Beint í efni

Opnun tilboða í verkið "Viðgerðir á steyptum gönguleiðum í Garðabæ 2025-2026".

Málsnúmer 2505399

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

20. (2168). fundur

Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Viðgerð á steyptum stéttum í Garðabæ 2025-2026":

1. Bergþór ehf., kr. 51.800.000.

2. Tinnuberg ehf., kr. 38.915.000.

3. Ljósþing ehf., kr. 39.220.000.

4. Gott verk ehf., kr. 53.280.000.

Kostnaðaráætlun var 46.600.000.

Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Tinnuberg ehf., að fjárhæð kr. 38.915.000. Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opin-ber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.