Beint í efni

Útboð vegna Gatnagerðar í Arnarlandi

Málsnúmer 2604150

Ferill máls

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

01

16. fundur

Lögð fram umsókn umhverfissviðs um framkvæmdarleyfi vegna gatnagerðar í Arnarlandi.

Gatnagerðin snýr að gatna- og stígagerð, lagningu fráveitu-, neysluvatns-, hitaveitu-, rafveitu- og fjarskiptalagna auk landmótunar í Arnarlandi. Lögð fram útboðsgögn frá VSB verkfræðistofu dags maí 2026. (Útboðsteikniningar og útboðs og samningsskilmálar)

Einnig er óskað eftir leyfi til efnisvinnslu á buðarhæfu efni og er gert ráð fyrir að verktaki geri sérstakar ráðstafanir til að draga úr hljóðmengun sem slík efnisvinnsla kann að valda, þ.m.t. með hljóðvörnum eftir því sem þörf krefur.

Staðsetning efnisvinnslu og efnishaugi kemur fram á skýringamynd.

Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdarleyfis fyrir ofangreindu sem eru í samræmi við framlögð gögn í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.

Bæjarráð Garðabæjar

02

20. (2215). fundur

Eftirfarandi tilboð samkvæmt gildri tilboðsskrá bárust í útboðsverkið: "Arnarland- Gatnagerð og veitulagnir":

1. Grafa og grjót ehf., kr. 792.848.876 (101,3%).

2. Loftorka Reykjavík ehf,. kr. 813.700.000 (104,0%).

3. Háfell ehf., kr. 822.219.786 (105,1%).

Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 782.306.879. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Gröfu og grjót ehf. að fjárhæð kr. 792.848.876 (101,3% af kostnaðarætlun).

Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.

Bæjarráð Garðabæjar

03

13. (2208). fundur

Lögð fram útboðs- og verklýsing vegna útboðs vegna gatnagerðar í Arnarlandi.

Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.