Beint í efni

5. fundur

12.03.2026
Skipulagsnefnd Garðabæjar

5. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

12.03.2026

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - formaður
  • Kjartan Vilhjálmsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
  • Guðlaugur Kristmundsson - aðalmaður
  • Hlynur Elías Bæringsson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs
  • Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1803108

01

Norðurnes Álftaness, deiliskipulag

Edda Einarsdóttir arkitekt hjá Arkís kynnti valkosti við útfærslu skipulagstillagna sem mótaðir hafa verið í kjölfar ábendinga sem borist hafa í forkynningu.

Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Málsnúmer 1903374

02

Skipulag - Aðalskipulag Garðabæjar 2016-2030. Breyting 3. Norðurnes

Edda Einarsdóttir arkitekt hjá Arkís kynnti valkosti við útfærslu skipulagstillagna sem mótaðir hafa verið í kjölfar ábendinga sem borist hafa í forkynningu.

Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.

Málsnúmer 2509209

03

Umsókn um stöðuleyfi fyrir sauna hús

Lögð fram umsókn um stöðuleyfi fyrir sauna hús í landi Garðabæjar.

Hrönn Hafliðadóttir gerði grein fyrir athugun umhverfissviðs á valkostum varðandi veitingu leyfa fyrir saunahúsum.

Vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.

Málsnúmer 2603159

04

Ránargrund 2 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn siglingaklúbbsins Vogs til Garðabæjar um veitingu stöðuleyfis fyrir aðstöðuhús á lóðinni Ránargrund 2. Húsinu er ætlað að veita aðstöðu til fataskipta og kennslu sem og fyrir búnað tengdum fyrstu hjálp. Húsin samanstanda af tveimur einingum sem eru 6,1 x 2,45 að grunnfleti og 2,6 m á hæð.

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að veitt verði stöðuleyfi fyrir húsin á meðan þau uppfylla eftirfarandi skilyrði:

Grunnflötur þeirra sé 2 x 2,45 x 6,1 m2

Hæð þeirra sé að hámarki 2,6 m.

Leyfið verði veitt til 1.október nk.

Leyfið verði veitt fyrir starfsemi í tengslum við ungmennastarf siglingaklúbbsins.

Málsnúmer 2603010

05

Vorbraut 61 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram eftirfarandi fyrirspurn lóðarhafa raðshúslengjunnar Vorbraut 49,51,53 og 55:

Lóðareigandi óskar eftir að skoðað verði í samráði við Garðabæ lóðarfrágang á horni lóðar Vorbraut 61 og að bæjarlandi. Mikill hæðarmunur er á Vorbraut 61 og niður að Vorbraut. Lítil vegalengd frá byggingarreit að lóðarmörkum. Nú liggur fyrir breytt lega á Vorbraut,þar sem hún hefur verið færð neðar í landi samkvæmt nýju skipulagi og bíður það uppá að nálgast lóðarfráganginn með nýjum hætti, þá mögulega að stækka lóðir eða skapa meira svigrúm fyrir mótaðri landslagshönnun sem skapar góða ásýnd úr suðri.

Skipulagsnefnd vísar fyrirspurn til umhverfissviðs.

Málsnúmer 2602301

06

Dalprýði 13 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir nýjum glugga á norðurhlið íbúðarhússins. Innanhúsbreyting sú sem kallar á þessa útlitsbreytingu er sú að gert verður ráð fyrir svefnherbergi á þessum stað. Í deiliskipulagsgreinargerð deiliskipulags Garðahrauns segir í kafla 2.2.2. Húsagerðir:

Þó að ákvæði um nýtingahlutfall og byggingarreiti sé mjög rýmilegt, ber að taka tillit til útisvæða lóða í sólarátt og innsýnismöguleika frá öðrum húsum, auk hraunmyndana á lóðum.

Með vísan í ofangreint ákvæði vísar skipulagsnefnd umsókninni til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu deiliskipulags Garðahrauns í samræmi við 2.mgr.44.gr.skipulagslaga nr.123/2010 hvað innsýnismöguleika varðar.

Grenndarkynna skal eigendum Dalprýði 10 og 11.

Málsnúmer 2602440

07

Suðurtún 16 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn eigenda parhúshlutans Suðurtúns 16 um mögulega útfærslu á sólstofu í innskoti sem er á suðurhlið beggja parhúseininga.

Skipulag Suðurtúns sem samþykkt var árið 1999 gerir ráð fyrir ytri byggingarreit og heimild til að byggja á honum miðast við helming hliðar meginbyggingarreits. Hönnun hússins tekur mið af þessu ákvæði. Markmið deiliskipulagsins kemur fram í kafla 1.05 Megininntak, markmið og forsendur. Þar kemur fram það meginmarkmið m.a. að móta skjólgóða byggð. Hugmyndin um að heimila að byggja helming ytri byggingarreits hefur að öllum líkindum verið sú að skapa gott skjól utan húss. Með því að byggja í þessu innskoti þarf að breyta þessu ákvæði deiliskipulagsins.

Málsnúmer 2603130

08

Útholt 13-21 - Deiliskipulags breyting

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður sem nær til raðhúslengjunnar Útholt 13-21.

Fyrir breytingu eru byggingareitir endahúsa 10,5 m en miðjuhúsa 9,0 m. Tillagan gerir ráð fyrir því að allir byggingareitir verði 9,6 m. Mörk byggingareita milli húsa færast því til í

þeim tilgangi að jafna stærðir húsanna.

Skipulagsnefnd metur breytinguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2.mgr.43.gr. skipulagslaga nr.123/2010. Í samræmi við 2.ml. 3.mgr.44.gr.sömu laga er grenndarkynning felld niður.

Málsnúmer 2603150

09

Breyting á deiliskipulagi Suðurhafnar vegna Flensborgarhafnar

Skipulagsnefnd Garðabæjar gerir ekki athugasemd við tillöguna.