Beint í efni

Vorbraut 61 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Málsnúmer 2603010

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

7. fundur

Lögð fram fyrirspurn eigenda raðhúslengjunnar Vorbraut 53 til 61 um tillögu að breytingu á lóðarmörkum, legu stíga og Vorbrautar til samræmis við breyttar tillögur um legu Vorbrautar.
Svar: Niðurstaða skoðunar umhverfissviðs, lagnahönnuða og gatnahönnuða er því miður sú að ekki er unnt að gera breytingar á stígum og lagnaleiðum eins og tillagan hefði kallað á. Svarið er því neikvætt.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

5. fundur

Lögð fram eftirfarandi fyrirspurn lóðarhafa raðshúslengjunnar Vorbraut 49,51,53 og 55:
Lóðareigandi óskar eftir að skoðað verði í samráði við Garðabæ lóðarfrágang á horni lóðar Vorbraut 61 og að bæjarlandi. Mikill hæðarmunur er á Vorbraut 61 og niður að Vorbraut. Lítil vegalengd frá byggingarreit að lóðarmörkum. Nú liggur fyrir breytt lega á Vorbraut,þar sem hún hefur verið færð neðar í landi samkvæmt nýju skipulagi og bíður það uppá að nálgast lóðarfráganginn með nýjum hætti, þá mögulega að stækka lóðir eða skapa meira svigrúm fyrir mótaðri landslagshönnun sem skapar góða ásýnd úr suðri.
Skipulagsnefnd vísar fyrirspurn til umhverfissviðs.