16. (949). fundur
16. (949). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
07.11.2024
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Gunnar Valur Gíslason - 1. varaforseti
- Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
- Björg Fenger - bæjarfulltrúi
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - bæjarfulltrúi
- Harpa Rós Gísladóttir - varabæjarfulltrúi
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
- Guðfinnur Sigurvinsson - bæjarfulltrúi
- Ingvar Arnarson - 2. varaforseti
- Harpa Þorsteinsdóttir - varabæjarfulltrúi
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - bæjarfulltrúi
- Rakel Steinberg Sölvadóttir - varabæjarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.
Gunnar Valur Gíslason, 1. varaforseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.
Fundargerð bæjarstjórnar frá 17. október 2024 er lögð fram.
Dagskrá
Málsnúmer 2410027F
01
Fundargerð bæjarráðs frá 22/10 ´24.
Rakel Steinberg Sölvadóttir ræddi 7.tl. bréf Umf. Stjörnunnar varðandi rekstur á íþróttahúsinu Mýrinni.
Ingvar Arnarson ræddi 9.tl. svar við fyrirspurn Garðabæjarlistans um söluþóknun fasteignasala og lagði fram eftirfarandi bókun:
„Garðabæjarlistinn þakkar góðar umræður um málið í bæjarráði. Í svarinu kemur fram að greiðslur til fasteignasala nemi tæplega 58 milljónum á árunum 2021 - 2024. Stærstur hluti þessara greiðslna eru á árunum 2023 og 2024 eða 14 milljónir árið 2023 og 41 milljón árið 2024. Greiðslurnar eru nánast að öllu leyti fyrir sölu á lóðum í eigu Garðabæjar. Flest sveitarfélög sjá alfarið um sölu á lóðum í sinni eigu sjálf og teljum við í Garðarbæjarlistanum að Garðabær eigi að fara þá leið. Að okkar mati er Garðabær að greiða of hátt gjald fyrir þessa þjónustu og mikilvægt að leitað verði leiða til að lækka kostnað þegar að kemur að sölu lóða og þar af leiðandi fara betur með fjármuni Garðabæjar.
Bæjarfulltrúar Garðabæjarlistans“
Almar Guðmundsson ræddi 7.tl. bréf Umf. Stjörnunnar varðandi rekstur á íþróttahúsinu Mýrinni og 9.tl. svar við fyrirspurn Garðabæjarlistans um söluþóknun fasteignasala.
Ingvar Arnarson tók til máls að nýju og ræddi 9.tl. svar við fyrirspurn Garðabæjarlistans um söluþóknun fasteignasala.
Almar Guðmundsson tók til máls að nýju og ræddi 9.tl. svar við fyrirspurn Garðabæjarlistans um söluþóknun fasteignasala.
Fundargerðin sem er 9.tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2410036F
02
Fundargerð bæjarráðs frá 29/10 ´24.
Fundargerðin sem er 7.tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2410047F
03
Fundargerð bæjarráðs frá 5/11 ´24.
Ingvar Arnarson ræddi 7.tl. verkfallsboðun kennara í Garðaskóla.
Almar Guðmundsson ræddi 7.tl. verkfallsboðun kennara í Garðaskóla.
Fundargerðin sem er 15.tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2410021F
04
Fundargerð leikskólanefndar frá 16/10 ´24.
Sigríður Hulda Jónsdóttir tók til máls og ræddi 1. og 2.tl. Menntadaginn 2024. Óskaði hún, fyrir hönd bæjarstjórnar, Hrafnhildi Sigurðardóttur, kennara við Sjálandsskóla til hamingju með að hafa hlotið íslensku menntaverðlaunin fyrir framúrskarandi kennslu.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2410026F
05
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 24/10 ´24.
Guðfinnur Sigurvinsson ræddi 1.tl. dagskrá hausts 2024 - menningu í Garðabæ, 2.tl. Rökkvuna 2024 og 3.-5.tl. styrki til menningarstarfsemi í Garðabæ.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2410031F
06
Fundargerð skólanefndar Tónlistarskóla Garðabæjar frá 24/10 ´24.
Sigríður Hulda Jónsdóttir ræddi 1.tl. 60 ára afmælishátíð Tónlistarskóla Garðabæjar.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2410020F
07
Fundargerð umhverfisnefndar frá 16/10 ´24.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2410032F
08
Fundargerð velferðarráðs frá 23/10 ´24.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 3.tl. Vinnu og virkni fatlaðs fólks í Garðabæ og 4.tl. búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í Hnoðraholti.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2401141
09
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 28/10 ´24.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2401325
10
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 16/10 ´24.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2401135
11
Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 20/9 ´24.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2401136
12
Fundargerðir stjórnar SSH frá 21/10 og 28/10 ´24.
