Beint í efni

Norðurnes Álftaness, deiliskipulag

Málsnúmer 1803108

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

9. fundur

Formaður skipulagsnefndar og skipulagsstjóri greindu nýrri skipulagsnefnd frá mótun á deiliskipulagstillögu og því ferli sem unnið hefur verið að um árabil á skipulagi Norðurness.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og ráðgjöfum.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

35 (22-26). fundur

Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri kynnti skipulagsvinnu Norðurness. Umhverfisnefnd ræddi viðmið vegagerðar varðandi lágmarkshæð byggðar yfir sjávarmáli í tengslum við hækkun sjávarmáls.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

8. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi sem mótuð hefur verið með hliðsjón af þeim ábendingum og umsögnum sem borist hafa í forkynningu tillögunnar sem fór fram í byrjun árs með fresti til 11. febrúar. Almennur kynningarfundur var haldinn í Álftanesskóla þann 14. janúar sem var vel sóttur.
Tillagan hlaut forkynningu samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til sama svæðis.
Tillagan nær til Breiðabólstaðasvæðis, Eyrar, Kasthúsatjarnar og svæðisins umhverfis Eyvindarholt, Stekk, Asparvík og Tjörn, allt að landamörkum við Bessastaði og Akurgerði. Innan deiliskipulagsvæðis er nyrðri helmingur Bessastaðatjarnar, Kasthúsatjörn og Breiðabólstaðatjörn.

Skipulagssvæðið er um 124 hektarar að flatarmáli. Stærstur hluti þess er í einkaeigu.

Tillagan er unnin af Landslagsarkitektastofunni Landslag ehf og Arkitektastofunni Arkís ehf.

Ýmsar breytingar hafa verið gerðar frá forkynntri tillögu og eru þær helstar:
- Íbúðareiningum hefur verið fækkað að lágmarki um 20
- Raðhús verða á einni hæð í stað tveggja og grunnflötur þeirra stækkar.
- Hámarks mænishæð einbýlishúsa lækkar.
- Parhús vestan Blikastígs verða einnar hæðar án rishæðar. Þök skulu vera lögð torfi.
- Hámarksmænishæð tveggja hæða parhúsa lækkar.
- Aðkomu að parhúsagötu vestan Blikastígs breytt og nú gert ráð fyrir hringtorgi.
- Fyrirkomulagi bílastæða við Hlöðuna breytt til aðlögunar að því sem til staðar er.
- Staðsetning golfskála breytist, verður austan gatnamóta Norðurnesvegar og Jörfavegar í stað staðsetningar norðaustan Eyvindarholts.
- Ekki er lengur gert ráð fyrir stækkunarmöguleika gistihúss á Eyvindarholti 1 til suðurs inn á land Eyvindarholts 2.

Framlögð tillaga gerir ráð fyrir eftirfarandi:
- Íbúðarbyggð verður á Breiðabólstaðasvæði sem gerir alls ráð fyrir að hámarki 137 íbúðareiningum í sérbýli. (54 einbýlishúseiningar, 51 raðhúseining og 32 parhúseiningar). Á Norðurnesi eru alls 38 einbýlishús fyrir og verður samanlagður fjöldi því að hámarki 175 húseiningar.
- Golfvöllur verður norðan og vestan Bessastaðatjarnar og vestan Jörfavegar. Gert verður ráð fyrir 9 holu velli og æfingasvæði en golfvöllurinn verður hannaður í kjölfar staðfestingar deiliskipulags innan þess svæðis sem skilgreint er sem golfvallarsvæði í deiliskipulaginu.
- Lóðir fyrir einnar hæðar einbýlishús bætast við hjá Asparvík og Tjörn.
- Lóð fyrir hverfisstöð þjónustumiðstöðvar Garðabæjar verður skilgreind þar sem áhaldahús er fyrir.
- Gert er ráð fyrir landfyllingum og sjóvörnum norðan Blikastígs til að verja núverandi byggð fyrir ágangi sjávar og auka rými vegna útivistarstíga og reiðstíga sem gert er ráð fyrir að verði á milli íbúðarhúsabyggðar og sjóvarnargarðs.
- Gert er ráð fyrir stígakerfi með stofnstígum, útivistarstígum og reiðstígum.
- Gert er ráð fyrir lítilli aðstöðuhöfn nyrst og austast á Eyri ásamt dælustöð vegna fyrirhugaðrar Skerjafjarðarfráveitu.
- Gert er ráð fyrir manngerðum hólmum í Bessastaðatjörn undan tjarnarbakka að norðanverðu til stuðnings fuglalífi.
- Gert er ráð fyrir að mynda tjarnir nyrst á Eyri til stuðnings fuglalífi.
- Gert er ráð fyrir leiksvæðum inni í byggð eða við jaðar hennar.
- Gert er ráð fyrir aðalaðkomuvegi að svæðinu um Jörfaveg, sem liggur frá Norðurnesvegi.
- Gert er ráð fyrir einum aðkomuveg að Stekk, Tjörn, Asparvík og Eyvindarholti 1, frá Norðurnesvegi.

