Beint í efni

20. (2168). fundur

27.05.2025
Bæjarráð Garðabæjar

20. (2168). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

27.05.2025

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Margrét Bjarnadóttir - varamaður
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
  • Harpa Þorsteinsdóttir - varamaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður

Starfsmenn

  • Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
  • Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
  • Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
  • Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
  • Ásta Sigrún Magnúsdóttir - samskiptastjóri

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Dagskrá

Málsnúmer 2410186

01

Skuldabréfaútboð Garðabæjar

Bæjarráð samþykkir að fela Arion banka að sjá um skuldabréfaútboð á vegum bæjarins í útistandandi skuldabréfaflokkum GARD 11 1 að fjárhæð allt að kr. 2.500.000.000, í samræmi við samþykktar lántökuheimildir.

Málsnúmer 2503548

02

Eskiás 7 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Framkvæmdafélaginu Eskiási hf. leyfi fyrir byggingu 2. hæða fjölbýlishúss með 17 íbúðum að Eskiási 7.

Málsnúmer 2504274

03

Vorbraut 5 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Vorbraut ehf., kt. 411123-1890, leyfi fyrir byggingu þriggja hæða 14 íbúða fjölbýlishúss byggt ofan á bílakjallara, að Vorbraut 5.

Málsnúmer 2505399

04

Opnun tilboða í verkið "Viðgerðir á steyptum gönguleiðum í Garðabæ 2025-2026".

Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Viðgerð á steyptum stéttum í Garðabæ 2025-2026":

1. Bergþór ehf., kr. 51.800.000.

2. Tinnuberg ehf., kr. 38.915.000.

3. Ljósþing ehf., kr. 39.220.000.

4. Gott verk ehf., kr. 53.280.000.

Kostnaðaráætlun var 46.600.000.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Tinnuberg ehf., að fjárhæð kr. 38.915.000. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opin-ber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Málsnúmer 2505409

05

Erindi Náttúruverndarstofnunar um tillögu að endurskoðun og stækkun friðlands Gróttu, dags. 21. maí 2025.

Lagt fram.

Málsnúmer 2412089

06

Lántaka Sorpu bs. vegna Lambhagavegar.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja fyrir hönd Garðabæjar lántöku Sorpu bs. að fjárhæð kr. 1.345.000.000 vegna uppbyggingar á endurvinnslustöð að Lamhagavegi 14. Ábyrgðarhlutafall Garðabæjar í lántökunni er 8,09%, eða alls kr. 108.766.608. Bæjarráð leggur til að bæjarstjóra verði falið f.h. Garðabæjar að undirrita öll nauðsynleg skjöl vegna lántökunnar.

Bæjarráð samþykkir jafnframt að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja fyrir hönd Garðabæjar lántöku Sorpu bs. að fjárhæð kr. 639.000.000 vegna endurfjármögnunar á láni nr. 505200687. Ábyrgðarhlutfall Garðabæjar í lántökunni er 8,09%, eða alls kr. 51.674.247. Bæjarráð leggur til að bæjarstjóra verði falið f.h. Garðabæjar að undirrita öll nauðsynleg skjöl vegna lántökunnar.

Málsnúmer 2505389

07

Umsagnarbeiðni vegna umsóknar Priksins ehf. um tímabundið áfengisleyfi vegna einkasamkvæmis í Hlöðunni við Jörfaveg.

Lögð fram beiðni Priksins ehf. um tækifærisleyfi vegna áfengisveitinga fyrir Hlöðuna, Jöfravegi við Breiðabólstjörn, 31. maí 2025. Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 2411259

08

Endurnýjun samnings við Skógræktarfélag Reykjavíkur.

Lögð fram drög að endurnýjuðum samningi milli Garðabæjar og Skógræktarfélags Reykjavíkur. Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykka fyrirliggjandi samningsdrög og fela bæjarstjóra að undirrita samninginn fyrir hönd Garðabæjar.

Málsnúmer 2505393

09

Bréf Kvenfélags Garðabæjar varðandi kaffihlaðborð í Sveinatungu á 17. júní, dags. 21. maí 2025.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindi um að hátíðarhlaðborð á 17. júní 2025 verði í Sveinatungu, fundarsal bæjarstjórnar ásamt því að vera á innitorgi á Garðatorgi. Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu og úrlausnar bæjarstjóra.

Málsnúmer 2505408

10

Ársskýrsla Landskjörstjórnar og fréttabréf.

Lagt fram.