Harpa Þorsteinsdóttir ræddi fundargerð frá 21. október 2024, 1.tl. fyrirkomulag almenningssamgangna ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu og 3.tl. önnur mál.
Almar Guðmundsson ræddi fundargerð frá 21. október 2024, 4.tl. önnur mál og 1.tl. fyrirkomulag almenningssamgangna ríkis og sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu.
Fundargerðirnar eru lagðar fram.
Málsnúmer 2401133
13
Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 25/9 ´24.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 1.tl. drög að fjárhagsáætlun SORPU bs. fyrir árið 2025.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2401139
14
Fundargerð eigendafundar Sorpu bs. frá 25/10 ´24.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 1.tl. fjárhagsáætlanir byggðasamlaga 2025.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2401137
15
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar frá 25/10 ´24.
Ingvar Arnarson ræddi 1.tl. þróunaráætlun 2020-2024, 2.tl. Þorlákstún - úr skógræktar- og landgræðslusvæði í íbúðabyggð og 5.tl. fyrirspurn um endurskoðun vaxtamarka þéttbýlis á höfuðborgarsvæðinu.
Björg Fenger ræddi 1.tl. þróunaráætlun 2020-2024.
Ingvar Arnarson tók til máls að nýju og ræddi 1.tl. þróunaráætlun 2020-2024.
Almar Guðmundsson ræddi 1.tl. þróunaráætlun 2020-2024 og 5.tl. fyrirspurn um endurskoðun vaxtamarka þéttbýlis á höfuðborgarsvæðinu.
Fundargerðin er lögð fram.
Málsnúmer 2410390
16
Gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins 2025
Lögð fram til afgreiðslu gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins sem samþykkt var á stjórnarfundi 18. október 2024.
Bæjarstjórn samþykkir samþykktina fyrir sitt leyti.
Málsnúmer 2411104
17
Tónlistarskólinn í Garðabæ
Almar Guðmundsson kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun:
"Bæjarstjórn óskar Tónlistarskóla Garðabæjar til hamingju með 60 ára afmælið og þakkar fyrir hönd bæjarbúa fyrir öflugt starf stjórnenda, kennara, starfsfólks og nemenda í gegnum tíðina.
Bæjarstjórn samþykkir og staðfestir vilja sinn um að hafinn verði undirbúningur að hönnun á viðbyggingu Tónlistarskóla Garðabæjar við Kirkjulund á næsta ári og að framkvæmdir við stækkun á húsnæði skólans hefjist árið 2026."
Guðfinnur Sigurvinsson tók til máls.
Rakel Steinberg Sölvadóttir tók til máls.
Brynja Dan Gunnarsdóttir tók til máls.
Harpa Þorsteinsdóttir tók til máls.
Framlögð bókun er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 2410275
18
Kosning fulltrúa í undirkjörstjórnir og hverfiskjörstjórn Álftaness við kosningar til Alþingis 30. nóvember 2024.
Bæjarstjórn samþykkir að kjósa eftirfarandi aðila í 12 undirkjörstjórnir vegna kosninga til Alþingis sem fram eiga að fara laugardaginn 30. nóvember 2024.