Umsögn Vegagerðarinnar, (sem fer með siglinga-og hafnarmál, þ.m.t. varnir gegn sjávarflóðum og landbroti) dags. 12. febrúar 2026 liggur fyrir og þar kemur fram að lágmarksgólfkóti Aðaskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem er 5,2 metrar yfir sjávarmáli uppfyllir viðmið Vegagerðarinnar sem miðar við 5,15 mys.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til meðferðar hjá nýrri skipulagsnefnd að afloknum sveitarstjórnarkosningum.

Hlynur Bæringsson leggur fram eftirfarandi bókun fyrir hönd B-listans í Garðabæ:

Norðurnes Álftaness er á skilgreindu sjávarflóðasvæði. Deiliskipulagstillagan tekur ekki mið af hættu á áhrifum sjávarflóða og ölduágangs á þá íbúðabyggð sem fyrirhuguð er. Á ekki aðeins við um gólfkóta bygginga, heldur líka vegi, veitur, lagnir og aðra innviði. Áður en haldið verður áfram með þessar skipulagshugmyndir er nauðsynlegt að fá hættumat frá Veðurstofu og frekara álit Vegagerðarinnar sem sér um sjóvarnir. Vitað er að sjávarstaða getur hækkað um allt að 50-70 cm á næstu 100 árum. Garðabær er ekki í landþröng og nóg er til af góðu byggingarlandi undir sérbýli og sem stendur hærra. Einnig á Álftanesi. Norðurnesið hentar hins vegar vel fyrir golfvöll og aðra útivist, þó sjór geti farið yfir svæðið í vetrarveðrum.

Björg Fenger leggur fram eftirfarandi bókun fyrir hönd D-listans í Garðabæ:

Við mótun deiliskipulagstillögu Norðurness hefur verið tekið tillit til þeirra viðmiða um land og gólfhæðir, sem hafa hliðsjón af loftslagsbreytingum og hækkandi sjávarstöðu og hafa verið aðgengilegar hverju sinni. Í því samhengi er mikilvægt að halda til haga að lágmarksgólfkóti Aðalskipulags Garðabæjar 2016?2030, sem er 5,2 m.y.s., uppfyllir viðmið Vegagerðarinnar sem miða við 5,15 m.y.s. sbr. umsögn Vegargerðarinnar frá 12. febrúar síðastliðnum.
Mikilvægt er að skipulag Norðurness öðlist gildi í upphafi næsta kjörtímabils, þannig að hönnun og uppbygging golfvallarins sem stefnt hefur verið að um árabil geti hafist.


Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

7. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Norðurness að lokinni forkynningu ásamt innkomnum ábendingum og umsögnum. Breytingar hafa verið gerðar á tillögunni í kjölfar ábendinga og umsagna.
Umhverfissvið mun funda með sérfræðingum Veðurstofunnar á næstu dögum til þess að ræða ákvæði um lágmarkshæðarlegu nýbygginga á Álftanesi sem sett er fram í aðalskipulagi. Einnig er búið að boða til fundar með forsetaembættinu vegna tillögunnar.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

6. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Norðurness að lokinni forkynningu. Björn Guðbrandsson og Edda Kristín Einarsdóttir hjá Arkís og Þráinn Hauksson hjá Landslagi fóru yfir valkosti að mótun tillögunnar í kjölfar forkynningar.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjörum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

5. fundur

Edda Einarsdóttir arkitekt hjá Arkís kynnti valkosti við útfærslu skipulagstillagna sem mótaðir hafa verið í kjölfar ábendinga sem borist hafa í forkynningu.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

4. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi að lokinni forkynningu ásamt innkomnum ábendingum og umsögnum. Lögð fram greinargerð þar sem að ábendingar hafa verið flokkaðar eftir efnisatriðum. Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

3. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi að lokinni forkynningu ásamt þeim ábendingum og umsögnum sem borist hafa.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Bæjarstjórn Garðabæjar

09

18. (970). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 11. desember 2025 varðandi tillögu að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi. Tillagan nær til Breiðabólstaðasvæðis, Eyrar, Kasthúsatjarnar og svæðisins umhverfis Eyvindarholt, Stekk, Asparvík og Tjörn, allt að landamörkum við Bessastaði og Akurgerði. Þráinn Hauksson skipulagsráðgjafi gerði grein fyrir tillögunni sem er unnin af Landslagi ehf og Arkís ehf. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi: -Íbúðarbyggð verður á Breiðabólstaðasvæði sem gerir alls ráð fyrir 157 íbúðareiningum í sérbýli. (57 einbýlishúseiningar, 68 raðhúseiningar og 32 parhúseiningar). Á Norðurnesi eru alls 38 einbýlishús fyrir og verður samanlagður fjöldi því 195 húseiningar. Ný einbýlishús eru ein og hálf hæð, parhús ein hæð með risi og raðhús tvær hæðir. -Golfvöllur verður norðan og vestan Bessastaðatjarnar og vestan Jörfavegar. Gert verður ráð fyrir 9 holu velli og æfingasvæði ásamt golfskála norðaustan við Eyvindarholt. -Lóðir fyrir einbýlishús bætast við hjá Asparvík og Tjörn. -Lóð fyrir hverfisstöð áhaldahús verður skilgreind þar sem hverfisstöð áhaldahúss er fyrir. -Gert er ráð fyrir landfyllingum og sjóvörnum norðan Blikastígs til að verja núverandi byggð fyrir ágangi sjávar og auka rými vegna útivistarstíga og reiðstíga sem gert er ráð fyrir að verði á milli íbúðarhúsabyggðar og sjóvarnargarðs. -Gert er ráð fyrir stígakerfi með stofnstígum, útivistarstígum og reiðstígum. -Gert er ráð fyrir manngerðum hólmum í Bessastaðatjörn undan tjarnarbakka að norðanverðu. -Gert er ráð fyrir leiksvæðum inni í byggð eða við jaðar hennar. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3. mgr. 40. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. Halda skal almennan kynningarfund í Álftanesskóla á meðan á forkynningu stendur. Tillagan skal forkynnt samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030, sem nær til sama svæðis. Við gildistöku deiliskipulagsins mun gildandi deiliskipulag umhverfis Kasthúsatjörn og Bessastaðatjörn frá árinu 1998 verða fellt úr gildi.

Bæjarráð Garðabæjar

10

46. (2194). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 11. desember 2025 varðandi tillögu að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi. Tillagan nær til Breiðabólstaðasvæðis, Eyrar, Kasthúsatjarnar og svæðisins umhverfis Eyvindarholt, Stekk, Asparvík og Tjörn, allt að landamörkum við Bessastaði og Akurgerði.
Þráinn Hauksson skipulagsráðgjafi gerði grein fyrir tillögunni sem er unnin af Landslagi ehf og Arkís ehf.

Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi:
-Íbúðarbyggð verður á Breiðabólstaðasvæði sem gerir alls ráð fyrir 157 íbúðareiningum í sérbýli. (57 einbýlishúseiningar, 68 raðhúseiningar og 32 parhúseiningar). Á Norðurnesi eru alls 38 einbýlishús fyrir og verður samanlagður fjöldi því 195 húseiningar. Ný einbýlishús eru ein og hálf hæð, parhús ein hæð með risi og raðhús tvær hæðir.
-Golfvöllur verður norðan og vestan Bessastaðatjarnar og vestan Jörfavegar. Gert verður ráð fyrir 9 holu velli og æfingasvæði ásamt golfskála norðaustan við Eyvindarholt.
-Lóðir fyrir einbýlishús bætast við hjá Asparvík og Tjörn.
-Lóð fyrir hverfisstöð áhaldahús verður skilgreind þar sem hverfisstöð áhaldahúss er fyrir.
-Gert er ráð fyrir landfyllingum og sjóvörnum norðan Blikastígs til að verja núverandi byggð fyrir ágangi sjávar og auka rými vegna útivistarstíga og reiðstíga sem gert er ráð fyrir að verði á milli íbúðarhúsabyggðar og sjóvarnargarðs.
-Gert er ráð fyrir stígakerfi með stofnstígum, útivistarstígum og reiðstígum.
-Gert er ráð fyrir manngerðum hólmum í Bessastaðatjörn undan tjarnarbakka að norðanverðu.
-Gert er ráð fyrir leiksvæðum inni í byggð eða við jaðar hennar.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3. mgr. 40. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. Halda skal almennan kynningarfund í Álftanesskóla á meðan á forkynningu stendur. Tillagan skal forkynnt samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030, sem nær til sama svæðis.

