Beint í efni

6. (976). fundur

19.03.2026
Bæjarstjórn Garðabæjar

6. (976). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

19.03.2026

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Margrét Bjarnadóttir - forseti bæjarstjórnar
  • Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
  • Björg Fenger - bæjarfulltrúi
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
  • Gunnar Valur Gíslason - bæjarfulltrúi
  • Harpa Rós Gísladóttir - varabæjarfulltrúi
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Harpa Þorsteinsdóttir - varabæjarfulltrúi
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Guðlaugur Kristmundsson - bæjarfulltrúi

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.

Margrét Bjarnadóttir, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 5. mars 2026 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2603010F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 10/3 ´26.

Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 17.tl. bókun frá 624. fundi stjórnar SSH - þjónustusamningur og samstarfssamningur vegna almenningssamgangna.

Guðlaugur Kristmundsson ræddi 2.tl. götulýsingu í Garðabæ og 17.tl. bókun frá 624. fundi stjórnar SSH - þjónustusamningur og samstarfssamningur vegna almenningssamgangna.

Gunnar Valur Gíslason ræddi 16.tl. beiðni Sorpu bs. um afgreiðslu lánssamnings.

Fundargerðin sem er 20. tl. er samþykkt samhljóða.

1.16 - 2603078 - Beiðni Sorpu bs. um afgreiðslu lánssamnings.

Bæjarstjórn samþykkir beiðni stjórnar SORPU bs. um heimild til fjármögnunar endurvinnslustöðvar við Lambhaga með lánum hjá Lánasjóði sveitarfélaga. Annars vegar er um að ræða lán skv. lánssamningi nr. 2603_17 að fjárhæð kr. 320.000.000. Lánið er verðtryggt með grunnvísitölu 668,3 stig og verðtryggðum vöxtum sem eru 2,5% og fastir allan lánstímann. Virkir vextir samningsins eru 3,9%. Hins vegar er um að ræða lán skv. lánssamningi nr. 2603_18 að fjárhæð kr. 30.000.000. Lánið verðtryggt með grunnvísitölu 668,3 stig og verðtryggðum vöxtum sem eru 3,9% árlega og fastir allan tímann.

Fylgiskjöl

1.17 - 2603077 - Bókun frá 624. fundi stjórnar SSH - Þjónustusamningur og samstarfssamningur vegna almenningssamgangna, dags. 04.03.26.

Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi þjónustusamning sveitarfélaga og ríkis við Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf. og samstarfssamning Strætó bs. og Almenningssamgangna ohf. og felur Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, að undirrita samningana fyrir hönd Garðabæjar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2603023F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 17/3 ´26.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 5.tl. stafræn málefni - nýr vefur.

Guðlaugur Kristmundsson ræddi 3.tl. tölulegar upplýsingar í barnavernd, 4.tl. tilkynningu Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála um frumkvæðisathugun á eftirlitsskyldum barnaverndarþjónusta vegna barna í fóstri og 6.tl. Garðatorg 7 - þjónustuver, umsókn um byggingarleyfi.

Björg Fenger ræddi 3.tl. tölulegar upplýsingar í barnavernd, 4.tl. tilkynningu Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála um frumkvæðisathugun á eftirlitsskyldum barnaverndarþjónusta vegna barna í fóstri og 6.tl. Garðatorg 7 - þjónustuver, umsókn um byggingarleyfi.

Gunnar Valur Gíslason ræddi 12.tl. hönnun - útboð - Lambamýri 2. áfangi - frístundaþjónusta fyrir fötluð ungmenni og 13.tl. hönnun - útboð - búsetukjarni við Haustbraut, jarðvinna.

Fundargerðin sem er 16. tl. er samþykkt samhljóða.

2.10 - 2603130 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Útholt 13-21 - Deiliskipulagsbreyting

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 12. mars 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem nær til raðhúsalengjunnar Útholt 13-21. Fyrir breytingu eru byggingareitir endahúsa 10,5 m en miðjuhúsa 9,0 m. Tillagan gerir ráð fyrir því að allir byggingareitir verði 9,6 m. Mörk byggingareita milli húsa færast því til í þeim tilgangi að jafna stærðir húsanna. Skipulagsnefnd mat breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2.mgr.43.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2.ml. 3.mgr.44.gr.sömu laga er grenndarkynning felld niður.

Fylgiskjöl

2.11 - 2603159 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Ránargrund 2 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 12. mars 2026 varðandi fyrirspurn siglingaklúbbsins Vogs til Garðabæjar um veitingu stöðuleyfis fyrir aðstöðuhús á lóðinni Ránargrund 2. Húsinu er ætlað að veita aðstöðu til fataskipta og kennslu sem og fyrir búnað tengdum fyrstu hjálp. Húsin samanstanda af tveimur einingum sem eru 6,1 x 2,45 að grunnfleti og 2,6 m á hæð. Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að veitt verði stöðuleyfi fyrir húsin á meðan þau uppfylla eftirfarandi skilyrði: Grunnflötur þeirra sé 2 x 2,45 x 6,1 m2 Hæð þeirra sé að hámarki 2,6 m. Leyfið verði veitt til 1.október nk. Leyfið verði veitt fyrir starfsemi í tengslum við ungmennastarf siglingaklúbbsins.

