Beint í efni

47. (2195). fundur

23.12.2025
Bæjarráð Garðabæjar

47. (2195). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

23.12.2025

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
  • Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
  • Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2511177

01

Sunnuflöt 22 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Ásgeiri Helga Reykfjörð Gylfasyni, kt. 220182-4529, leyfi fyrir viðbyggingu við suðurhlið hússins, nýrri kjallarahæð, klæða húsið að utanverðu með dökkri álklæðningu, endurbætur og klæðningu á þakkanti ásamt innanhússbreytingum að Sunnuflöt 22.

Málsnúmer 2512335

02

Lóð fyrir hjúkrunarheimili í Vetrarmýri

Bæjarstjóri kynnti stöðu viðræðna við félags- og húsnæðismálaráðuneytið varðandi byggingu hjúkrunarheimilis í Vetrarmýri.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að útfæra samkomulag við ráðuneytið um framvindu málsins.

Málsnúmer 2512252

03

Úthlutunarreglur vegna stoðþjónustu í leikskólum Garðabæjar.

Sviðsstjóri fræðslu- og frístundasviðs kynnti drög að úthlutunarreglum um stoðþjónustu í leikskólum.

Bæjarráð vísar reglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Málsnúmer 2406794

04

Skýrsla Jafnréttisstofu - Umönnunarbilið og þjónusta sveitarfélaga.

Skýrsla Jafnréttisstofu: Umönnunarbilið og þjónusta sveitarfélaga, lögð fram.

Bæjarráð vekur athygli á ungum aldri barna við inntöku í leikskólum Garðabæjar, þar sem svokallað umönnunarbil milli fæðingarorlofs og leikskóladvalar barna er lítið eða ekkert.

Málsnúmer 2510167

05

Úrskurður um stjórnsýslukæru Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála nr. 154/2025 - Framkvæmdir við lóðamörk Fífumýri 15, dags. 10.12.25.

Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 154/2025 varðandi kæru á ákvörðun byggingarfulltrúa frá 19. september 2025, vegna byggingar bílskúrs á lóðinni Fífumýri 15 og ákvörðun byggingarfulltrúa frá 17. september 2025 um að samþykkja breytta aðaluppdrætti fyrir bílskúrinn.

Bæjarráð vísar málinu til byggingarfulltrúa og felur honum að koma til móts við þau tilmæli sem koma fram í úrskurðinum.

Málsnúmer 2512286

06

Erindi Skáksambands Íslands varðandi stuðning við Íslandsmótið í skák 2026, dags. 02.12.25.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindi um að veita stuðning við að Íslandsmót í skák 2026 verði haldið í Garðabæ.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjóra.

Málsnúmer 2512288

07

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi fyrir áramótabrennu á Álftanesi.

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að áramótabrenna verði á Álftanesi á gamlárskvöld enda verði öll tilskilin leyfi fyrir hendi.

Málsnúmer 2512309

08

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um leyfi fyrir áramótabrennu við Sjávargrund.

Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti að áramótabrenna verði við Arnarnesvog á gamlárskvöld enda verði öll tilskilin leyfi fyrir hendi.