Beint í efni

7. fundur

10.04.2026
Skipulagsnefnd Garðabæjar

7. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

10.04.2026

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Kjartan Vilhjálmsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi
  • Ingvar Arnarson - varamaður

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1903374

01

Skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 3. Norðurnes

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 að lokinni forkynningu ásamt innkomnum ábendingum og umsögnum. Tillagan nær til Norðurness á Álftanesi.

Umhverfissvið mun funda með sérfræðingum Veðurstofunnar á næstu dögum til þess að ræða ákvæði um lágmarkshæðarlegu nýbygginga á Álftanesi sem sett er fram í aðalskipulagi.

Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Málsnúmer 1803108

02

Norðurnes Álftaness, deiliskipulag

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Norðurness að lokinni forkynningu ásamt innkomnum ábendingum og umsögnum. Breytingar hafa verið gerðar á tillögunni í kjölfar ábendinga og umsagna.

Umhverfissvið mun funda með sérfræðingum Veðurstofunnar á næstu dögum til þess að ræða ákvæði um lágmarkshæðarlegu nýbygginga á Álftanesi sem sett er fram í aðalskipulagi. Einnig er búið að boða til fundar með forsetaembættinu vegna tillögunnar.

Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Málsnúmer 2010080

03

Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 6. Garðahverfi

Lögð fram tillaga að breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 sem nær til Garðahverfis og Garðaholts og hefur verið auglýst samhliða tillögu að breytingu deiliskipulags Garðahverfis.

Í tillögunni eru gerðar eftirfarandi breytingar:

Afmörkun Grænagarðs, 1.89 OP er breytt. Stækkun til vesturs, skerðing um íbúðarlóð í NV-horni.

Afmarkað stofnanasvæði 1.90 S fyrir samfélagsþjónustu/skólastarfsemi.

Afmörkun íbúðarsvæðis 1.76 Íb er breytt í samræmi við breytingu á afmörkun Grænagarðs.

Nýr tengistígur í Garðahverfi. Gönguleiðir við Garðakirkju skilgreindar sem tengistígar.

Auk þess er gerð eftirfarandi leiðrétting á aðalskipulagsuppdrætti:

Á staðfestum aðalskipulagsuppdrætti frá 2018 var svæði 1.81 M fyrir mistök einungis sýnt að hluta, svæði 1.80 var ekki sýnilegt og auk þess rangmerkt S í stað ÍÞ. Prentuð útgáfa uppdráttarins var leiðrétt nema landnotkunarmerking svæðis 1.80. Þessi atriði eru hér með færð í rétt horf og til samræmis við staðfesta greinargerð og auglýsta uppdrætti. Á „gildandi skipulagi“ eru umræddar villur sýndar.

Athugasemdir og umsagnir lagðar fram.

Athugasemdir og umsagnir gefa ekki tilefni til breytinga á tillögunni.

Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkir tillöguna sem breytingu Aðalskipulags Garðabæjar 2016-2030 óbreytta frá auglýstri tillögu.

Málsnúmer 2010078

04

Garðahverfi. Tillaga að breytingu á deiliskipulagi Garðahverfis vegna lóðarmarka og byggingareita.

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahverfis að lokinni auglýsingu ásamt umsögnum og athugasemdum sem borist hafa. Lögð fram greining skipulagsráðgjafa á athugasemdum og umsögnum ásamt tillögu að viðbrögðum.

Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.

Málsnúmer 2601486

05

Birkiholt 14 - Stækkun byggingarreits - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa að endaraðhúsinu Birkiholti 14 um hugmynd að útfærslu bílageymslu við norðurhlið raðhússins.

Svar: Skipulagsnefnd telur að til greina komi að vísa tillögu þess efnis í grenndarkynningu ef að viðbygging fari ekki nær lóðarmörkum en 1 metri og að kvöð komi um gróður milli byggingarreits og lóðarmarka.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi umsókn um deiliskipulagsbreytingu til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu deiliskipulags Breiðumýrar og norðanverðs Sviðholts. Sækja þarf um deiliskipulagsbreytingu.

Málsnúmer 2505198

06

Móaflöt 12 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi fyrir breytingum á einbýlishúsinu á Móaflöt 12.

Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.

Málsnúmer 2603543

07

Olís Hafnarfjarðarvegi - Deiliskipulagsbreyting

Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags fyrir lóð Olís við Hafnarfjarðarveg.

Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.