Fylgiskjöl

2.9 - 2602301 - Afgreiðsla skipulagsnefndar - Dalprýði 13 - Umsókn um byggingarleyfi.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 12. mars 2026 varðandi umsókn um byggingarleyfi að Dalprýði 13, sem gerir ráð fyrir nýjum glugga á norðurhlið íbúðarhússins. Innanhúsbreyting sú sem kallar á þessa útlitsbreytingu er sú að gert verður ráð fyrir svefnherbergi á þessum stað. Í deiliskipulagsgreinargerð deiliskipulags Garðahrauns segir í kafla 2.2.2. Húsagerðir: "Þó að ákvæði um nýtingahlutfall og byggingarreiti sé mjög rýmilegt, ber að taka tillit til útisvæða lóða í sólarátt og innsýnismöguleika frá öðrum húsum, auk hraunmyndana á lóðum." Með vísan í ofangreint ákvæði vísaði skipulagsnefnd umsókninni til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu deiliskipulags Garðahrauns í samræmi við 2.mgr.44.gr.skipulagslaga nr.123/2010 hvað innsýnismöguleika varðar. Grenndarkynna skal eigendum Dalprýði 10 og 11.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2603017F

03

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 11/3 ´26.

Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl. Ungmennahús Garðabæjar, 2.tl. þarfagreining um íþróttasvæði í og við Miðgarð, 3.tl. samráðsfund íþróttafélaga Garðabæjar, 4.tl. framhaldsbolta, 5.tl. Skólahreysti 2026, 6.tl. Stjörnuhlaupið 2026 og 7.-9.tl. umsóknir um ferðastyrki íþrótta- og tómstundaráðs Garðabæjar.

Harpa Þorsteinsdóttir ræddi fundargerðina og 4.tl. framhaldsbolta.

Brynja Dan Gunnarsdóttir ræddi 4.tl. framhaldsbolta.

Guðlaugur Kristmundsson ræddi fundargerðina.

Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls að nýju og ræddi 4.tl. framhaldsbolta og fundargerðina.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2603018F

04

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 13/3 ´26.

Harpa Rós Gísladóttir ræddi 2.tl. Jazzþorpið í Garðabæ 2026.

Almar Guðmundsson ræddi fundargerðina og 2.tl. Jazzþorpið í Garðabæ 2026.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2603013F

05

Fundargerð skipulagsnefndar frá 12/3 ´26.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2602049F

06

Fundargerð skólanefndar grunnskóla frá 4/3 ´26.

Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 1.tl. íbúakönnun - þjónustukönnun Gallup 2025, 2.tl. innritun nemenda í grunnskóla 2026-2027 og 3.tl. kynning og samtal við skólastjórnendur í Álftanesskóla.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2602026F

07

Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 17/2 ´26.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2601375

08

Fundargerð stjórnar SSH frá 2/3 ´26.

Almar Guðmundsson ræddi fundargerðina, 2.tl. sérskóla á höfuðborgarsvæðinu - sóknaráætlun 2025 og 4.tl. álagsdreifing umferðar á höfuðborgarsvæðinu - sóknaráætlun 2025.

Guðlaugur Kristmundsson ræddi 5.tl. almyrkva á sólu 12. ágúst 2026.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2601508

09

Fundargerð stjórnar SHS frá 20/2 ´26.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2311400

10

Hjólreiðastefna Garðabæjar

Björg Fenger tók til máls.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og lagði fram svohljóðandi bókun:

"Hjólreiðastefna Garðabæjar 2026-2031 miðar að því að auka hlutdeild hjólreiða í Garðabæ og byggir á tillögu Garðabæjarlistans sem samþykkt var í bæjarstjórn í maí 2022. Garðabæjarlistinn óskar öllum bæjarbúum til hamingju með þessa fyrstu hjólreiðastefnu bæjarins. Hún markar kaflaskil í þágu fjölbreyttra ferðamáta í Garðabæ og við hvetjum fólk til þess að kynna sér hana vel."

Harpa Rós Gísladóttir tók til máls.

Harpa Þorsteinsdóttir tók til máls.

Björg Fenger tók til máls að nýju.

Bæjarstjórn samþykkir samhljóða Hjólreiðastefnu Garðabæjar 2026-2031.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2410186

11

Skuldabréfaútboð Garðabæjar

Almar Guðmundsson tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir að taka tilboði í lántöku að fjárhæð kr. 1.043.500.000 að nafnverði, með ávöxtunarkröfu upp á 3,78%. Markaðsvirði útgáfunnar nemur kr. 1.499.341.653. Fyrir útboðið var útistandandi í skuldabréfaflokknum GARD 11 1 að nafnverði kr. 5.190.000.000, en heildarstærð flokksins eftir útboðið verður því kr. 6.233.500.000 að nafnverði.

