Beint í efni

Suðurtún 16 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Málsnúmer 2602440

Ferill máls

Skipulagsnefnd Garðabæjar

01

5. fundur

Lögð fram fyrirspurn eigenda parhúshlutans Suðurtúns 16 um mögulega útfærslu á sólstofu í innskoti sem er á suðurhlið beggja parhúseininga.
Skipulag Suðurtúns sem samþykkt var árið 1999 gerir ráð fyrir ytri byggingarreit og heimild til að byggja á honum miðast við helming hliðar meginbyggingarreits. Hönnun hússins tekur mið af þessu ákvæði. Markmið deiliskipulagsins kemur fram í kafla 1.05 Megininntak, markmið og forsendur. Þar kemur fram það meginmarkmið m.a. að móta skjólgóða byggð. Hugmyndin um að heimila að byggja helming ytri byggingarreits hefur að öllum líkindum verið sú að skapa gott skjól utan húss. Með því að byggja í þessu innskoti þarf að breyta þessu ákvæði deiliskipulagsins.