Við gildistöku deiliskipulagsins mun gildandi deiliskipulag umhverfis Kasthúsatjörn og Bessastaðatjörn frá árinu 1998 verða fellt úr gildi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

11

18. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi. Tillagan nær til Breiðabólstaðasvæðis, Eyrar, Kasthúsatjarnar og svæðisins umhverfis Eyvindarholt, Stekk, Asparvík og Tjörn, allt að landamörkum við Bessastaði og Akurgerði.
Þráinn Hauksson skipulagsráðgjafi gerði grein fyrir tillögunni sem er unnin af Landslagi ehf og Arkís ehf.

Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi:
-Íbúðarbyggð verður á Breiðabólstaðasvæði sem gerir alls ráð fyrir 157 íbúðareiningum í sérbýli. (57 einbýlishúseiningar, 68 raðhúseiningar og 32 parhúseiningar). Á Norðurnesi eru alls 38 einbýlishús fyrir og verður samanlagður fjöldi því 195 húseiningar. Ný einbýlishús eru ein og hálf hæð, parhús ein hæð með risi og raðhús tvær hæðir.
-Golfvöllur verður norðan og vestan Bessastaðatjarnar og vestan Jörfavegar. Gert verður ráð fyrir 9 holu velli og æfingasvæði ásamt golfskála norðaustan við Eyvindarholt.
-Lóðir fyrir einbýlishús bætast við hjá Asparvík og Tjörn.
-Lóð fyrir áhaldahús verður skilgreind þar sem áhaldahús er fyrir.
-Gert er ráð fyrir landfyllingum og sjóvörnum norðan Blikastígs til að verja núverandi byggð fyrir ágangi sjávar og auka rými vegna útivistarstíga og reiðstíga sem gert er ráð fyrir að verði á milli íbúðarhúsabyggðar og sjóvarnargarðs.
-Gert er ráð fyrir stígakerfi með stofnstígum, útivistarstígum og reiðstígum.
-Gert er ráð fyrir manngerðum hólmum í Bessastaðatjörn undan tjarnarbakka að norðanverðu.
-Gert er ráð fyrir leiksvæðum inni í byggð eða við jaðar hennar.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3. mgr. 40. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. Halda skal almennan kynningarfund í Álftanesskóla á meðan á forkynningu stendur. Tillagan skal forkynnt samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030, sem nær til sama svæðis.

Við gildistöku deiliskipulagsins mun gildandi deiliskipulag umhverfis Kasthúsatjörn og Bessastaðatjörn frá árinu 1998 verða fellt úr gildi.

Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir vék af fundi undir þessum lið.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

12

17. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

13

14. fundur

Lögð fram drög að tillögu á breytingu deiliskipulags Norðurness. Skipulagsstjóri og Guðjón Friðriksson gerðu grein fyrir samtali sem átt hefur sér stað við landeigendur á Norðurnesi.
Vísað til úrvinnslu hjá Umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

14

10. fundur

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir stöðu mála og samtali Garðabæjar við landeigendur í tengslum við tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar og deiliskipulags á Norðurnesi á Álftanesi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

15

1. fundur

Skipulagsstjóri gerir grein fyrir drögum að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi sem liggja fyrir. Skipulagsnefnd vísar drögunum til frekari útfærslu.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

16

10. fundur

Lagt fram minnisblað skipulagsráðgjafa ásamt ábendingum og umsögnum sem borist hafa. Ómar Ívarsson skipulagsfræðingur hjá Landslagi fór yfir minnisblaðið.Tillögu vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni- og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

17

9. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi að lokinni forkynningu í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Ábendingar og umsagnir sem borist hafa lagðar fram. Vísað til úrvinnslu hjá skipulagsráðgjöfum og tækni- og umhverfissviði.

