8. fundur
8. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í Sveinatungu, Garðatorgi
30.04.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Sigþrúður Ármann - varamaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
- Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
- Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Vetrarmýri - Breyting á deiliskipulagi
Sigurður Einarsson arkitekt hjá Batteríinu ehf gerði grein fyrir hugmyndum Arnarhvols, sem er uppbyggingaraðili í Vetrarmýri, sem munu kalla á breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar miðsvæði. Skipulagsnefnd vísar hugmyndum til skoðunar hjá umhverfissviði og ráðgjöfum.
02
Skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 3. Norðurnes
Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Norðurness á Álftanesi og mótuð hefur verið með hliðsjón af þeim ábendingum og umsögnum sem borist hafa í forkynningu tillögunnar sem fór fram í byrjun árs með fresti til 11.febrúar. Almennur kynningarfundur var haldinn í Álftanesskóla þann 14. janúar sem var vel sóttur.
Tillagan hlaut forkynningu samhliða tillögu að deiliskipulagi Norðurness sem nær til sama svæðis.
Sú breyting hefur verið gerð frá forkynntri tillögu að landnotkunarreitur við Eyvindarholt, 1.11 Vþ minnkar úr 1,3 ha í 0,3 ha þar sem ekki er lengur gert ráð fyrir golfskála norðaustan Eyvindarholts né stækkunarmöguleika á gistihúsi á Eyvindarholti 1 yfir á land Eyvindarholts 2.
Helstu breytingar sem tillagan gerir ráð fyrir eru eftirfarandi:
- Íþróttasvæði 1.07 Íþ(golfvöllur) stækkar, breytir um lögun og við það bætast nýir reitir austan Eyvindarholts og austan Kasthúsatjarnar.
- Íþróttasvæði 1.02 Íþ (hesthúsabyggð) á Eyri er fellt út.
- Íbúðarbyggð 1.05, 1.06 Íb og 1.10 Íb stækka og breyta lögun.
- Íbúðarbyggð bætist við vestan Blikastígs, 1.36 Íb
- Íbúðarbyggð verður felld út umhverfis Eyvindarholt og Breiðabólstaði og Grund.
- Svæði fyrir verslun og þjónustu verður umhverfis Breiðabólstaði og Grund. Ekki verður þó heimilt að reka þar veitingahús.
- Svæði fyrir verslun og þjónustu verður umhverfis fyrrverandi útihús austan Breiðabólstaðatjarnar.
- Svæði fyrir verslun og þjónustu verður á landi Eyvindarholts 1.
- Hverfisvernd við Bessastaðatjörn breytir um lögun, minnkar norðan við tjörnina en stækkar á Eyri.
- Hverfisvernd við Kasthúsatjörn stækkar.
- Hverfisvernd við Breiðabólstaðatjörn stækkar og nær einnig til Breiðabólstaðatúns.
- Svæði fyrir iðnað 1.41 I verður staðsett norðan landnotkunarreit fyrir hafnarsvæði vegna fyrirhugaðrar dælustöðvar fráveitu.
- Umfjöllun í kafla 3.3.3 í greinargerð aðalskipulagsins um skilgreind byggingarsvæði og íbúðafjölda breytist og gerir ráð fyrir hámarksfjölda íbúða á Álftanesi allt að 1.400 í stað 1.100.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til meðferðar hjá nýrri skipulagsnefnd að afloknum sveitarstjórnarkosningum.
03
Norðurnes Álftaness, deiliskipulag
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Norðurness á Álftanesi sem mótuð hefur verið með hliðsjón af þeim ábendingum og umsögnum sem borist hafa í forkynningu tillögunnar sem fór fram í byrjun árs með fresti til 11. febrúar. Almennur kynningarfundur var haldinn í Álftanesskóla þann 14. janúar sem var vel sóttur.
Tillagan hlaut forkynningu samhliða tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til sama svæðis.
Tillagan nær til Breiðabólstaðasvæðis, Eyrar, Kasthúsatjarnar og svæðisins umhverfis Eyvindarholt, Stekk, Asparvík og Tjörn, allt að landamörkum við Bessastaði og Akurgerði. Innan deiliskipulagsvæðis er nyrðri helmingur Bessastaðatjarnar, Kasthúsatjörn og Breiðabólstaðatjörn.
Skipulagssvæðið er um 124 hektarar að flatarmáli. Stærstur hluti þess er í einkaeigu.
Tillagan er unnin af Landslagsarkitektastofunni Landslag ehf og Arkitektastofunni Arkís ehf.
Ýmsar breytingar hafa verið gerðar frá forkynntri tillögu og eru þær helstar:
- Íbúðareiningum hefur verið fækkað að lágmarki um 20
- Raðhús verða á einni hæð í stað tveggja og grunnflötur þeirra stækkar.
- Hámarks mænishæð einbýlishúsa lækkar.
- Parhús vestan Blikastígs verða einnar hæðar án rishæðar. Þök skulu vera lögð torfi.
- Hámarksmænishæð tveggja hæða parhúsa lækkar.
- Aðkomu að parhúsagötu vestan Blikastígs breytt og nú gert ráð fyrir hringtorgi.
- Fyrirkomulagi bílastæða við Hlöðuna breytt til aðlögunar að því sem til staðar er.
- Staðsetning golfskála breytist, verður austan gatnamóta Norðurnesvegar og Jörfavegar í stað staðsetningar norðaustan Eyvindarholts.
- Ekki er lengur gert ráð fyrir stækkunarmöguleika gistihúss á Eyvindarholti 1 til suðurs inn á land Eyvindarholts 2.
Framlögð tillaga gerir ráð fyrir eftirfarandi:
- Íbúðarbyggð verður á Breiðabólstaðasvæði sem gerir alls ráð fyrir að hámarki 137 íbúðareiningum í sérbýli. (54 einbýlishúseiningar, 51 raðhúseining og 32 parhúseiningar). Á Norðurnesi eru alls 38 einbýlishús fyrir og verður samanlagður fjöldi því að hámarki 175 húseiningar.
- Golfvöllur verður norðan og vestan Bessastaðatjarnar og vestan Jörfavegar. Gert verður ráð fyrir 9 holu velli og æfingasvæði en golfvöllurinn verður hannaður í kjölfar staðfestingar deiliskipulags innan þess svæðis sem skilgreint er sem golfvallarsvæði í deiliskipulaginu.
- Lóðir fyrir einnar hæðar einbýlishús bætast við hjá Asparvík og Tjörn.
- Lóð fyrir hverfisstöð þjónustumiðstöðvar Garðabæjar verður skilgreind þar sem áhaldahús er fyrir.
- Gert er ráð fyrir landfyllingum og sjóvörnum norðan Blikastígs til að verja núverandi byggð fyrir ágangi sjávar og auka rými vegna útivistarstíga og reiðstíga sem gert er ráð fyrir að verði á milli íbúðarhúsabyggðar og sjóvarnargarðs.
- Gert er ráð fyrir stígakerfi með stofnstígum, útivistarstígum og reiðstígum.
- Gert er ráð fyrir lítilli aðstöðuhöfn nyrst og austast á Eyri ásamt dælustöð vegna fyrirhugaðrar Skerjafjarðarfráveitu.
- Gert er ráð fyrir manngerðum hólmum í Bessastaðatjörn undan tjarnarbakka að norðanverðu til stuðnings fuglalífi.
- Gert er ráð fyrir að mynda tjarnir nyrst á Eyri til stuðnings fuglalífi.
- Gert er ráð fyrir leiksvæðum inni í byggð eða við jaðar hennar.
- Gert er ráð fyrir aðalaðkomuvegi að svæðinu um Jörfaveg, sem liggur frá Norðurnesvegi.
- Gert er ráð fyrir einum aðkomuveg að Stekk, Tjörn, Asparvík og Eyvindarholti 1, frá Norðurnesvegi.
Umsögn Vegagerðarinnar, (sem fer með siglinga-og hafnarmál, þ.m.t. varnir gegn sjávarflóðum og landbroti) dags. 12. febrúar 2026 liggur fyrir og þar kemur fram að lágmarksgólfkóti Aðaskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem er 5,2 metrar yfir sjávarmáli uppfyllir viðmið Vegagerðarinnar sem miðar við 5,15 mys.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til meðferðar hjá nýrri skipulagsnefnd að afloknum sveitarstjórnarkosningum.
Hlynur Bæringsson leggur fram eftirfarandi bókun fyrir hönd B-listans í Garðabæ:
Norðurnes Álftaness er á skilgreindu sjávarflóðasvæði. Deiliskipulagstillagan tekur ekki mið af hættu á áhrifum sjávarflóða og ölduágangs á þá íbúðabyggð sem fyrirhuguð er. Á ekki aðeins við um gólfkóta bygginga, heldur líka vegi, veitur, lagnir og aðra innviði. Áður en haldið verður áfram með þessar skipulagshugmyndir er nauðsynlegt að fá hættumat frá Veðurstofu og frekara álit Vegagerðarinnar sem sér um sjóvarnir. Vitað er að sjávarstaða getur hækkað um allt að 50-70 cm á næstu 100 árum. Garðabær er ekki í landþröng og nóg er til af góðu byggingarlandi undir sérbýli og sem stendur hærra. Einnig á Álftanesi. Norðurnesið hentar hins vegar vel fyrir golfvöll og aðra útivist, þó sjór geti farið yfir svæðið í vetrarveðrum.
Björg Fenger leggur fram eftirfarandi bókun fyrir hönd D-listans í Garðabæ:
Við mótun deiliskipulagstillögu Norðurness hefur verið tekið tillit til þeirra viðmiða um land og gólfhæðir, sem hafa hliðsjón af loftslagsbreytingum og hækkandi sjávarstöðu og hafa verið aðgengilegar hverju sinni. Í því samhengi er mikilvægt að halda til haga að lágmarksgólfkóti Aðalskipulags Garðabæjar 2016?2030, sem er 5,2 m.y.s., uppfyllir viðmið Vegagerðarinnar sem miða við 5,15 m.y.s. sbr. umsögn Vegargerðarinnar frá 12. febrúar síðastliðnum.
Mikilvægt er að skipulag Norðurness öðlist gildi í upphafi næsta kjörtímabils, þannig að hönnun og uppbygging golfvallarins sem stefnt hefur verið að um árabil geti hafist.
04
Garðahverfi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingareita.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahverfis að lokinni auglýsingu ásamt þeim athugasemdum og umsögnum sem borist hafa.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum á deiliskipulagsuppdrætti:
Almennar breytingar:
- Afmarkaðar eru lóðir utan um núverandi byggingar á svæðinu.
- Nýjum lóðum fjölgar alls um 6 á eftirfarandi býlum: Katrínarkoti, Hlíð, Miðengi, Görðum, Nýjabæ og Eystri-Dysjum.
- Nýjar lóðir verða um 900 m² að stærð, staðsetningu og lögun lóða og byggingarreita er breytt í kjölfar samráðs við ábúendur eða vegna fornminja.
- Heimreiðum að nýjum lóðum er breytt.
Stígar og aðgengi:
- Bætt öryggi og aðgengi gangandi á gatnamótum Garðavegar og Garðaholtsvegar. Hraðalækkandi aðgerðir og gönguþveranir eru tilgreindar á uppdrætti á þessu svæði.
- Afmörkuð er á uppdrætti gönguþverun fyrir hraðalækkandi aðgerðir þar sem göngustígur þverar Garðaveg hjá Garðakirkju.
- Bætt er við stofnstíg samhliða Garðavegi og Garðaholtsvegi í samræmi við aðalskipulag.
- Gönguleið meðfram Garðavegi breytt í tengistíg í samræmi við flokkun í aðalskipulagi.
- Flokkun stígsins meðfram ströndinni í Garðahverfi er breytt til samræmis við flokkun hans í aðalskipulagi sem útivistarstíg. Afmörkuð er á uppdrætti gönguþverun fyrir hraðalækkandi aðgerðir við upphaf sama stígs við Aukatjörn.
Grænigarður, Garðar, Garðaholt og Krókur:
- Afmörkun deiliskipulagssvæðisins er breytt þannig að hún nær einnig yfir gömlu bæjartorfuna Höll.
- Afmörkuð er lóð við húsið Grænagarð.
- Aðkoma að Grænagarði frá kjarna Garðaholts er skilgreind á uppdrætti og bætt við leiðbeinandi legu stíga innan garðsins. Þá er skilgreindur byggingarreitur innan Grænagarðs með skilmálum fyrir lítil mannvirki sem tengjast starfsemi og rekstri almenningsgarðs s.s. fyrir áhaldageymslu, garðhýsi eða annað.
- Gert er ráð fyrir minjasvæði milli Garðakirkju og íbúðarhúss í Görðum. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum á deiliskipulagsgreinargerð:
- Sett eru ákvæði um smáhýsi á lóðum.
- Hámarksgrunnflötur nýrra íbúðarhúsa verður 100 m² í stað 80 m².
- Bætt er við ákvæðum um þakgerð, gerð kvista, matjurtargarð, girðingar ofl.
- Bætt er við ákvæði um að skipulagsnefnd sé heimilt að víkja frá einstökum ákvæðum skilmála ef færð eru góð rök fyrir því að útfærslan virði einkenni byggðarinnar og markmið deiliskipulagsins.
- Kvöðum um fornleifar er breytt.
- Kvöðum um einstök býli breytt til samræmis við breytingartillögur á deiliskipulagsuppdrætti.
- Kvöðum og umfjöllun um Grænagarð er breytt til samræmis við breytingartillögur á deiliskipulagsuppdrætti og á aðalskipulagsuppdrætti.
Skipulagsnefnd leggur til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni:
- Ein íbúðarhúslóð verði bætt við norðan Pálshúsa, Pálshús 4.
- Landi Nýjabæjar 2 verði skipt upp í tvær íbúðarhúsalóðir, Nýjabæ 2a (núverandi hús) og Nýjabæ 2b (nýtt hús)
- Lögun lóðar umhverfis Grjóta (Hausastaðakot) verði breytt.
Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindum breytingum sem breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis í samræmi við 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Tillagan er í samræmi við tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Garðaholts og Garðahverfis og var samþykkt á síðasta fundi nefndarinnar. Voru tillögurnar auglýstar samhliða en hvorki athugasemdir né umsagnir gáfu tilefni til breytingar á aðalskipulagstillögunni.
Lögð fram greinargerð umhverfissviðs þar sem fram kemur innihald þeirra athugasemda og tillaga að svörum Garðabæjar við þeim.
Baldur Ó. Svavarsson leggur fram eftirfarandi bókun fyrir hönd G-listans í Garðabæ:
Fulltrúi Garðabæjarlistans ítrekar enn fyrri bókanir og mótmælir enn þeim áherslum og vinnubrögðum sem lögð eru til grundvallar við gerð svokallaðs skipulags fyrir Garðahverfi á Gaðaholti.
Nú er það að raungerast sem undirritaður óttaðist og varaði við þegar í upphafi með bókun þegar þessi skipulagsgjörningur var kynntur og samþykktur. Þá varaði ég ítrekað m.a. við nákvæmlega því sem hér er að gerst, að húsum á bæjartorfunum sem hér fjallað um, myndi fjölga smám saman og grunnflöturinn þeirra stækka þar til framkallaðist undarlega samsett og óskipulögð þyrping húsað um öll tún á svæðinu og í framhaldi meðfylgjandi fasteigna brask í anda þekktra hverfa hér í bæ. Þá verður of seint að snú við. Framlögð tillaga er auk þess ekki gott skipulag, heldur í besta falli tilviljanakennd og sístækkandi óreiða.
Minni jafnframt á fyrri bókanir um þetta sama mál; sú fyrsta á fundi skipulagsnefndar 11. janúar 2012.
Björg Fenger leggur fram eftirfarandi bókun fyrir hönd D-listans í Garðabæ:
Deiliskipulag Garðahverfis tók gildi árið 2013. Skipulagssvæðið tekur til 85 ha af um 250 ha svæði Garðaholts og Garðahrauns. Í Aðalskipulagi Garðabæjar 2016?2030 er Garðahverfið skilgreint sem landbúnaðarsvæði þar sem lögð er áhersla á vernd menningar- og náttúruminja enda hefur þar varðveist einstakt búsetulandslag, sem á rætur allt aftur til miðalda.
