Beint í efni

Endurvinnslustöð við Lambhagaveg

Málsnúmer 2412089

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

8. (960). fundur

Fyrri lántaka:

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að veita einfalda ábyrgð og veðsetja til tryggingar ábyrgðinni tekjur sínar í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011,tiltryggingar láns Sorpu bs. hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 1.345.000.000,- með lokagjalddaga þann 20. febrúar 2039, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum. Nær samþykki bæjarstjórnar jafnframt til undirritunar lánasamnings og að sveitarfélagið beri þær skyldur sem þar greinir.

Er lánið tekið til framkvæmda og uppbyggingar á nýrri endurvinnslustöð á Lambhagavegi sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Ábyrgðarhlutfall Garðabæjar í lántökunni er 8,09% eða alls kr. 108.766.608.

Bæjarstjórn skuldbindur hér með sveitarfélagið, sem eiganda félagsins,til að breyta ekki ákvæði samþykkta félagsins sem leggur hömlur á eignarhald að félagið að því leyti að félagið megi ekki fara að neinu leyti til einkaaðila.

Fari svo að sveitarfélagið selji eignarhlut sinn í félaginu til annarra opinberra aðila skuldbindur sveitarfélagið sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi ábyrgð á láninu að sínum hluta.

Jafnframt er Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess, fyrir hönd Garðabæjar, að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga, sbr. framangreind, sem og til þess að móttaka, undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl sem nauðsynleg kunna að vera.

Síðari lántaka:

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að veita einfalda ábyrgð og veðsetja til tryggingar ábyrgðinni tekjur sínar í samræmi við hlutfall eignarhalds, sbr. heimild í 2. mgr. 68. gr. og 2. mgr. 69. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011,til tryggingar láns Sorpu bs. hjá Lánasjóði sveitarfélaga að höfuðstól allt að kr. 639.000.000,- með lokagjalddaga þann 20. febrúar 2039, í samræmi við skilmála að lánasamningi sem liggja fyrir á fundinum og sem sveitarstjórnin hefur kynnt sér. Ábyrgðin tekur til allra greiðslna sem og hvers kyns kostnaðar sem hlýst af vanskilum. Nær samþykki bæjarstjórnar jafnframt til undirritunar lánasamnings og að sveitarfélagið beri þær skyldur sem þar greinir.

Er lánið tekið til að endurfjármagna lán sem tekið var vegna forvinnslulínu fyrir blandað sorp frá heimilum sem felur í sér að vera verkefni sem hefur almenna efnahagslega þýðingu, sbr. 3. gr. laga um stofnun opinbers hlutafélags um Lánasjóð sveitarfélaga nr. 150/2006. Ábyrgðarhlutfall Garðabæjar í lántökunni er 8,09% eða alls kr. 51.674.247.

Bæjarstjórn skuldbindur hér með sveitarfélagið, sem eiganda félagsins,til að breyta ekki ákvæði samþykkta félagsins sem leggur hömlur á eignarhald að félagið að því leyti að félagið megi ekki fara að neinu leyti til einkaaðila.

Fari svo að sveitarfélagið selji eignarhlut sinn í félaginu til annarra opinberra aðila skuldbindur sveitarfélagið sig til að sjá til þess að jafnframt yfirtaki nýr eigandi ábyrgð á láninu að sínum hluta.

Jafnframt er Almari Guðmundssyni, bæjarstjóra, veitt fullt og ótakmarkað umboð til þess f.h. Garðabæjar að undirrita lánssamning við Lánasjóð sveitarfélaga, sbr. framangreint, sem og til þess að móttaka. undirrita og gefa út, og afhenda hvers kyns skjöl, fyrirmæli og tilkynningar sem tengjast lántöku þessari, þ.m.t. beiðni um útborgun láns.

Bæjarráð Garðabæjar

02

20. (2168). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja fyrir hönd Garðabæjar lántöku Sorpu bs. að fjárhæð kr. 1.345.000.000 vegna uppbyggingar á endurvinnslustöð að Lamhagavegi 14. Ábyrgðarhlutafall Garðabæjar í lántökunni er 8,09%, eða alls kr. 108.766.608. Bæjarráð leggur til að bæjarstjóra verði falið f.h. Garðabæjar að undirrita öll nauðsynleg skjöl vegna lántökunnar.

Bæjarráð samþykkir jafnframt að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja fyrir hönd Garðabæjar lántöku Sorpu bs. að fjárhæð kr. 639.000.000 vegna endurfjármögnunar á láni nr. 505200687. Ábyrgðarhlutfall Garðabæjar í lántökunni er 8,09%, eða alls kr. 51.674.247. Bæjarráð leggur til að bæjarstjóra verði falið f.h. Garðabæjar að undirrita öll nauðsynleg skjöl vegna lántökunnar.

Bæjarráð Garðabæjar

03

47. (2148). fundur

Málefni endurvinnslustöðva - Lambhagavegur lagt fram til kynningar.

Í erindinu kemur fram að eigendafundur Sorpu bs. hefði fyrir sitt leyti staðfest bókun stjórnar Sorpu bs. frá 6. nóvember sl. með því að undirbúin verði uppbygging nýrrar endurvinnslustöðvar við Lambhagaveg verði á grundvelli sviðmyndar 1, en endanlegri ákvörðun veðri vísað til umræðu og afgreiðslu sveitarfélaganna.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi tillögu um fjármögnun uppbyggingar nýrrar endurvinnslustöðvar. Bæjarráð áréttar jafnframt bókun eigendafundar að stjórn Sorpu bs. var hvött til þess að leita leiða til að lágmarka þá fjárhæð sem taka þarf að láni vegna framkvæmda á vegum byggðasamlagsins.