Dalprýði 13 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
02
20. (2215). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Jóni Trausta Ólafssyni, kt. 090574-5669, leyfi fyrir að setja glugga á norðurhlið hússins að Dalprýði 13.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
03
7. fundur
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi að lokinni grenndarkynningu ásamt innsendri athugasemd.
Gerð er athugasemd við staðsetningu nýs svefnherbergisglugga vegna möguleika á innsýn að aðliggjandi lóð og lagt er til að færa gluggan að austurhlið.
Þar sem að fleiri svefnherbergisgluggar snúa nú þegar að aðliggjandi lóð telur skipulagsstjóri staðsetningu viðbótar glugga ekki íþyngjandi. Ef samkomulag næst milli eigenda húsanna um staðsetningu á austurhlið gerir skipulagsstjóri ekki heldur athugasemd við þá staðsetningu.
Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við það að byggingarleyfi verði veitt í samræmi við grenndarkynnt gögn eða aðra útfærslu í samkomulagi milli eigenda.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
8. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á íbúðarhúsinu að Dalprýði 13 að lokinni grenndarkynningu. Ein athugasemd barst á kynningartíma.
Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
6. (976). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 12. mars 2026 varðandi umsókn um byggingarleyfi að Dalprýði 13, sem gerir ráð fyrir nýjum glugga á norðurhlið íbúðarhússins. Innanhúsbreyting sú sem kallar á þessa útlitsbreytingu er sú að gert verður ráð fyrir svefnherbergi á þessum stað. Í deiliskipulagsgreinargerð deiliskipulags Garðahrauns segir í kafla 2.2.2. Húsagerðir: "Þó að ákvæði um nýtingahlutfall og byggingarreiti sé mjög rýmilegt, ber að taka tillit til útisvæða lóða í sólarátt og innsýnismöguleika frá öðrum húsum, auk hraunmyndana á lóðum." Með vísan í ofangreint ákvæði vísaði skipulagsnefnd umsókninni til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu deiliskipulags Garðahrauns í samræmi við 2.mgr.44.gr.skipulagslaga nr.123/2010 hvað innsýnismöguleika varðar. Grenndarkynna skal eigendum Dalprýði 10 og 11.
Bæjarráð Garðabæjar
06
10. (2205). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 12. mars 2026 varðandi umsókn um byggingarleyfi að Dalprýði 13, sem gerir ráð fyrir nýjum glugga á norðurhlið íbúðarhússins. Innanhúsbreyting sú sem kallar á þessa útlitsbreytingu er sú að gert verður ráð fyrir svefnherbergi á þessum stað. Í deiliskipulagsgreinargerð deiliskipulags Garðahrauns segir í kafla 2.2.2. Húsagerðir:
"Þó að ákvæði um nýtingahlutfall og byggingarreiti sé mjög rýmilegt, ber að taka tillit til útisvæða lóða í sólarátt og innsýnismöguleika frá öðrum húsum, auk hraunmyndana á lóðum."
Með vísan í ofangreint ákvæði vísaði skipulagsnefnd umsókninni til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu deiliskipulags Garðahrauns í samræmi við 2.mgr.44.gr.skipulagslaga nr.123/2010 hvað innsýnismöguleika varðar.
Grenndarkynna skal eigendum Dalprýði 10 og 11.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
5. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir nýjum glugga á norðurhlið íbúðarhússins. Innanhúsbreyting sú sem kallar á þessa útlitsbreytingu er sú að gert verður ráð fyrir svefnherbergi á þessum stað. Í deiliskipulagsgreinargerð deiliskipulags Garðahrauns segir í kafla 2.2.2. Húsagerðir:
Þó að ákvæði um nýtingahlutfall og byggingarreiti sé mjög rýmilegt, ber að taka tillit til útisvæða lóða í sólarátt og innsýnismöguleika frá öðrum húsum, auk hraunmyndana á lóðum.
Með vísan í ofangreint ákvæði vísar skipulagsnefnd umsókninni til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu deiliskipulags Garðahrauns í samræmi við 2.mgr.44.gr.skipulagslaga nr.123/2010 hvað innsýnismöguleika varðar.
Grenndarkynna skal eigendum Dalprýði 10 og 11.