Málsnúmer 2505354

08

Teistunes 1 - byggingareitur - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um tillögu að útfærslu breytinga á einbýlishúsinu að Teistunesi 1.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi tillögu að óverulegri deiliskipulagsbreytingu til grenndarkynningar sem er í samræmi við gögn sem fylgja fyrirspurn. Sækja þarf um deiliskipulagsbreytingu. Grenndarkynna skal eigendum Kríuness 1 og 4, Súluness 3 og 5 og Þernuness 3 og 5.

Málsnúmer 2603397

09

Fífumýri 3 - Viðbygging - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn lóðarhafa að Fífumýri 3 um tillögur að breytingum á einbýlishúsinu.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að skipulagsstjóri vísi umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum í þá veru sem fyrirspurn lítur að í grenndarkynningu. Sækja þarf um byggingarleyfi og vera í samráði við byggingarfulltrúa og skipulagsstjóra um útfærslur og framsetningu grenndarkynntra gagna. Grenndarkynna skal lóðarhöfum að Fífumýri 1, 2, 4, 5 og 6 sem og Engimýri 11, 13 og 15.

Kjartan Vilhjálmsson vék af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 2603010

10

Vorbraut 61 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn eigenda raðhúslengjunnar Vorbraut 53 til 61 um tillögu að breytingu á lóðarmörkum, legu stíga og Vorbrautar til samræmis við breyttar tillögur um legu Vorbrautar.

Svar: Niðurstaða skoðunar umhverfissviðs, lagnahönnuða og gatnahönnuða er því miður sú að ekki er unnt að gera breytingar á stígum og lagnaleiðum eins og tillagan hefði kallað á. Svarið er því neikvætt.

Málsnúmer 2601143

11

Vesturhraun 3 - Deiliskipulagsbreyting

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem nær til lóðarinnar Vesturhraun 3 að lokinni grenndarkynningu. Gert er ráð fyrir stækkun byggingarreits við húsgafl að sunnanverðu að götu. Einnig er gert ráð fyrir að ákvæði um vegghæð hækki úr 7,5 í 8,35 m. Tillagan er sett fram á breytingaruppdrætti og fylgja með útlitsteikningar af fyrirhugaðri viðbyggingu.

Engar athugasemdir bárust.

Tillagan skoðast því samþykkt sem óveruleg breyting deiliskipulags Molduhrauns.

Málsnúmer 2601487

12

Suðurhraun 10 - Deiliskipulagsbreyting

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem nær til lóðanna Suðurhraun 6 og 10 og fylgir umsókn um deiliskipulagsbreytingu. Einnig lagt fram minnisblað lóðarhafa um samnýtingu bílastæða og tillögu að kvöð um sameiginleg afnot bílastæða milli lóða sem þinglýst yrði í kjölfar deiliskipulagsbreytingar.

Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:

-Grunnflötur húsa verði 60% af flatarmáli lóðar í stað 50%.

-Heimilt er að hafa sameiginlega aðkomu að aðliggjandi lóðum. Þ.e. aka má yfir eina lóð til að komast að

annarri, í samræmi við þinglýstar kvaðir á útgefnum mæliblöðum.

-Heimilt er að samnýta bílastæði á aðliggjandi lóðum, þannig að bygging á lóð nr. 10 getur nýtt bílastæði sem

tilheyra lóð nr. 6, í samræmi við þinglýstar kvaðir á útgefnum mæliblöðum.

-Ákvæði um að bílastæði skulu að jafnaði vera götumegin við hús og ákvæði um bindandi byggingarlínur fellt út þar sem það er ekki viðeigandi við Suðurhraun.

Skipulagsnefnd leggur til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni:

Í grein 2.2.2. standi: Hæðarkótar á jarðhæðum eru sýndir á hæðablöðum og er hámarkshæð frá gólfplötu jarðhæða í mæni 9,8 m. (Sú hæð er til samræmis við bygginguna sem fyrir er á lóðinni. Ákvæði um hæð þakbrúnar er því fellt út)

Í grein 2.1.4 Frágangur lóða bætist við: "Breidd kvaðar um gróðurbelti innan lóðar númer 10 skal ná að húshlið þar sem að byggingarreitur færist að götu. Ef gafl sem snýr að götu verður gluggalaus skal hugað vel að útliti hans og yfirbragði t.d. með uppbroti í efnisvali, hávöxnum trjátegundum, klifurgróðri eða listaverki."

Skipulagsnefnd vísar tillögunni með ofangreindum breytingum til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 2602060

13

Stöðuleyfi fyrir gufubaðshús á Álftanesi - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Fyrirspurn vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði.