9. fundur
9. fundur
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
02.07.2026
Kl. -
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri skipulagsmála
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Landakot - Stöðuleyfi gámur - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um heimild fyrir 20 ft gám á lóð í samræmi við framlögð gögn. Tilgangur stöðuleyfis er tímabundin geymsla á verkfærum, byggingarefni og búslóð á lóð vegna tiltektar og almenns viðhalds á eigninni. Gámurinn verður fjarlægður að verki loknu. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti stöðuleyfi til 12 mánaða.
02
Kjarrprýði 1 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir einbýlishúsið Kjarrprýði 1. Hámarkshæð húss fer lítilega upp fyrir leyfilega hámarkshæð og hefur hönnuður gert grein fyrir ástæðum þess. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd að við veitingu byggingarleyfis verði vikið frá kröfum 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga 123/2020 sbr. 3. mgr. sömu greinar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
03
Garðprýði 6 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi vegna einbýlis við Garðprýði 6. Skipulagsstjóri vísar til umsagnar hjá skipulagshöfundi.
04
Steinprýði 8 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
05
Melás 8 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ása og Grunda sem gerir ráð fyrir byggingarreit þar sem nú er einnar hæðar sólskáli við Melás 8.
Skipulagsstjóri metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi 44. gr. sömu laga. Í samræmi við 3. mgr. sömu greinar er tímabil grenndarkynningar stytt þar sem þeir sem grenndarkynningin nær til hafa lýst yfir með undirskrift sinni að þeir gera ekki athugasemdir.
Breytingin skoðast því samþykkt.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast í viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
06
Melás 9 - tilkynning um framkvæmdir undanþegnar byggingarleyfi
Lögð fram fyrirspurn um byggingu tveggja smáhýsa við Melás 9 og 11, 15 m² hvort.
Fjarlægð milli smáhýsis við Melás 11 frá glugga er minni en 3 m, líkt og grein 9.7.6 í byggingarreglugerð kveður á um.
Skipulagsstjóri getur því ekki fallist á smáhýsi á þessum stað við Melás 11.
Smáhýsið við Melás 9 rúmast aftur á móti innan marka byggingarreglugerðar.
07
Haukanes 25 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um vegg á lóðarmörkum við Haukanes 25. Skipulagsstjóri bendir á að skv. deiliskipulagi Arnarness er hámarkshæð veggja og girðinga sem snúa að opnum svæðum og göngustígum 1,5 m. Miðað er við hæð á lóðarmörkum.
Skipulagsstjóri bendir jafnframt lóðarhafa á að ef girðing eða veggur er hærri en ákvæði deiliskipulags kveða á um skal færa girðingu inn á lóð sem um nemur mismun frá leyfilegri hæð og raunhæð veggjar.
08
Smáraflöt 24 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um að breyta yfirbyggðu bílskýli í lokaðan bílskúr við Smáraflot 24.
Skipulagsstjóri bendir á að eftirfarandi fyrirspurn er ekki í samræmi við deiliskipulag Flata hvað varðar lengd á brunagafli bílskúrs og einnig segir í ákvæðum deiliskipulags að bílgeymsla skuli byggð í framhaldi af bílastæðum á deiliskipulagsuppdrætti. Á deiliskipulaguppdrætti eru bílastæðin 7 m en fyrirspurn felur í sér að bílastæðin verði aðeins 5 m.
Eftirfarandi fyrirspurn kallar því á breytingu deiliskipulags Flata.
09
Iðnbúð 3 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við Iðnbúð 3. Viðbygging nær út fyrir uppgefinn byggingarreit í deiliskipulagi Búða og kallar framkvæmd því á breytingu á deiliskipulagi Búða.
10
Bæjargil 3 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1
Lögð fram fyrirspurn vegna bílskúrs við Bæjargil 3. Skipulagsstjóri vísar umsókn til umsagnar hjá skipulagshöfundi.
11
Suðurhraun 10 - Deiliskipulagsbreyting
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem nær til lóðanna Molduhrauns 6 og 10 að lokinni auglýsingu, engar athugasemdir bárust. Tillagan skoðast því samþykkt. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.
12
Vorbraut 8 - 12 - Umsókn um byggingarleyfi
Lagðir fram uppfærðir aðaluppdrættir við Vorbraut 8-12 breytingin felur í sér stækkun á geymslurýmum. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við framlagða uppdrætti.
13
Keldugata 13 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lögð fram fyrirspurn um lóðarfrágang við Keldugötu 13.
Skipulagsstjóri bendir á að skv. deiliskipulagi skal girðing á lóðarmörkum við húsagötu ekki vera hærri en 90 cm. Einnig skal girðing hafa 50% gegnsæi.
Varðandi steypt bílaplan vantar lóðaruppdrátt með vatnshalla sem sýnir fram á blágrænar regnvatnslausnir innan lóðar.
14
Víkurgata 29 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi vegna geymslu við Víkurgötu 29. Þar sem geymsla er út fyrir byggingarreit kallar umsókn á breytingu deiliskipulags Urriðaholts 1.áfangi vesturhluti.