Beint í efni

Skuldabréfaútboð Garðabæjar

Málsnúmer 2410186

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

10. (980). fundur

Almar Guðmundsson tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir að taka tilboði í lántöku að fjárhæð kr. 1.068.000.000 að nafnverði, með ávöxtunarkröfu upp á 3,95%. Markaðsvirði útgáfunnar nemur kr. 1.499.967.541.

Fyrir útboðið var útistandandi í skuldabréfaflokknum GARD 11 1 að nafnvirði KR. 6.233.500.000, en heildarstærð flokksins eftir útboðið verður því KR. 7.301.500.000 að nafnverði.

Framangreindar fjárhæðir eru í samræmi við samþykktar lántökuheimildir.

Bæjarráð Garðabæjar

02

21. (2216). fundur

Gerð grein fyrir tilboðum í lántöku. Skuldabréfaútboði Garðabæjar í skuldabréfaflokknum GARD 11 1 lauk 15. júní 2026. Heildartilboð í flokkinn voru 5 talsins og námu samtals 2.120 að nafnvirði. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tilboð samkvæmt útboðinu að fjárhæð allt að 1.068 m.kr. að nafnvirði, með ávöxtunarkröfu upp á 3,95%. Markaðsvirði útgáfunnar nemur 1.499.967.541 kr.

Fyrir útboðið var útistandandi í skuldabréfaflokknum GARD 11 1 að nafnvirði 6.233,5 m.kr., en heildarstærð flokksins eftir útboðið verður því 7.301,5 m.kr. að nafnvirði. Framangreindar fjárhæðir eru í samræmi við samþykktar lántökuheimildir.

Bæjarráð Garðabæjar

03

20. (2215). fundur

Bæjarráð samþykkir að fela Arion banka að sjá um skuldabréfaútboð á vegum bæjarins í útistandandi skuldabréfaflokkum GARD 11 1 að fjárhæð allt að kr. 1.500.000.000, í samræmi við samþykktar lántökuheimildir

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

6. (976). fundur

Almar Guðmundsson tók til máls.

Bæjarstjórn samþykkir að taka tilboði í lántöku að fjárhæð kr. 1.043.500.000 að nafnverði, með ávöxtunarkröfu upp á 3,78%. Markaðsvirði útgáfunnar nemur kr. 1.499.341.653. Fyrir útboðið var útistandandi í skuldabréfaflokknum GARD 11 1 að nafnverði kr. 5.190.000.000, en heildarstærð flokksins eftir útboðið verður því kr. 6.233.500.000 að nafnverði.

Lántakan er samkvæmt heimild í fjárhagsáætlun.

Bæjarráð Garðabæjar

05

10. (2205). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tilboðum í lántöku. Skuldabréfaútboði Garðabæjar í skuldabréfaflokknum GARD 11 1 lauk 16. mars 2026. Heildartilboð í flokkinn voru 7 talsins og námu samtals 2.273,5 m.kr. að nafnverði. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að heimila bæjarstjóra að samþykkja tilboð samkvæmt útboðinu að fjárhæð allt að 1.043,5 m.kr. að nafnverði, með ávöxtunarkröfu upp á 3,78%. Markaðsvirði útgáfunnar nemur 1.499.341.653 kr.
Fyrir útboðið var útistandandi í skuldabréfaflokknum GARD 11 1 að nafnverði 5.190 m.kr., en heildarstærð flokksins eftir útboðið verður því 6.233,5m.kr. að nafnverði. Framangreindar fjárhæðir eru í samræmi við samþykktar lántökuheimildir.

Bæjarráð Garðabæjar

06

9. (2204). fundur

Bæjarráð samþykkir að fela Arion banka að sjá um skuldabréfaútboð á vegum bæjarins í útistandandi skuldabréfaflokkum GARD 11 1 að fjárhæð allt að kr. 1.500.000.000, í samræmi við samþykktar lántökuheimildir

Bæjarstjórn Garðabæjar

07

18. (970). fundur

"Bæjarstjórn samþykkir að taka tilboði í lántöku að fjárhæð kr. 820.000.000 að nafnverði, með ávöxtunarkröfu upp á 3,82%. Markaðsvirði útgáfunnar nemur kr. 1.137.000.000. Fyrir útboðið var útistandandi í skuldabréfaflokknum GARD 11 1 að nafnverði kr. 4.370.000.000, en heildarstærð flokksins eftir útboðið verður því kr. 5.190.000.000 að nafnverði.

Lántakan er samkvæmt heimild í fjárhagsáætlun."

Samþykkt samhljóða.

Bæjarráð Garðabæjar

08

46. (2194). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tilboðum í lántöku. Skuldabréfaútboði Garðabæjar í skuldabréfaflokknum GARD 11 1 lauk 15. desember 2025. Heildartilboð í flokkinn voru 6 talsins og námu samtals 920 m.kr. að nafnverði. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að heimila bæjarstjóra að samþykkja tilboð samkvæmt útboðinu að fjárhæð allt að 820 m.kr. að nafnverði, með ávöxtunarkröfu upp á 3,82%. Markaðsvirði útgáfunnar nemur 1.137.000.000 kr.
Fyrir útboðið var útistandandi í skuldabréfaflokknum GARD 11 1 að nafnverði 4.370 m.kr., en heildarstærð flokksins eftir útboðið verður því 5.190 m.kr. að nafnverði. Framangreindar fjárhæðir eru í samræmi við samþykktar lántökuheimildir.

Bæjarráð Garðabæjar

09

45. (2193). fundur

Bæjarráð samþykkir að fela Arion banka að sjá um skuldabréfaútboð á vegum bæjarins í útistandandi skuldabréfaflokkum GARD 11 1 að fjárhæð allt að kr. 1.000.000.000, í samræmi við samþykktar lántökuheimildir

Bæjarstjórn Garðabæjar

10

8. (960). fundur

"Bæjarstjórn samþykkir að taka tilboði í lántöku að fjárhæð kr. 2.500.000.000 að nafnverði, með ávöxtunarkröfu upp á 3,9%. Markaðsvirði útgáfunnar nemur kr. 1.877.067.524. Fyrir útboðið var útistandandi í skuldabréfaflokknum GARD 11 1 að nafnverði kr. 3.00.000.000, en heildarstærð flokksins eftir útboðið verður því kr. 4.370.000.000 að nafnverði.

Lántakan er samkvæmt heimild í fjárhagsáætlun."

Samþykkt samhljóða.

Bæjarráð Garðabæjar

11

21. (2169). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tilboðum í lántöku. Skuldabréfaútboði Garðabæjar í skuldabréfaflokknum GARD 11 1 lauk 2. júní 2025. Heildartilboð í flokkinn voru 9 talsins og námu samtals 2.385 m.kr. að nafnverði. Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að heimila bæjarstjóra að samþykkja tilboð samkvæmt útboðinu að fjárhæð allt að 1.370 m.kr. að nafnverði, með ávöxtunarkröfu upp á 3,9%. Markaðsvirði útgáfunnar nemur 1.877.067.524 kr. Fyrir útboðið var útistandandi í skuldabréfaflokknum GARD 11 1 að nafnverði 3.000 m.kr., en heildarstærð flokksins eftir útboðið verður því 4.370 m.kr. að nafnverði. Framangreindar fjárhæðir eru í samræmi við samþykktar lántökuheimildir.

Bæjarráð Garðabæjar

12

20. (2168). fundur

Bæjarráð samþykkir að fela Arion banka að sjá um skuldabréfaútboð á vegum bæjarins í útistandandi skuldabréfaflokkum GARD 11 1 að fjárhæð allt að kr. 2.500.000.000, í samræmi við samþykktar lántökuheimildir.

Bæjarstjórn Garðabæjar

13

16. (949). fundur

Almar Guðmundsson tók til máls og ræddi skuldabréfaútboðið.

"Bæjarstjórn samþykkir að taka tilboði í lántöku að fjárhæð kr. 2.500.000.000 að nafnverði, með ávöxtunarkröfu upp á 3,7%. Markaðsvirði útgáfunnar nemur kr. 3.537.386.425. Fyrir útboðið var útistandandi í skuldabréfaflokknum GARD 11 1 að nafnverði kr. 500.000.000, en heildarstærð flokksins eftir útboðið verður því kr. 3.000.000.000 að nafnverði. Lántaka á B-hluta, Samveitur Garðabæjar verði kr. 3.000.000.000 af heildarfjárhæðinni í samræmi við samþykktar lántökuheimildir.

Lántakan er samkvæmt heimild í fjárhagsáætlun. Bæjarstjórn samþykkir að í tengslum við útboðið verði heimild til langtímalántöku í fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2024 hækkuð um kr. 540.000.000, úr kr. 4.500.000.000, í kr. 5.040.000.000. Viðbótarfjárhæðinni verði varið í uppgreiðslu skammtímalána fyrir sömu fjárhæð."

Samþykkt samhljóða.

Bæjarráð Garðabæjar

14

41. (2142). fundur

Á fund bæjarráðs mætti Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri og gerði grein fyrir tilboðum í lántöku.

Skuldabréfaútboði Garðabæjar í skuldabréfaflokknum GARD 11 1 lauk í 4. nóvember 2024. Heildartilboð í flokkinn námu samtals 3.600 m.kr. að nafnverði.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að heimila bæjarstjóra að samþykkja tilboð samkvæmt útboðinu að fjárhæð allt að 2.500 m.kr. að nafnverði, með ávöxtunarkröfu upp á 3,7%. Markaðsvirði útgáfunnar nemur 3.537.386.425 kr.

Fyrir útboðið var útistandandi í skuldabréfaflokknum GARD 11 1 að nafnverði 500 m.kr., en heildarstærð flokksins eftir útboðið verður því 3.000 m.kr. að nafnverði.

Lántaka á B-hluta, Samveitur Garðabæjar verði 3.000 m.kr. af heildarfjárhæðinni í samræmi við samþykktar lántökuheimildir.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að í tengslum við útboðið verði heimild til langtímalántöku í fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2024 hækkuð um 540 mkr. úr 4.500 m.kr. í 5.040 m.kr.
Viðbótarfjárhæðinni verði varið í uppgreiðslu skammtímalána fyrir sömu fjárhæð.

Bæjarráð Garðabæjar

15

38. (2139). fundur

Ólafur Bjarki Ágústsson og Kristján Óli Eiríksson frá Arion banka kynntu samantekt um skuldabréfaútgáfu Garðabæjar. Ólafur Bjarki og Kristján Óli véku af fundi að kynningu lokinni.
Bæjarráð samþykkir að leita til Arion banka að sjá um skuldabréfaútboð á vegum bæjarins og felur bæjarstjóra að ganga frá samningi við bankann um verkefnið.