Fundargerð bæjarráðs frá 17/12 ´19.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
19. (859). fundur
Harpa Þorsteinsdóttir, ræddi 12. tl., svar við fyrirspurn um málefni Tónlistarskóla Garðabæjar og lagði fram eftirfarandi bókun.
"Það er ágætur vitnisburður um menningarlífið í Garðabæ sá mikli áhugi sem hefur verið að undanförnu á tónlistarviðburðum sem haldnir hafa verið á vegum bæjarins. Börn og ungmenni sjá uppalda Garðbæinga stíga á svið og leika tónlist á heimsmælikvarða. Í ljósi menningarlegra áherslna sveitarfélagsins þá finnst mér mikilvægt að horfa til biðlista og leita úrræða sem koma til móts við þann vanda sem Tónlistarskóli Garðabæjar þarf að takast á við."
Sigurður Guðmundsson, ræddi 7. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vegna skjólveggja og 8. tl. afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu að deiliskipulagi 4. áfanga norðurhluta Urriðaholts.
Fundargerðin sem er 19 tl. er samþykkt samhljóða.
Afgreiðsla mála.