Bæjarstjórn Garðabæjar

18

9. (868). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi fyrir Norðurnes Álftaness fyrir íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Kynningin skal auglýst með áberandi hætti. (Mál nr. 1803108)

Bæjarstjórn Garðabæjar

19

9. (868). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

20

21. (1929). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi fyrir Norðurnes Álftaness fyrir íbúum sveitarfélagsins og öðrum hagsmunaaðilum á almennum fundi eða á annan fullnægjandi hátt. Kynningin skal auglýst með áberandi hætti.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

21

6. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi.
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir fundum með landeigendum þar sem drög að tillögu voru rædd. Lagt fram minnisblað þar sem gerðar eru tillögur að nokkrum breytingum á tillögunni.
Lagðar fram fornleifaskráning unnin af Antikva ehf og húsakönnun unnin af Gláma-Kím.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

22

22. fundur

Skipulagsráðgjafarnir, Þráinn Hauksson og Ómar Ívarsson hjá Landslagi ehf kynnti drög að tillögu að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

23

3. fundur

Skipulagsráðgjafar, Þráinn Hauksson Landslagi ehf og Björn Guðbrandsson Arkís ehf kynna drög að tillögu að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi.
Drögum vísað til kynningar í umhverfisnefnd og íþrótta- og tómstundaráði. Drögin skulu kynnt landeigendum á Norðurnesi.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

24

17. fundur

Þráinn Hauksson landslagsarkitekt hjá Landslagi ehf gerði grein fyrir tillögu að deiliskipulagi sem kallar á breytingu aðalskipulags. Lagðar fram ábendingar og umsagnir sem borist hafa við verkefnislýsingu sem hefur verið auglýst. Skipulagsstjóri gerir grein fyrir fundum sem haldnir hafa verið með landeigendum, fuglafræðingum og forsetaembættinu. Vísað til frekari úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

25

13. fundur

Ómar Ívarsson skipulagsfræðingur hjá Landslagi kynnti tillögu að deiliskipulagi fyrir Norðurnes á Álftanesi og tillögu að breytingu aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem deiliskipulagstillagan kallar á. Deiliskipulagstillagan gerir ráð fyrir einbýlishúsabyggð á landnotkunarreitum Hvols og Jörfa, parhúsum við Bessastaðatjörn, golfvelli vestan og norðan Bessastaðatjarnar, útivistarsvæðum og fuglafriðlandi við Kasthúsatjörn og á Breiðabólstaðaeyri. Vísað til frekari úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og tækni- og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

26

4. fundur

Þráinn Hauksson landlagsarkitekt gerði grein fyrir drögum að deiliskipulagi Norðurness.
Skipulagsnefnd vísar drögum til kynningar og samráðs við landeigendur, Golfklúbb Álftaness og Fugla-og náttúruverndarfélag Álftaness.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

27

13. fundur

Ómar Ívarsson skipulagsráðgjafi hjá Landslagi ehf kynnti afrakstur undirbúnings og greininga á forsendum deiliskipulagvinnunnar. Ljóst að útfærsla deiliskipulagsins getur kallað á aðalskipulagsbreytingu. Vísað til frekari úrvinnslu hjá skipulagsráðgjafa og tækni-og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

28

8. fundur

Lögð fram að nýju verkefnislýsing og matslýsing fyrir deiliskipulag Norðurnes á Álftanesi. Á fundi skipulagsnefndar 9. mars var samþykkt með tilvísan í 1. mgr. 40. gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa verkefnalýsinguna. Ábendingarfresti lýkur 11. maí. Engar ábendingar hafa borist. Umsögn frá Veitum liggur fyrir og hún lögð fram. Ábendingum og umsögnum sem berast er vísað til tækni-og umhverfissviðs.

Bæjarstjórn Garðabæjar

29

5. (827). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um lýsingu samkvæmt 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna tillögu að deiliskipulagi fyrir norðurnes Álftaness og matslýsingu fyrir umhverfismat skipulagsins samkvæmt lögum um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.

Bæjarráð Garðabæjar

30

10. (1825). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um lýsingu samkvæmt 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna tillögu að deiliskipulagi fyrir norðurnes Álftaness og matslýsingu fyrir umhverfismat skipulagsins samkvæmt lögum um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

31

5. fundur

Lögð fram tillaga sem Landslag ehf hefur unnið að verkefnislýsingu fyrir deiliskipulag Norðurness Álftaness og matslýsingu fyrir umhverfismat deiliskipulagsins. Skipulagsnefnd samþykktir lýsinguna í samræmi við 1.mgr. 40 gr Skipulagslaga nr. 123/2010 og matslýsinguna í samræmi við lög um umhverfismat áætlana .