19. (859). fundur
19. (859). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
19.12.2019
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - forseti bæjarstjórnar
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Almar Guðmundsson - aðalmaður
- Björg Fenger - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - aðalmaður
- Sara Dögg Svanhildardóttir - aðalmaður
- Ingvar Arnarson - aðalmaður
- Harpa Þorsteinsdóttir - aðalmaður
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Fundurinn er hljóðritaður.
Sigurður Guðmundsson, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 5. desember 2019 er lögð fram.
Almar Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og ræddi bókanir varðandi fjárhagsáætlun.
Sara Dögg Svanhildardóttir, kvaddi sér einnig hljóðs og ræddi bókanir varðandi fjárhagsáætlun.
Dagskrá
01
Fundargerð bæjarráðs frá 10/12 ´19.
Ingvar Arnarson. ræddi 11. tl., bréf Lögmanna á Suðurlandi varðandi sölu á landspildum úr landi Búðarflatar.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 11. tl., bréf Lögmanna á Suðurlandi varðandi sölu á landspildum úr landi Búðarflatar.
Gunnar Einarsson, ræddi 11. tl., bréf Lögmanna á Suðurlandi varðandi sölu á landspildum úr landi Búðarflatar.
Ingvar Arnarson, ræddi að nýju 11. tl., bréf Lögmanna á Suðurlandi varðandi sölu á landspildum úr landi Búðarflatar. Þá ræddi Ingvar 13. tl., tillögu um að bjóða út endurskoðun og gerð ársreiknings hjá Garðabæ.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 11. tl., bréf Lögmanna á Suðurlandi varðandi sölu á landspildum úr landi Búðarflatar.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi að nýju 11. tl., bréf Lögmanna á Suðurlandi varðandi sölu á landspildum úr landi Búðarflatar.
Almar Guðmundsson, ræddi 8. tl. dóm Landsréttar í máli Garðabæjar gegn íslenska ríkinu um starfsemi Ísafoldar.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 8. tl., dóm Landsréttar í máli Garðabæjar gegn íslenska ríkinu um starfsemi Ísafoldar og 13. tl., tillögu um að bjóða út endurskoðun og gerð ársreiknings hjá Garðabæ.
Ingvar Arnarson, ræddi 10. tl., bréf Löggarðs varðandi losun jarðefna ofl. í landi Dysja og 13. tl., tillögu um að bjóða út endurskoðun og gerð ársreiknings hjá Garðabæ.
Gunnar Einarsson, ræddi 10. tl., bréf Löggarðs varðandi losun jarðefna ofl. í landi Dysja og upplýsti að lögmanni bæjarins hafi verið falið að ræða við bréfritara.
Fundargerðin sem er 14 tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
1.11 - 1909108 - Bréf Lögmanna á Suðurlandi varðandi sölu á landspildum úr landi Búðarflatar, dags. 05.09.19.
Bæjarstjórn samþykkir tilboð um kaup á tveimur landspildum jarðarinnar Búðarflatar á Álftanesi á kr. 5.017.000.
Fylgiskjöl
1.12 - 1912026 - Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi endurnýjun á þjónustusamningi við Fjölsmiðjuna, dags. 02.12.19.
Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti endurnýjun þjónustusamnings við Fjölsmiðjuna til þriggja ára.
Fylgiskjöl
02
Fundargerð bæjarráðs frá 17/12 ´19.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 12. tl., svar við fyrirspurn um málefni Tónlistarskóla Garðabæjar og lagði fram eftirfarandi bókun.
"Það er ágætur vitnisburður um menningarlífið í Garðabæ sá mikli áhugi sem hefur verið að undanförnu á tónlistarviðburðum sem haldnir hafa verið á vegum bæjarins. Börn og ungmenni sjá uppalda Garðbæinga stíga á svið og leika tónlist á heimsmælikvarða. Í ljósi menningarlegra áherslna sveitarfélagsins þá finnst mér mikilvægt að horfa til biðlista og leita úrræða sem koma til móts við þann vanda sem Tónlistarskóli Garðabæjar þarf að takast á við."
Sigurður Guðmundsson, ræddi 7. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vegna skjólveggja og 8. tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Fundargerðin sem er 19 tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.
2.1 - 1806461 - Fjárhagsáætlun 2019 - viðaukar nr. 10 og nr. 11.
Bæjarstjórn samþykkir eftirfarandi viðauka nr. 10 og nr. 11 við fjárhagsáætlun 2019 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki nr. 10.
