Vesturhraun 3 - Deiliskipulagsbreyting
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
7. (977). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. apríl 2026 varðandi tillögu að óverulegri breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem nær til lóðarinnar Vesturhraun 3 að lokinni grenndarkynningu. Gert er ráð fyrir stækkun byggingarreits við húsgafl að sunnanverðu að götu. Einnig er gert ráð fyrir að ákvæði um vegghæð hækki úr 7,5 í 8,35 m. Tillagan er sett fram á breytingaruppdrætti og fylgja með útlitsteikningar af fyrirhugaðri viðbyggingu. Engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Molduhrauns.
Bæjarráð Garðabæjar
02
13. (2208). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. apríl 2026 varðandi tillögu að óverulegri breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem nær til lóðarinnar Vesturhraun 3 að lokinni grenndarkynningu. Gert er ráð fyrir stækkun byggingarreits við húsgafl að sunnanverðu að götu. Einnig er gert ráð fyrir að ákvæði um vegghæð hækki úr 7,5 í 8,35 m. Tillagan er sett fram á breytingaruppdrætti og fylgja með útlitsteikningar af fyrirhugaðri viðbyggingu.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Molduhrauns.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
7. fundur
Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem nær til lóðarinnar Vesturhraun 3 að lokinni grenndarkynningu. Gert er ráð fyrir stækkun byggingarreits við húsgafl að sunnanverðu að götu. Einnig er gert ráð fyrir að ákvæði um vegghæð hækki úr 7,5 í 8,35 m. Tillagan er sett fram á breytingaruppdrætti og fylgja með útlitsteikningar af fyrirhugaðri viðbyggingu.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Molduhrauns.
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
05
1. fundur
Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem nær til lóðarinnar Vesturhraun 3. Gert er ráð fyrir stækkun byggingarreits við húsgafl að sunnanverðu að götu. Einnig er gert ráð fyrir að ákvæði um vegghæð hækki úr 7,5 í 8,35 m. Tillagan er sett fram á breytingaruppdrætti og fylgja með útlitsteikningar af fyrirhugaðri viðbyggingu.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem tillögu að óverulegri breytingu deiliskipulags Molduhrauns í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Breytt ákvæði um vegghæð skulu eingöngu ná til þeirra stækkunar hússins sem sett er fram í umsókn um byggingarleyfi.
Grenndarkynna skal eigendum og lóðarhöfum að Vesturhrauni 1 og 5 og Suðurhrauni 3 og 12.