20. (2215). fundur
20. (2215). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
09.06.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Margrét Bjarnadóttir - aðalmaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Birkir Guðlaugsson
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Einar Þór Einarsson
- Kjartan Atli Kjartansson - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Svanhildur Þengilsdóttir - sviðsstjóri velferðarsviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
Málsnúmer 2410186
01
Skuldabréfaútboð Garðabæjar
Bæjarráð samþykkir að fela Arion banka að sjá um skuldabréfaútboð á vegum bæjarins í útistandandi skuldabréfaflokkum GARD 11 1 að fjárhæð allt að kr. 1.500.000.000, í samræmi við samþykktar lántökuheimildir
Málsnúmer 2604063
02
Aratún 20 - Umsókn um byggingarheimild.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Andreu Eiríksdóttur, kt. 150380-5029, leyfi fyrir viðbyggingu að Aratúni 20.
Málsnúmer 2602301
03
Dalprýði 13 - Umsókn um byggingarleyfi.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Jóni Trausta Ólafssyni, kt. 090574-5669, leyfi fyrir að setja glugga á norðurhlið hússins að Dalprýði 13.
Málsnúmer 2603416
04
Tjarnarflöt 9 - Umsókn um byggingarheimild.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Óskari Óskarssyni, kt. 260663-4459, leyfi fyrir viðbyggingu að Tjarnarflöt 9.
Málsnúmer 2604250
05
Þernunes 6 - Umsókn um byggingarheimild.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Helgu Lilju Fenger Gunnarsdóttir, kt. 180181-4319, leyfi fyrir breytingum utanhúss og á gluggum að Þernunesi 6.
Björg Fenger vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Málsnúmer 2604344
06
Fjarskiptamastur - Umsókn um byggingarheimild.
Málinu frestað.
Málsnúmer 2604150
07
Opnun tilboða í verkið - Útboð vegna Gatnagerðar í Arnarlandi.
Eftirfarandi tilboð samkvæmt gildri tilboðsskrá bárust í útboðsverkið: "Arnarland- Gatnagerð og veitulagnir":
1. Grafa og grjót ehf., kr. 792.848.876 (101,3%).
2. Loftorka Reykjavík ehf,. kr. 813.700.000 (104,0%).
3. Háfell ehf., kr. 822.219.786 (105,1%).
Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 782.306.879. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Gröfu og grjót ehf. að fjárhæð kr. 792.848.876 (101,3% af kostnaðarætlun).
Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Málsnúmer 2605190
08
Opnun tilboða í verkið - Yfirborðsmerkingar í Garðabæ 2026.
Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Yfirborðsmerkingar gatna í Garðabæ 2026":
1. Vegamál vegmerking ehf., kr. 15.489.200 (73,7%).
2. GSG ehf., kr. 13.793.500 (65,6%)
Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 21.024.200. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda GSG ehf., að fjárhæð kr. 13.793.500 (65,6% af kostnaðaráætlun).
Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Málsnúmer 2604558
09
Opnun tilboða í verkið - Nýr gervigrasvöllur jarðvinna.
Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Ásgarður, nýr knattspyrnuvöllur: Jarðvinna, yfirborðsfrágangur og lagnir":
1. Dráttarbílar vélaleiga ehf., kr. 304.828.583 (89,94%).
2. Landslagnir ehf., kr. 348.107.283 (102,71%).
3. Fagurverk ehf., kr. 358.167.600 (105,68%).
4. Bjössi ehf., kr. 365.000.000 (107,69%).
5. Gleipnir verktakar ehf., kr. 385.000.000 (113,59%).
6. Íslenskir aðalverktakar hf., kr. 399.562.678 (117,89%).
7. E. Sigurðsson ehf., kr. 424.806.173 (125,34%).
8. Stjörnugarðar ehf., kr. 431.550.010 (127,33%).
Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 338.772.569. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Dráttarbíla vélaleigu ehf., að fjárhæð kr. 304.828.583 (89,94% af kostnaðaráætlun).
Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.
Málsnúmer 2604558
10
Útboð - Ásgarður- Nýr gervigrasvöllur vallarlýsing.
Lögð fram útboðs og verklýsing vegna vallarlýsingar á nýjum gervigrasvelli við Ásgarð.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.
Málsnúmer 2606050
11
Hönnun Útboð - Skógarhverfi Fráveita áfangi 2.
Lögð fram útboðs og verklýsing vegna útboðs á veitulögnum og frágangi í Skógarhverfi, 2. áfanga.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.
Málsnúmer 2603213
12
Hönnun - Útboð - Búsetukjarni við Haustbraut.
Lögð fram útboðs og verklýsing vegna útboðs á búsetukjarna við Haustbraut 2.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.
Málsnúmer 2606074
13
Hönnun - Útboð - Vífilsstaðavegur frá hringtorgi við Spítalaveg að Elliðavatnsvegi.
Málinu frestað.
Málsnúmer 2603255
14
Niðurstaða stjórnsýslukæru ÚUA nr. UUA2603004 vegna deiliskipulags Vetrarmýrar og Smalaholts.
Lagður fram úrskurður Úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. UUA2603004, þar sem hafnað er kröfu kæranda um að ógilda þá ákvörðun bæjarstjórnar Garðabæjar frá 2. október 2025 um að samþykkja deiliskipulag Vetrarmýrar og Smalaholts.
Fylgiskjöl
Málsnúmer 2605363
15
Bréf Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu varðandi bókun frá 627. fundi stjórnar SSH - Álag í skólastarfi, ástæður og úrbætur, dags. 22.05.26.
Lögð fram skýrsla um starfsumhverfi í grunnskólum, álag, ástæður og úrbætur sem unnin var fyrir Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu. Í skýrslunni eru settar fram tillögur til úrbóta í skólastarfi með áherslu á að draga úr álagi meðal starfsfólks í grunnskólum.
Bæjarráð vísar skýrslunni til umfjöllunar í skólanefnd grunnskóla.
Málsnúmer 2605429
16
Fyrirspurn Mannréttindastofnunar Íslands um aðgengi og aðlögun málsmeðferðar, dags. 27.05.26.
Lagt fram erindi Mannréttindastofnunar Íslands varðandi leiðbeiningar um aðlögun málsmeðferðar.
Bæjarráð vísar erindinu til umfjöllunar í velferðarráði.
Málsnúmer 2605440
17
Tilkynning frá Jafnréttisstofu um landsfund um jafnréttismál sveitarfélaga.
Í tilkynningunni kemur fram að Jafnréttisstofa boðar til landsfundar um jafnréttismál sveitarfélaga í Múlabergi, Akureyri, fimmtudaginn 17. september 2026.