13. (2208). fundur
13. (2208). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi
14.04.2026
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Björg Fenger - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - varaformaður
- Hrannar Bragi Eyjólfsson - aðalmaður
- Þorbjörg Þorvaldsdóttir - aðalmaður
- Brynja Dan Gunnarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Almar Guðmundsson - bæjarstjóri
- Lúðvík Örn Steinarsson - sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
- Linda Udengård - sviðsstjóri fræðslu- og menningarsviðs
- Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
- Ágúst Þór Guðmundsson - sviðsstjóri þróunar- og þjónustusviðs
- Guðný Hrönn Antonsdóttir - samskipta- og kynningarfulltrúi
Ritari
- Lúðvík Örn Steinarsson
Dagskrá
Málsnúmer 2508513
01
Ársreikningur Garðabæjar 2025
Davíð Búi Halldórsson, löggiltur endurskoðandi, Arnór Orri Jóhannsson, löggiltur endurskoðandi, starfsmenn Enor og Lúðvík Hjalti Jónsson fjármálastjóri, mættu á fund bæjarráðs.
Davíð Búi Halldórsson, gerði grein fyrir rekstri bæjarins á árinu 2025, efnahagsreikningi í árslok og skýringum í ársreikningi. Fjallað var um lykiltölur og helstu niðurstöður.
Bæjarráð samþykkir framlagðan ársreikning Garðabæjar 2025 samkvæmt 3.mgr. 61.gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011. Ársreikningur er undirritaður af bæjastjóra og bæjarráði og vísað til afgreiðslu bæjarstjórnar. Fyrri umræða í bæjarstjórn er fyrirhuguð á fundi bæjarstjórnar 16. apríl 2026 og síðari umræða á fundi bæjarstjórnar 7. maí 2026.
Málsnúmer 2601382
02
Vorbraut 6B - Umsókn um byggingarheimild
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Íslandsturnum Sendastöðum hf., kt. 430321-1450, leyfi fyrir uppsetningu á fjarskiptamastri að Vorbraut 6B.
Málsnúmer 2010080
03
Afgreiðsla skipulagsnefndar - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 6. Garðahverfi.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. apríl 2026 varðandi tillögu að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Garðahverfis og Garðaholts og hefur verið auglýst samhliða tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahverfis.
Í tillögunni eru gerðar eftirfarandi breytingar:
Afmörkun Grænagarðs, 1.89 OP er breytt. Stækkun til vesturs, skerðing um íbúðarlóð í NV-horni.
Afmarkað stofnanasvæði 1.90 S fyrir samfélagsþjónustu/skólastarfsemi.
Afmörkun íbúðarsvæðis 1.76 Íb er breytt í samræmi við breytingu á afmörkun Grænagarðs.
Nýr tengistígur í Garðahverfi. Gönguleiðir við Garðakirkju skilgreindar sem tengistígar.
Auk þess er gerð eftirfarandi leiðrétting á aðalskipulagsuppdrætti:
Á staðfestum aðalskipulagsuppdrætti frá 2018 var svæði 1.81 M fyrir mistök einungis sýnt að hluta, svæði 1.80 var ekki sýnilegt og auk þess rangmerkt S í stað ÍÞ. Prentuð útgáfa uppdráttarins var leiðrétt nema landnotkunarmerking svæðis 1.80. Þessi atriði eru hér með færð í rétt horf og til samræmis við staðfesta greinargerð og auglýsta uppdrætti.
Athugasemdir og umsagnir gefa ekki tilefni til breytinga á tillögunni.
Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkir tillöguna sem breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 óbreytta frá auglýstri tillögu.
Málsnúmer 2601486
04
Afgreiðsla skipulagsnefndar - Birkiholt 14 - Stækkun byggingarreits - Fyrirspurn til umhverfissviðs.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. apríl 2026 varðandi fyrirspurn lóðarhafa að endaraðhúsinu Birkiholti 14 um hugmynd að útfærslu bílageymslu við norðurhlið raðhússins.
Skipulagsnefnd taldi að til greina komi að vísa tillögu þess efnis í grenndarkynningu ef að viðbygging fari ekki nær lóðarmörkum en 1 metri og að kvöð komi um gróður milli byggingarreits og lóðarmarka.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi umsókn um deiliskipulagsbreytingu til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu deiliskipulags Breiðumýrar og norðanverðs Sviðholts. Sækja þarf um deiliskipulagsbreytingu.