Við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2019 var gert ráð fyrir að mæta launahækkunum vegna kjarasamninga með varasjóði. Í tengslum við gerð væntanlegra kjarasamninga við opinbera starfsmenn hefur nú verið gengið frá samkomulagi um eingreiðslur sem eiga að mæta þeim töfum sem orðið hafa á kjarasamningsgerð.
Eingreiðslur - hækkun hjá stofnunum Garðabæjar 83.351.000 ýmsir lyklar
Hjalli grunnskóli 1.719.000 04263-4364
Alþjóðaskólinn 1.824.000 04264-4364
Leikskóladeild Hjalla 630.000 04163-4364
Leikskólinn Ásar 3.019.000 04161-4364
Leikskólinn Hnoðraholt 3.268.000 04168-4364
Litlu Ásar 2.047.000 04165-4364
Leikskólinn Sjáland 4.094.000 04116-4364
Samtals 99.952.000
Samþykkt bæjarráðs á töxtum vegna NPA samninga
NPA samningar - taxtahækkanir 4.600.000 02530-4993
Vegna fjölgunar nemenda var bætt við starfsmönnum á eftirfarandi stofnunum umfram það sem fjárhagsáætlun gerði ráð fyrir til að mæta fjölgun nemenda
Sjálandsskóli 17.000.000 04214-
Urriðaholtsskóli grunnskóladeild 10.000.000 04216-
Urriðaholtsskóli leikskóladeild 14.000.000 04121-
Samtals 41.000.000
Alls aukin launaútgjöld 145.552.000
Kostnaðarauka mætt með lækkun á varasjóði 145.552.000 31916-7179
Viðauki 11.
Samkvæmt samþykkt bæjarráðs frá 10. desember sl. þarf að gera viðauka vegna landakaupa.
Kaup á landspildum Búðarflatar 5.017.000 eignfært
Kostnaðarauka mætt með lækkun á varasjóði -3.203.500 31916-7179
Kostnaðarauka mætt með hækkun á lóðarleigu -1.813.500 00350-0310
Fylgiskjöl
2.7 - 1808367 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vegna skjólveggja.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts, 1., 2. og 3. áfanga norðurhluta Urriðaholts og 1. áfanga austurhluta Urriðaholts, er varðar skjólveggi, stoðveggi, girðingar og dvalarsvæði á lóðum.
Fylgiskjöl
2.8 - 1811125 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholt.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að nýju deiliskipulagi fyrir 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samhliða samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. og 1. mgr. 43. gr. sömu laga breytingu á deiliskipulagi Viðskiptastrætis þar sem gert er ráð fyrir að skipulag verði fellt úr gildi og breytingu á 3. áfanga norðurhluta og austurhluta Urriðaholts vegna nýrrar afmörkunar deiliskipulagssvæða.
Fylgiskjöl
- Skipulagsnefnd Garðabæjar - 17 (12.12.2019) - Urriðaholt Norðurhluti 4 - deiliskipulag.pdf
- 04-087N-(90)1.01 Deiliskipulagsuppdráttur - UPPFÆRT.pdf
- 04-087N-(90)1.02 Yfirlitsuppdráttur - UPPFÆRT.pdf
- 04-087N-(90)1.03 Skýringaruppdráttur - UPPFÆRT.pdf
- 04-087N-(90)1.04 Skýringaruppdráttur Jarðsprungur - UPPFÆRT.pdf
- 04-087N-(90)1.05 Snið - UPPFÆRT.pdf
- Gróðurgreining_Urriðaholt-norðurhluti-augl - UPPFÆRT.pdf
- Re: Urriðaholt.pdf
- A1184-109-U02 skipulagsnefnd-2019-12-12.pdf
- A1184-105-U02-GR-Urriðaholt norður 4 - UPPFÆRT.pdf
03
Fundargerð samráðshóps um málefni fatlaðs fólks frá 6/12 ´19.
Fundargerðin lögð fram.
05
Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 5/12 ´19.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., starfsáætlanir grunnskóla, 2. tl., endurskoðun skólastefnu Garðabæjar, 3. tl., niðurstöður PISA könnunar 2018, 4. tl., störf kennsluráðgjafa í upplýsingatækni í grunnskólum Garðabæjar, og 5. tl., frístundaþjónustu við nemendur í 5. 10. bekk.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 4. tl., störf kennsluráðgjafa í upplýsingatækni í grunnskólum Garðabæjar og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Tæknilæsi barna og ungmenna er mikilvæg undirstaða fyrir alla stafræna þróun til framtíðar. Því skiptir máli að hlúa enn betur að því starfi sem verið er að byggja upp í upplýsingatækni þvert á grunnskóla Garðabæjar, til þess að faglegar og metnaðarfullar kennsluáætlanir nái fram að ganga og tryggja þannig mikilvæga grunnfærni í tæknilæsi. En ekki síður með endurmenntun kennara á sviði upplýsingatækni."
