá ákvæði deiliskipulags um þakhalla og 7° þakhalli því heimilaður.
Við endanlegan frágang deiliskipulagsbreytingar sem samþykkt var í bæjarstjórn 17.mars árið 2016 láðist að færa inn breytingu sem auglýst hafði verið sem fólst í því að í stað þakhalla 15°-30° yrði hann heimilaður 0°-30°. Með vísan í þá forsögu fellst skipulagsstjóri á ofangreint frávik.
Skipulagstjóri hefur fundað með framkvæmdaaðila og greint þeim frá því að íbúar í fjölbýlishúsi við Hellagötu hafi sett sig í samband við skipulagsstjóra og lýst yfir óánægju með bílastæði inni á lóð sem ofangreind deiliskipualgsbreyting gerir ráð fyrir. Skipulagsstjóri náði samkomulagi við framkvæmdaaðlia um að steyptur stoðveggur umhverfis bílastæði nái a.m.k. 1 m upp fyrir bílastæði að neðanverðu og dragi þannig úr ljósagangi bifreiða gagnavart fjölbýlishúsinu í Hellagötu.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
10. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts vesturhluta sem nær til lóðarinnar Mosagata 2. Tillagan gerir ráð fyrir breytingu á ákvæðum um þakhalla. Skipulagsnefnd vísar málinu til úrlausnar skipulagsstjóra með vísan í viðauka II við samþykkt um stjorn Garðabæjar nr.20/2017.