Agnes Ýr Pétursdóttir, Eskiás 1B, Anna Ingibergsdóttir, Bæjargil 65, Anna Kristmundsdóttir, Asparholti 1, Anna Lilja Torfadóttir, Brekkubyggð 61, Anna R. Möller, Strandvegur 12, Ari Jóhannsson, Bæjargil 65, Auður Atladóttir, Holtsvegur 39, Auður Björgvinsdóttir, Hrísmóum 9, Árni Gunnar Kristjánsson, Hlíðarbyggð 9, Birta María Sigmundsdóttir, Holtsvegur 23-25, Bryndís Kristjánsdóttir, Ægisgrund 14, Brynhildur Þórðardóttir, Vinastræti 12, Daníel Arnar Magnússon, Hallakur 4A, Daníel Jósefsson, Kjarrmóar 39, Dóra Þórisdóttir, Espilundi 10, Dröfn Ágústsdóttir, Lyngmóum 7, Edda Björg Sigurðardóttir, Hraunsholtsvegi 10, Eiríkur Sigurðsson, Strandvegur 26, Elsa Rut Leifsdóttir, Birkiholti 6, Emilía Gunnarsdóttir, Vesturtún 29a, Erna Björk Ásbjörnsdóttir, Kjarrmóar 39, Guðmunda Inga Gunnarsdóttir, Strandvegur 10, Guðmundur Ingi Bjarnason, Vesturtún 42, Guðrún Ásta Lúðvíksdóttir, Maríugata 32, Guðrún Valgerður Ásgeirsdóttir, Lyngás 1C, Gunnhildur Eva Arnoddsóttir, Hagaflöt 4, Gunnsteinn Geirsson, Hagaflöt 4, Gústav Lúðvíksson, Lindarflöt 50, Hafdís Bára Kristmundsdóttir, Asparholt 5, Halla Þórisdóttir, Heiðarlundi 21, Haukur Þorsteinsson, Eskiás 1C, Herdís Jónsdóttir, Hæðarbyggð 5, Herdís Sigurbergsdóttir, Línakri 3, Hildur Benediktsdóttir, Gimli, Hjördís Jóna Gísladóttir, Hólmatúni 31, Íris Rut Erlingsdóttir, Furuási 2, Íris Rut Sigurbergsdóttir, Móaflöt 7, Katrín Halldórsdóttir, Einilundi 7, Katrín Jónína Gunnarsdóttir, Birkiholti 6, Kolbrún Sigmundsdóttir, Hofakri 3, Kristín Bjarnadóttir, Maríugata 5, Kristín Einarsdóttir, Holtsvegi 23-25, Kristín Rós Björnsdóttir, Sjávargötu 22, Lára Gísladóttir, Norðurbrú 4, Marta Ottósdóttir, Asparholti 1, Petrína Ýr Friðbjörnsdóttir, Furulundi 1, Ragnheiður Stephensen, Löngumýri 57, Rakel Einarsdóttir, Asparholti 5, Ríkey Jóna Eiríksdóttir, Hrísmóar 6, Rósanna Andrésdóttir, Dalsbyggð 17, Rúna Lísa Þráinsdóttir, Sviðholtsvör 9, Rúnar Páll Sigmundsson, Ægisgrund 13, Skarphéðinn Jónsson, Strandvegur 10, Sæunn Eiríksdóttir, Strandvegi 26, Unnur Flygenring, Grund, Urður Hafþórsdóttir, Bæjargil 86, Vala Dröfn Hauksdóttir, Móaflöt 37, Þórhildur Reinharðsdóttir, Aratún 18, Þóroddur Björgvinsson, Keldugötu 1, Þórunn Þórsdóttir, Maríugata 32
Bæjarstjórn samþykkir að kjósa eftirfarandi aðila í hverfiskjörstjórn Álftaness vegna kosninga til Alþings sem fram eiga að fara 30. nóvember 2024.
Snædís Björnsdóttir, Lyngmóum 7, Lúðvík Hjalti Jónsson, Lindarflöt 50, Guðfinna Aradóttir, Hólmatúni 8, Andrés Sigurðsson, Hólmatúni 3.
Málsnúmer 2407142
19
Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2025 (2025-2028) - fyrri umræða.
Almar Guðmundsson, bæjarstjóri, fylgdi úr hlaði frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2025-2028. Bæjarstjóri lagði fram drög að greinargerð þar sem helstu markmið og niðurstöður eru raktar nánar.
Bæjarstjóri lagði til að frumvarpinu verði vísað til síðari umræðu í bæjarstjórn.
Björg Fenger tók til máls.
Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls.
Samkvæmt frumvarpinu eru niðurstöður A og B hluta þessar (í þúsundum króna):
2025 2026 2027 2028
Tekjur: 31.901.858 34.229.083 35.933.108 37.723.027
Gjöld: 27.616.753 29.442.112 30.807.486 32.416.946
Rekstrarniðurstaða fyrir afskriftir: 4.285.105 4.786.972 5.125.662 5.306.082
Afskriftir: 1.976.925 2.013.824 2.195.156 2.356.629
Rekstrarniðurst. án fjám.tekna/gjalda: 2.308.180 2.773.148 2.930.466 2.949.452
Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) 1.839.633 1.715.975 1.654.891 1.685.896
Rekstrarniðurstaða: 468.546 1.057.173 1.275.575 1.263.557
Framkvæmdir: 4.800.000
Bæjarstjórn samþykkir að vísa frumvarpi að fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árin 2025-2028 til síðari umræðu í bæjarstjórn og frekari vinnslu í bæjarráði.