Nefnd um uppbyggingu hjúkrunarheimilis í Vetrarmýri.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
21. (2216). fundur
Bæjarstjóri fjallaði um undirbúning á uppbyggingu hjúkrunarheimilis í Vetrarmýri og verkefnum sem því tengjast.
Bæjarráð samþykkir að tilnefna Hörpu Rós Gísladóttur, Maríu Guðjónsdóttur og Katrínu Júlíusdóttur í spretthóp um uppbyggingu hjúkrunarheimilis og lífsgæðakjarna í Vetrarmýri.
Hópurinn hefur það hlutverk að vinna greiningu á þörfum hvað varðar starfsemi á fyrstu hæð nýs hjúkrunarheimilis ásamt því að meta möguleika á því hvort og hvernig Garðabær gæti nýtt hluta rýmisins undir starfsemi á sínum vegum. Hópurinn mun að þessu leyti vinna efni sem nýtist við gerð útboðslýsingar á húsnæði undir hjúkrunarheimili í Vetrarmýri.
Þá skal hópurinn vinna nánari útfærslur á uppbyggingu íbúða fyrir eldri íbúa í grennd við Hjúkrunarheimilið þannig að öflugur lífsgæðakjarni rísi í Vetrarmýri.
Hópurinn skal skila af sér áfangaskýrslu fyrir lok október 2026, en skili þeim hugmyndum sem lúta að útboðsferlinu í lok ágústmánaðar. Í framhaldi af útgáfu áfangaskýrslu verði metið hvort þörf sé á að hópurinn haldi áfram störfum.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
6. (976). fundur
Guðlaugur Kristmundsson tók til máls og lagði fram svohljóðandi bókun:
"Viðreisn í Garðabæ fagnar því samkomulagi sem náðst hefur milli bæjarins og ríkisins um uppbyggingu hjúkrunarheimilis í Vetrarmýri. Mikilvægt er að samkomulagið haldi og að sú tímalína sem liggur undir haldi.
Uppbygging hjúkrunarheimilisins er mikilvægt skref fyrir bæjarfélagið og mun styrkja þjónustu við eldri íbúa Garðabæjar. Sérstaklega er ánægjulegt að heimilið rísi í nýju hverfi þar sem það verður hluti af samfélagi sem er að mótast.
Þannig geta íbúar hjúkrunarheimilisins orðið meðal frumbyggja í hverfinu og tekið strax þátt í að skapa líf, tengsl og brag þess samfélags sem þar mun vaxa."
Harpa Rós Gísladóttir tók til máls og lagði fram svohljóðandi bókun:
"Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fagna þeim mikilvæga áfanga sem undirritun samkomulags um uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis í Vetrarmýri felur í sér. Um er að ræða allt að 100 rýma heimili með þjónustumiðstöð á jarðhæð þar sem meðal annars er gert ráð fyrir dagdvöl og annarri þjónustu fyrir þennan mikilvæga hóp eldri íbúa. Lífsgæðakjarninn munu efla til muna velferðarþjónustu Garðabæjar og styrkja samfélagsinnviði bæjarins en jafnframt er gert ráð fyrir húsnæði í grenndinni sem hentar eldri íbúum sem geta þá einnig nýtt sér þjónustuna sem þar verður í boði.
Nýtt hjúkrunarheimili í Vetrarmýri er liður í því að byggja upp öflugt samfélag eldra fólks í Garðabæ og endurspeglar vel þá stefnu bæjarins að setja þarfir eldra fólks í forgang. Verkefnið er jafnframt mikilvægur liður í markvissri uppbyggingu Vetrarmýrar sem fjölbreytts og öflugs bæjarhverfis með samþættingu íbúðar-, þjónustu- og atvinnustarfsemi.
Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins leggja áherslu á að verkefnið gangi hratt og örugglega fyrir sig og að heimilið sé komið í notkun eigi síðar en á árinu 2029. Okkar leiðarljós er að gott sé að eldast í Garðabæ og að áfram sé byggð upp öflug þjónusta fyrir eldri íbúa bæjarins með markvissum og ábyrgum hætti."
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og lagði fram svohljóðandi bókun:
"Garðabæjarlistinn tekur undir bókanir bæði Viðreisnar og Sjálfstæðisflokks og lýsir yfir mikilli ánægju með fyrirhugaða uppbyggingu í þágu eldra fólks í Garðabæ."
Gunnar Valur Gíslason tók til máls.
Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls.
Almar Guðmundsson tók til máls.
Bæjarstjórn staðfestir fyrirliggjandi samkomulag milli Félags- og húsnæðismálaráðuneytisisns og Garðabæjar um uppbyggingu hjúkrunarheimilis í Garðabæ fyrir allt að 100 ný rými.
Bæjarráð Garðabæjar
03
9. (2204). fundur
Bæjarstjóri gerði grein fyrir fyrirliggjandi drögum að samkomulagi milli Félags- og húsnæðismálaráðuneytisins og Garðabæjar um uppbyggingu hjúkrunarheimilis í Garðabæ fyrir allt að 100 ný rými.
Gert er ráð fyrir að nýja hjúkrunarheimili verði reist á lóð að Vetrarbraut 19, en fyrirhugað er að húsnæðið á lóðinni verði byggt fyrir milligöngu sveitarfélagsins að undangengnu útboð. Framkvæmd útboðsins verði þannig í höndum Garðabæjar en fjármögnun þess af hálfu ríkisins.
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi samkomulag og felur Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, að undirrita samkomulagið fyrir hönd Garðabæjar.
Bæjarráð Garðabæjar
04
47. (2195). fundur
Bæjarstjóri kynnti stöðu viðræðna við félags- og húsnæðismálaráðuneytið varðandi byggingu hjúkrunarheimilis í Vetrarmýri.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að útfæra samkomulag við ráðuneytið um framvindu málsins.