Lántakan er samkvæmt heimild í fjárhagsáætlun.

Málsnúmer 2512335

12

Lóð fyrir hjúkrunarheimili í Vetrarmýri

Guðlaugur Kristmundsson tók til máls og lagði fram svohljóðandi bókun:

"Viðreisn í Garðabæ fagnar því samkomulagi sem náðst hefur milli bæjarins og ríkisins um uppbyggingu hjúkrunarheimilis í Vetrarmýri. Mikilvægt er að samkomulagið haldi og að sú tímalína sem liggur undir haldi.

Uppbygging hjúkrunarheimilisins er mikilvægt skref fyrir bæjarfélagið og mun styrkja þjónustu við eldri íbúa Garðabæjar. Sérstaklega er ánægjulegt að heimilið rísi í nýju hverfi þar sem það verður hluti af samfélagi sem er að mótast.

Þannig geta íbúar hjúkrunarheimilisins orðið meðal frumbyggja í hverfinu og tekið strax þátt í að skapa líf, tengsl og brag þess samfélags sem þar mun vaxa."

Harpa Rós Gísladóttir tók til máls og lagði fram svohljóðandi bókun:

"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna þeim mikilvæga áfanga sem undirritun samkomulags um uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis í Vetrarmýri felur í sér. Um er að ræða allt að 100 rýma heimili með þjónustumiðstöð á jarðhæð þar sem meðal annars er gert ráð fyrir dagdvöl og annarri þjónustu fyrir þennan mikilvæga hóp eldri íbúa. Lífsgæðakjarninn munu efla til muna velferðarþjónustu Garðabæjar og styrkja samfélagsinnviði bæjarins en jafnframt er gert ráð fyrir húsnæði í grenndinni sem hentar eldri íbúum sem geta þá einnig nýtt sér þjónustuna sem þar verður í boði.

Nýtt hjúkrunarheimili í Vetrarmýri er liður í því að byggja upp öflugt samfélag eldra fólks í Garðabæ og endurspeglar vel þá stefnu bæjarins að setja þarfir eldra fólks í forgang. Verkefnið er jafnframt mikilvægur liður í markvissri uppbyggingu Vetrarmýrar sem fjölbreytts og öflugs bæjarhverfis með samþættingu íbúðar-, þjónustu- og atvinnustarfsemi.

Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja áherslu á að verkefnið gangi hratt og örugglega fyrir sig og að heimilið sé komið í notkun eigi síðar en á árinu 2029. Okkar leiðarljós er að gott sé að eldast í Garðabæ og að áfram sé byggð upp öflug þjónusta fyrir eldri íbúa bæjarins með markvissum og ábyrgum hætti."

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og lagði fram svohljóðandi bókun:

"Garðabæjarlistinn tekur undir bókanir bæði Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks og lýsir yfir mikilli ánægju með fyrirhugaða uppbyggingu í þágu eldra fólks í Garðabæ."

Gunnar Valur Gíslason tók til máls.

Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls.

Almar Guðmundsson tók til máls.

Bæjarstjórn staðfestir fyrirliggjandi samkomulag milli Félags- og húsnæðismálaráðuneytisisns og Garðabæjar um uppbyggingu hjúkrunarheimilis í Garðabæ fyrir allt að 100 ný rými.

Málsnúmer 2601547

13

Hjallastefnan, uppbygging á Vífilsstöðum

Almar Guðmundsson tók til máls.

Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls.

Samningur um áherslur uppbyggingar skólasamfélags Hjallastefnunnar á Vífilsstöðum er samþykktur samhljóða.

Málsnúmer 2603220

14

Endurnýjun samstarfssamnings við Umf. Stjörnuna

Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls.

Harpa Þorsteinsdóttir tók til máls og lagði fram svohljóðandi bókun:

"Bæjarfulltrúar í Garðabæjarlistanum og Viðreisn í Garðabæ vilja lýsa ánægju með að í nýjum samstarfssamningi við Stjörnuna sé sérstaklega kveðið á um að greina, móta og innleiða fjölgreinaafslátt. Við höfum í undanfarin ár lagt fram tillögur er varða innleiðingu á systkinaafslætti og fjölgreinaafslætti. Við höfum talað skýrt fyrir mikilvægi þess að börn og ungmenni hafi raunhæfar leiðir til að stunda fleiri en eina íþrótt án þess að kostnaður verði hindrun. Það er því fagnaðarefni að meirihlutinn hafi nú tekið undir þessa sýn og við teljum þetta mikilvægt skref í átt að fjölbreyttara og aðgengilegra íþróttastarfi fyrir öll börn."

Björg Fenger tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir endurnýjun samstarfssamnings og samnings um rekstur knattspyrnuvalla við UMF Stjörnuna með gildistíma til 31. desember 2028.