Þá ræddi Sara Dögg 3. tl., niðurstöður PISA könnunar 2018.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., starfsáætlanir grunnskóla.
Gunnar Einarsson, ræddi 3. tl., niðurstöður PISA könnunar 2018.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 3. tl., niðurstöður PISA könnunar 2018.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 3. tl., niðurstöður PISA könnunar 2018.
Gunnar Einarsson, ræddi að nýju 3. tl., niðurstöður PISA könnunar 2018.
Björg Fenger, ræddi 3. tl., niðurstöður PISA könnunar 2018.
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 3. tl., niðurstöður PISA könnunar 2018.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi að nýju 3. tl., niðurstöður PISA könnunar 2018.
Fundargerðin lögð fram.
06
Fundargerð stjórnar SSH frá 2/12 ´19.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., sóknaráætlun 2020-2024 og 4. tl., ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk.
Björg Fenger ræddi 4. tl., ferðaþjónustu fyrir fatlað fólk.
Gunnar Einarsson, ræddi 1. tl., sóknaráætlun 2020-2024.
Ingvar Arnarson, ræddi 3. tl., yfirfærslu á vegum til sveitarfélaga samkvæmt vegalögum.
Gunnar Einarsson, ræddi 3. tl., yfirfærslu á vegum til sveitarfélaga samkvæmt vegalögum. Gunnar upplýsti að Alþingi hefur samþykkt breytingar á ákvæðum vegalaga þar sem gert er ráð fyrir að fresta yfirfærslu vega til sveitarfélaga um eitt ár eða til ársloka 2020.
Fundargerðin lögð fram.
07
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 6/12 ´19.
Sara Dögg Svanhildardóttir, ræddi 1. tl., niðurstöður níu mánaða uppgjörs.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., niðurstöður níu mánaða uppgjörs, 5. tl., framvinduskýrslu vegna byggingar gas- og jarðgerðarstöðvar og 7. tl., úthlutun styrkja úr Góða hirðinum.
Ingvar Arnarson, ræddi 4. tl., svarbréf Garðabæjar vegna erindis um lóð fyrir endurvinnslustöð.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 4. tl., svarbréf Garðabæjar vegna erindis um lóð fyrir endurvinnslustöð.
Sigurður Guðmundsson, ræddi 4. tl., svarbréf Garðabæjar vegna erindis um lóð fyrir endurvinnslustöð.
Fundargerðin lögð fram.
08
Aðgerðaráætlun gegn hávaða 2018-2023.
Bæjarstjórn samþykkir aðgerðaráætlun Garðabæjar gegn hávaða 2018-2023. Aðgerðaráætlunin skal send Umhverfisstofnun samkvæmt reglugerð um kortlagningu hávaða og aðgerðaáætlanir.
09
Reglur um greiðslur vegna dvalar barna úr Garðabæ hjá dagforeldrum.
Bæjarstjórn samþykkir nýjar reglur um greiðslur vegna dvalar barna úr Garðabæ hjá dagforeldrum.
10
Lántaka samkvæmt fjárhagsáætlun 2020.
Gunnar Einarsson, gerði grein fyrir eftirfarandi tillögu um lántöku hjá Lánasjóði sveitarfélaga að fjárhæð kr. 575.000.000. Um er að ræða verðtryggt lán með 1,74% föstum vöxtum. Lánið er jafngreiðslulán til 15 ára og án heimildar til uppgreiðslu.
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að taka lán hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 575.000.000 með lokagjalddaga þann 5. apríl 2034, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggur fyrir á fundinum og sem bæjarstjórn hefur kynnt sér. Bæjarstjórn samþykkir að til tryggingar láninu (höfuðstól, uppgreiðslugjaldi auk vaxta, dráttarvaxta og kostnaðar) standi tekjur sveitarfélagsins, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011, nánar tiltekið útsvarstekjum sínum og framlögum til sveitarfélagsins úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Er lánið tekið til fjármögnunar á byggingu grunnskóla í Urriðaholti, viðbyggingu við grunnskóla á Álftanesi og byggingu fjölnota íþróttahúss sem fela í sér að vera verkefni sem hafa almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Jafnframt er Gunnari Einarssyni, bæjarstjóra, kt. 250555-4079, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar, sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns."
Gunnar Valur Gíslason, tók til máls
Bæjarstjórn samþykkir samhljóða tillögu um lántöku samkvæmt heimild í samþykktri fjárhagsáætlun fyrir árið 2020.