Málsnúmer 2505354
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar - Teistunes 1 - byggingareitur - Fyrirspurn til umhverfissviðs.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. apríl 2026 varðandi fyrirspurn um tillögu að útfærslu breytinga á einbýlishúsinu að Teistunesi 1.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi tillögu að óverulegri deiliskipulagsbreytingu til grenndarkynningar sem er í samræmi við gögn sem fylgja fyrirspurn. Sækja þarf um deiliskipulagsbreytingu. Grenndarkynna skal eigendum Kríuness 1 og 4, Súluness 3 og 5 og Þernuness 3 og 5.
Málsnúmer 2601143
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar - Vesturhraun 3 - Deiliskipulagsbreyting.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. apríl 2026 varðandi tillögu að óverulegri breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem nær til lóðarinnar Vesturhraun 3 að lokinni grenndarkynningu. Gert er ráð fyrir stækkun byggingarreits við húsgafl að sunnanverðu að götu. Einnig er gert ráð fyrir að ákvæði um vegghæð hækki úr 7,5 í 8,35 m. Tillagan er sett fram á breytingaruppdrætti og fylgja með útlitsteikningar af fyrirhugaðri viðbyggingu.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Molduhrauns.
Málsnúmer 2603397
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar - Fífumýri 3 - Viðbygging - Fyrirspurn til umhverfissviðs.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. apríl 2026 varðandi fyrirspurn lóðarhafa að Fífumýri 3 um tillögur að breytingum á einbýlishúsinu.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum í þá veru sem fyrirspurn lítur að í grenndarkynningu. Sækja þarf um byggingarleyfi og vera í samráði við byggingarfulltrúa og skipulagsstjóra um útfærslur og framsetningu grenndarkynntra gagna. Grenndarkynna skal lóðarhöfum að Fífumýri 1, 2, 4, 5 og 6 sem og Engimýri 11, 13 og 15.
Málsnúmer 2601487
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar - Suðurhraun 6 og 10 - Deiliskipulagsbreyting.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. apríl 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem nær til lóðanna Suðurhraun 6 og 10 og fylgir umsókn um deiliskipulagsbreytingu. Einnig lagt fram minnisblað lóðarhafa um samnýtingu bílastæða og tillögu að kvöð um sameiginleg afnot bílastæða milli lóða sem þinglýst yrði í kjölfar deiliskipulagsbreytingar.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
-Grunnflötur húsa verði 60% af flatarmáli lóðar í stað 50%.
-Heimilt er að hafa sameiginlega aðkomu að aðliggjandi lóðum. Þ.e. aka má yfir eina lóð til að komast að
annarri, í samræmi við þinglýstar kvaðir á útgefnum mæliblöðum.
-Heimilt er að samnýta bílastæði á aðliggjandi lóðum, þannig að bygging á lóð nr. 10 getur nýtt bílastæði sem
tilheyra lóð nr. 6, í samræmi við þinglýstar kvaðir á útgefnum mæliblöðum.
-Ákvæði um að bílastæði skulu að jafnaði vera götumegin við hús og ákvæði um bindandi byggingarlínur fellt út þar sem það er ekki viðeigandi við Suðurhraun.
Skipulagsnefnd leggur til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni:
Í grein 2.2.2. standi: Hæðarkótar á jarðhæðum eru sýndir á hæðablöðum og er hámarkshæð frá gólfplötu jarðhæða í mæni 9,8 m. (Sú hæð er til samræmis við bygginguna sem fyrir er á lóðinni. Ákvæði um hæð þakbrúnar er því fellt út)
Í grein 2.1.4 Frágangur lóða bætist við: "Breidd kvaðar um gróðurbelti innan lóðar númer 10 skal ná að húshlið þar sem að byggingarreitur færist að götu. Ef gafl sem snýr að götu verður gluggalaus skal hugað vel að útliti hans og yfirbragði t.d. með uppbroti í efnisvali, hávöxnum trjátegunum, klifurgróðri eða listaverki."
Skipulagsnefnd vísar tillögunni með ofangreindum breytingum til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Málsnúmer 2604150
09
Útboð vegna gatnagerðar í Arnarlandi.
Lögð fram útboðs- og verklýsing vegna útboðs vegna gatnagerðar í Arnarlandi.
Bæjarráð samþykkir fyrirliggjandi útboðs- og verklýsingu og felur umhverfissviði framkvæmd útboðsins fyrir hönd Garðabæjar.
Málsnúmer 2603532
10
Ályktun fulltrúafundar Skógræktarfélags Íslands, dags. 28.03.26.