Markmið breytinganna nú er að laga lóðafyrirkomulag, byggingarreiti og byggingarskilmála að þörfum uppbyggingar á svæðinu, í kjölfar samráðs við ábúendur, þannig að þeir styðji við og styrki þau verndarsjónarmið sem liggja til grundvallar í deiliskipulaginu.
05
Vífilsstaðir, deiliskipulag, 1.áfangi
Lögð fram drög að tillögu að deiliskipulagi 1. áfanga Vífilsstaða sem unnin hafa verið af arkitektastofunni Gláma/Kím í samstarfi við umhverfissvið.
Svæðið sem tillagan nær til er um 2 hektarar að stærð og afmarkast af Spítalavegi til vesturs og suðurs, Vífilsstaðavegi til norðurs og Ungmennafélagsgarði til austurs. Innan skipulagssvæðisins standa gamla fjósið, vélageymsluhús, Búshúsið og starfsmannabústaður austan þess.
Á skipulagssvæðinu er gert er ráð fyrir atvinnuhúsnæði (skrifstofuhúsnæði), sem yrði samanlagt um 6000 m² að stærð. Gert er ráð fyrir 10 nýbyggingum í tveimur samstæðum. Auk þess yrðu fjósið, vélageymsluhúsið og Búshúsið nýtt sem atvinnu- eða þjónustuhúsnæði og þau gerð upp með tilhlýðilegri virðingu.
Leitast er við að ný byggð falli sem best að anda staðar og þeim mikilvæga byggingararfi sem fyrirfinnst á Vífilsstöðum. Það á við um stærðir bygginga, þakform, byggðamynstur og yfirbragð. Horft er til þess að rýmið (torgið) norðan Vífilsstaðaspítala haldi sér þó hluti þess sé utan þess svæðis sem deiliskipulagsáfanginn nær til.
Aðkoma verður frá tveimur hringtorgum á Vífilsstaðavegi og verður aðalaðkoma frá hringtorginu næst Reykjanesbraut.
Skipulagsnefnd vísar tillögunum til forkynningar (kynningar á vinnslustigi) í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Halda skal almennan kynningarfund á meðan á forkynningu stendur.
06
Dalprýði 13 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á íbúðarhúsinu að Dalprýði 13 að lokinni grenndarkynningu. Ein athugasemd barst á kynningartíma.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.
07
Arnarland - Deiliskipulagsbreytingar
Lögð fram umsókn uppbyggingaraðila í Arnarlandi um ýmsar breytingar á deiliskipulagi.
Skipulagsnefnd vísar umsókn til skoðunar hjá umhverfissviði.
08
Móaflöt 12 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir einbýlishús að Móaflöt 12 sem gerir m.a. ráð fyrir því að engin bílageymsla verði í húsinu.
Skipulagsnefnd getur ekki fallist á að ekki sé gert ráð fyrir bílageymslu eins og deiliskipulag Flata kveður á um.
09
Græn svæði háholt Hnoðraholts - Hönnun
Skipulagsnefnd leggur til að umhverfissvið hefji undirbúning við útfærslu á opnu svæði efst á Hnoðraholti sem aðlaðandi útivistarsvæðis í miðri íbúðarbyggð. Skoða þarf hvort tillögur muni kalla á breytingar á deiliskipulagi.
10
Melás 8 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um breytingar á íbúðarhúsinu að Melás 8.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.
11
Stöðuleyfi fyrir matvagn - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram umsókn um stöðuleyfi fyrir matvagn.
Máli vísað til frekari skoðunar hjá umhverfissviði.
12
Sauna í Garðabæ - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um stöðuleyfi fargufu við Ránargrund 2.
Skipulagsnefnd vísar málinu til skoðunar hjá umhverfissviði.
13
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 5
13.1 - 2512465 - Kirkjulundur 11 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 3
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi ásamt umsögn Minjastofnunar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemdi við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlögð gögn.
