Suðurhraun 10 - Deiliskipulagsbreyting
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
01
9. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem nær til lóðanna Molduhrauns 6 og 10 að lokinni auglýsingu, engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
7. (977). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. apríl 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem nær til lóðanna Suðurhraun 6 og 10 og fylgir umsókn um deiliskipulagsbreytingu. Einnig lagt fram minnisblað lóðarhafa um samnýtingu bílastæða og tillögu að kvöð um sameiginleg afnot bílastæða milli lóða sem þinglýst yrði í kjölfar deiliskipulagsbreytingar. Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum: -Grunnflötur húsa verði 60% af flatarmáli lóðar í stað 50%. -Heimilt er að hafa sameiginlega aðkomu að aðliggjandi lóðum. Þ.e. aka má yfir eina lóð til að komast að annarri, í samræmi við þinglýstar kvaðir á útgefnum mæliblöðum. -Heimilt er að samnýta bílastæði á aðliggjandi lóðum, þannig að bygging á lóð nr. 10 getur nýtt bílastæði sem tilheyra lóð nr. 6, í samræmi við þinglýstar kvaðir á útgefnum mæliblöðum. -Ákvæði um að bílastæði skulu að jafnaði vera götumegin við hús og ákvæði um bindandi byggingarlínur fellt út þar sem það er ekki viðeigandi við Suðurhraun. Skipulagsnefnd leggur til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni: Í grein 2.2.2. standi: Hæðarkótar á jarðhæðum eru sýndir á hæðablöðum og er hámarkshæð frá gólfplötu jarðhæða í mæni 9,8 m. (Sú hæð er til samræmis við bygginguna sem fyrir er á lóðinni. Ákvæði um hæð þakbrúnar er því fellt út) Í grein 2.1.4 Frágangur lóða bætist við: "Breidd kvaðar um gróðurbelti innan lóðar númer 10 skal ná að húshlið þar sem að byggingarreitur færist að götu. Ef gafl sem snýr að götu verður gluggalaus skal hugað vel að útliti hans og yfirbragði t.d. með uppbroti í efnisvali, hávöxnum trjátegunum, klifurgróðri eða listaverki." Skipulagsnefnd vísar tillögunni með ofangreindum breytingum til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
03
13. (2208). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 10. apríl 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem nær til lóðanna Suðurhraun 6 og 10 og fylgir umsókn um deiliskipulagsbreytingu. Einnig lagt fram minnisblað lóðarhafa um samnýtingu bílastæða og tillögu að kvöð um sameiginleg afnot bílastæða milli lóða sem þinglýst yrði í kjölfar deiliskipulagsbreytingar.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
-Grunnflötur húsa verði 60% af flatarmáli lóðar í stað 50%.
-Heimilt er að hafa sameiginlega aðkomu að aðliggjandi lóðum. Þ.e. aka má yfir eina lóð til að komast að
annarri, í samræmi við þinglýstar kvaðir á útgefnum mæliblöðum.
-Heimilt er að samnýta bílastæði á aðliggjandi lóðum, þannig að bygging á lóð nr. 10 getur nýtt bílastæði sem
tilheyra lóð nr. 6, í samræmi við þinglýstar kvaðir á útgefnum mæliblöðum.
-Ákvæði um að bílastæði skulu að jafnaði vera götumegin við hús og ákvæði um bindandi byggingarlínur fellt út þar sem það er ekki viðeigandi við Suðurhraun.
Skipulagsnefnd leggur til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni:
Í grein 2.2.2. standi: Hæðarkótar á jarðhæðum eru sýndir á hæðablöðum og er hámarkshæð frá gólfplötu jarðhæða í mæni 9,8 m. (Sú hæð er til samræmis við bygginguna sem fyrir er á lóðinni. Ákvæði um hæð þakbrúnar er því fellt út)
Í grein 2.1.4 Frágangur lóða bætist við: "Breidd kvaðar um gróðurbelti innan lóðar númer 10 skal ná að húshlið þar sem að byggingarreitur færist að götu. Ef gafl sem snýr að götu verður gluggalaus skal hugað vel að útliti hans og yfirbragði t.d. með uppbroti í efnisvali, hávöxnum trjátegunum, klifurgróðri eða listaverki."
Skipulagsnefnd vísar tillögunni með ofangreindum breytingum til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
7. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem nær til lóðanna Suðurhraun 6 og 10 og fylgir umsókn um deiliskipulagsbreytingu. Einnig lagt fram minnisblað lóðarhafa um samnýtingu bílastæða og tillögu að kvöð um sameiginleg afnot bílastæða milli lóða sem þinglýst yrði í kjölfar deiliskipulagsbreytingar.
Tillagan gerir ráð fyrir eftirfarandi breytingum:
-Grunnflötur húsa verði 60% af flatarmáli lóðar í stað 50%.
-Heimilt er að hafa sameiginlega aðkomu að aðliggjandi lóðum. Þ.e. aka má yfir eina lóð til að komast að
annarri, í samræmi við þinglýstar kvaðir á útgefnum mæliblöðum.
-Heimilt er að samnýta bílastæði á aðliggjandi lóðum, þannig að bygging á lóð nr. 10 getur nýtt bílastæði sem
tilheyra lóð nr. 6, í samræmi við þinglýstar kvaðir á útgefnum mæliblöðum.
-Ákvæði um að bílastæði skulu að jafnaði vera götumegin við hús og ákvæði um bindandi byggingarlínur fellt út þar sem það er ekki viðeigandi við Suðurhraun.
Skipulagsnefnd leggur til að eftirfarandi breytingar verði gerðar á tillögunni:
Í grein 2.2.2. standi: Hæðarkótar á jarðhæðum eru sýndir á hæðablöðum og er hámarkshæð frá gólfplötu jarðhæða í mæni 9,8 m. (Sú hæð er til samræmis við bygginguna sem fyrir er á lóðinni. Ákvæði um hæð þakbrúnar er því fellt út)
Í grein 2.1.4 Frágangur lóða bætist við: "Breidd kvaðar um gróðurbelti innan lóðar númer 10 skal ná að húshlið þar sem að byggingarreitur færist að götu. Ef gafl sem snýr að götu verður gluggalaus skal hugað vel að útliti hans og yfirbragði t.d. með uppbroti í efnisvali, hávöxnum trjátegundum, klifurgróðri eða listaverki."
Skipulagsnefnd vísar tillögunni með ofangreindum breytingum til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
6. fundur
Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem nær til athafnalóðanna Suðurhrauns 8 og 10.
Vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði og skipulagsráðgjafa.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
4. fundur
Sigríður Ólafsdóttir arkitekt gerði grein fyrir umsókn að breytingu deiliskipulags Molduhrauns.
Vísað til umhverfissviðs og deiliskipulagsráðgjafa .
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
3. fundur
Máli frestað til næsta fundar en ráðgjafi boðaði forföll vegna veikinda.