Viðbygging við Hákotsvör 8, Álftanesi
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
19. (821). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar við núverandi hús við Hákotsvör 8. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.
Bæjarráð Garðabæjar
02
45 (1811). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að leyfa útgáfu byggingarleyfis samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna viðbyggingar við núverandi hús við Hákotsvör 8. Grenndarkynning hefur farið fram samkvæmt 2. mgr. sömu greinar og bárust engar athugasemdir.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
14. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn sem gerir ráð fyrir viðbygginu við íbúðarhúsið að Hákotsvör 8. Viðbygging samkvæmt umsókn er um 40 fermetrar að grunnfleti norðan við húsið. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. Norðurmörk viðbyggingar eru í flútti við norðurmörk hússins að Hákostvör 10. Samþykki eigenda Hákotsvarar 10 og 6 liggur fyrir.
Umsóknin hefur verið grenndarkynnt í samræmi við 1.mgr.44.gr. Skipulags og byggingarlaga. Engar athugasemdir bárust. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi samþykki byggingarleyfi samkvæmt grenndarkynntri tillögu.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
14. (816). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við núverandi hús að Hákotsvör 8 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Bæjarráð Garðabæjar
06
35. (1801). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við núverandi hús að Hákotsvör 8 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
10. fundur
Lögð fram fyrirspurn um viðbyggingu við íbúðarhúsið að Hákotsvör 8. Viðbygging samkvæmt tillögu er um 40 fermetrar að grunnfleti og yrði norðan við húsið. Ekkert deiliskipulag er í gildi á svæðinu. Norðurmörk viðbyggingar yrðu í flútti við norðurmörk hússins að Hákostvör 10. Samþykki eigenda Hákotsvarar 10 og 6 liggur fyrir.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi umsókn um byggingarleyfi sem byggir á framlagðri tillögu til grenndarkynninar í samræmi við 1.mgr.44.gr. Skipulags og byggingarlaga. Grenndarkynna skal eigendum Hákotsvarar 5, 6, 7, 9 og 10 sem og Gesthúsa.