Lögð fram.
Málsnúmer 2603536
11
Þjónustustefna um opinbera þjónustu ríkis og sveitarfélaga.
Lögð fram.
Málsnúmer 2604036
12
Aðalfundur Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins 2026.
Lagt fram fundarboð aðalfundar Almenningssamgangna höfuðborgarsvæðisins ohf., sem haldinn verður mánudaginn 20. apríl 2026.
Málsnúmer 2604148
13
Bréf Umboðsmanns barna varðandi sveitarstjórnarkosningar og lýðræðislega þátttöku barna, dags. 10.04.26.
Lagt fram bréf Umboðsmanns barna vegna sveitarstjórnarkosninga 2026 og lýðræðislegri þátttöku barna.
Bæjarráð vísar erindinu til úrvinnslu á fræðslu- og frístundasviði.
Málsnúmer 2603520
14
Beiðni Kvenfélags Garðabæjar varðandi aðstöðu fyrir kaffihlaðborð í Sveinatungu á 17. júní, dags. 21.03.26.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindi um að hátíðarhlaðborð á 17. júní 2026 verði í Sveinatungu, fundarsal bæjarstjórnar ásamt því að vera á innitorgi á Garðatorgi. Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu og úrlausnar bæjarstjóra.
Málsnúmer 2604118
15
Beiðni Sóknarnefndar Bessastaðasóknar um niðurfellingu fasteignagjalda 2026, dags. 07.04.26.
Bæjarráð samþykkir að veita Bessastaðasókn styrk að fjárhæð kr. 409.851 til greiðslu fasteignagjalda árið 2026.
Málsnúmer 2603525
16
Erindi Alþingis varðandi frumvarp til laga um breytingu á lögum um verndar- og orkunýtingaráætlun, 565. mál, dags 26.03.26.
Lagt fram.
Málsnúmer 2603535
17
Erindi Alþingis varðandi frumvarp til laga um stofnun atvinnuveganna, 568. mál, dags. 27.03.26.
Lagt fram.
Málsnúmer 2603533
18
Erindi Alþingis varðandi frumvarp til laga um einföldun regluverks og aukna skilvirkni eftirlits með hollustuháttum og mengunarvörnum, 582. mál, dags. 30.03.26.
Lagt fram.
Málsnúmer 2603544
19
Erindi Alþingis varðandi frumvörp til laga um lagareldi og lax og silungsveiði mál nr. 529 og 530, dags. 24.03.26.
Lagt fram.
Málsnúmer 2601351
20
Hönnun-útboð Lambamýri 2. áfangi - Frístundaþjónusta fyrir fötluð ungmenni
Eftirfarandi tilboð bárust í útboðsverkið "Félagsmiðstöð Lambamýri 1-3. Frágangur innanhúss.". Eftir yfirferð voru eftirgreindar tilboðsfjárhæðir:
1. Aðalvík ehf., kr. 79.459.659 (77%).
2. All verk ehf., kr. 90.604.541 (88%).
3. Verkás Brunnar ehf., kr. 97.622.98 (95%).
4. Þingvangur ehf., kr. 97.880.988 (95%).
5. B.Ó. Smiðir ehf., kr. 98.327.515 (95%).
6. Sérverk ehf., kr. 99.430.034 (96%).
7. Borg byggingarlausnir, kr. 102.014.968 (99%).
8. Rætur verktakar ehf., kr. 119.219.829 (116%).
9. E. Sigurðsson, ehf., kr. 132.514.453 (129%).
10. Stormsverk ehf. -
Kostnaðaráætlun verkkaupa kr. 103.039.543. Bæjarráð samþykkir að taka tilboði lægstbjóðanda Aðalvíkur ehf., að fjárhæð kr. 79.459.659, (77% af kostnaðaráætlun).
Samþykktin er með fyrirvara um að uppfylltir séu allir skilmálar útboðsins og er sviðsstjóra umhverfissviðs falin afgreiðsla málsins. Vakin er athygli á að samkvæmt 86. gr. laga um opinber innkaup nr. 120/2016 þarf að líða 5 daga biðtími frá ákvörðun um töku tilboðs til gerðar samnings. Heimilt er að skjóta ákvörðun bæjarráðs til kærunefndar útboðsmála og er kærufrestur samkvæmt 106. gr. laga um opinber innkaup 20 dagar frá því að kæranda var eða mátti vera kunnugt um ofangreinda ákvörðun.