13.2 - 2512239 - Skerpluholt 2 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholts norður að lokinni grenndarkynningu, engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting á deiliskipulagi Hnoðraholts norður. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
13.3 - 2202488 - Deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts. Golfvöllur og útivistarskógur.
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vetrarmýrar og Smalaholts, íþrótta- og útivistarsvæði, sem tekur til skipulagsmarka. Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 í samræmi við 2. ml. 3. mgr. 44. gr. sömu laga er grenndarkynning felld niður. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
14
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 4
14.1 - 2603328 - Hátún 1 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn vegna skólskála og skjólveggja við Hátún 1. Hvað skjólveggi varðar þá er Garðabær í þessu tilfelli ekki aðliggjandi lóðarhafi, nema á þeim hluta lóðarinnar sem snýr að húsagötunni Hátúni en leita skal samþykkis aðliggjandi lóðarhafa vegna frágangs á lóðarmörkum. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við girðingu á lóðarmörkum sem er allt að 1,2 m á hæð og snýr að húsagötu.
Hvað sólskála varðar gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis vegna sólskála sem staðsettur er innan byggingarreits. Nái sólkáli útfyrir byggingarreit skal hámarksbreidd og lengd sólstofu vera 4 m, sjá ákvæði í deiliskipulagi Túnahverfis sem tekur á sólstofum.
14.10 - 2603058 - Útholt 1 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
14.11 - 2603213 - Búsetukjarni við Haustbraut - Lagnir og jarðvinna - Framkvæmdarleyfi
Lögð fram umsókn um framkvæmdarleyfi jarð- og lagnavinnu á búsetukjarnalóð á háholti Hnoðraholts. Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis sem er í samræmi við framlögð gögn í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
14.12 - 2306493 - Lautargata 1 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lögð fram umsókn um breytingu á áður samþykktum aðaluppdráttum fyrir Lautargötu 1. Breytingin felur í sér til að mynda tilfærslu á aðalinngangi af 2. hæð, niður á 1. hæð.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við framlagða uppdrætti.
14.13 - 2107272 - Maríugata 5 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi vegna svalaskjóls á svalagang 5. hæðar fjölbýlishúss við Maríugötu 5.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
14.2 - 2602468 - Vesturtún 17 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við Vesturtún 17. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
14.3 - 2305322 - Kumlamýri 24 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lögð fram fyrirspurn um frágang á lóð og lóðarmörkum. Máli vísað til frekari skoðunar.
14.4 - 2305315 - Kumlamýri 22 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lögð fram fyrirspurn um frágang á lóð og lóðarmörkum. Máli vísað til frekari skoðunar.
14.5 - 2604185 - sjóvarnir við Golfklúbb Álftaness
Lögð fram umsókn um framkvæmdarleyfi vegna sjóvarna við Golfklúbb Álftaness. Um lausnir til bráðabirgða er að ræða. Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis fyrir bráðabirgða sjóvörnum við Golfklúbb Álftaness sem er í samræmi við framlögð gögn í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
14.6 - 2604002 - Breiðás 11 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um fjölgun bílastæða að lóðinni Breiðás 11 úr þremur í fjögur. Skipulagsstjóri vísar tillögu að deiliskipulagsbreytingu þess efnis til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu deiliskipulags Ása og Grunda í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Grenndarkynna skal lóðarhöfum við Breiðás 9 og 10.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
14.7 - 2601206 - Hraunhólar 6A - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lagðir fram uppfærðir uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir Hraunhóla 6a sem viðbrögð við athugasemdum sem bárust við grenndarkynningu. Hús hefur verið lækkar sem nemur einni hæð og bílageymsla er alfarið innan byggingarreits. Bygging er því í fullu samræmi við deiliskipulag Hraunsholts eystra.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti. Um ákörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II bið samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
14.8 - 2603407 - Espilundur 5 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsóknum byggingarleyfi við Espilund 5. Umsóknin felur í sér viðbyggingu, þar sem áður var samþykktur sólskáli.
Þar sem viðbygging stendur utan gildandi byggingarreits kallar umsóknin á óverulega breytingu á deiliskipulagi Lunda.
14.9 - 2603057 - Útholt 3 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.