Beint í efni

Bæjargil 3 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

Málsnúmer 2606044

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

15. (985). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. október 2026 varðandi tillögu að óverulegri breytingu deiliskipulags að lokinni grenndarkynningu, vegna Bæjargils 3. Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt.

Bæjarráð Garðabæjar

02

35. (2230). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. október 2026 varðandi tillögu að óverulegri breytingu deiliskipulags að lokinni grenndarkynningu, vegna Bæjargils 3. Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

14. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt.

Bæjarstjórn Garðabæjar

04

12. (982). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

05

12. (982). fundur

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 27. ágúst 2026 varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir gerð bílageymslu á baklóð einbýlishúsalóðarinnar Bæjargils 3 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Byggður flötur byggingar samkvæmt uppdrætti er í samræmi við gildandi deiliskipulag Bæjargils og grenndarkynnta tillögu frá árinu 2008. Umsóknin gerir ráð fyrir gluggalausum kjallara undir bílageymslu og stiga á milli hæða. Nýtingarhlutfall lóðar ef tillit er tekið til flatarmáls kjallara er 0.5 en samkvæmt deiliskipulagi er hámarksnýtingarhlutfall 0.45. Skipulagsnefnd metur umsóknina sem umsókn um breytingu deiliskipulags í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Bæjargili 1, 5, 35 og 37.

Bæjarráð Garðabæjar

06

29. (2224). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 27. ágúst 2026 varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir gerð bílageymslu á baklóð einbýlishúsalóðarinnar Bæjargils 3 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.

Byggður flötur byggingar samkvæmt uppdrætti er í samræmi við gildandi deiliskipulag Bæjargils og grenndarkynnta tillögu frá árinu 2008.

Umsóknin gerir ráð fyrir gluggalausum kjallara undir bílageymslu og stiga á milli hæða.

Nýtingarhlutfall lóðar ef tillit er tekið til flatarmáls kjallara er 0.5 en samkvæmt deiliskipulagi er hámarksnýtingarhlutfall 0.45.

Skipulagsnefnd metur umsóknina sem umsókn um breytingu deiliskipulags í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga.

Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Bæjargili 1, 5, 35 og 37.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

11. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir gerð bílageymslu á baklóð einbýlishúsalóðarinnar Bæjargils 3 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar.

Byggður flötur byggingar samkvæmt uppdrætti er í samræmi við gildandi deiliskipulag Bæjargils og grenndarkynnta tillögu frá árinu 2008.

Umsóknin gerir ráð fyrir gluggalausum kjallara undir bílageymslu og stiga á milli hæða.

Nýtingarhlutfall lóðar ef tillit er tekið til flatarmáls kjallara er 0.5 en samkvæmt deiliskipulagi er hámarksnýtingarhlutfall 0.45.

Skipulagsnefnd metur umsóknina sem umsókn um breytingu deiliskipulags í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga.

Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Bæjargili 1, 5, 35 og 37.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

10. fundur

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

09

9. fundur

Lögð fram fyrirspurn vegna bílskúrs við Bæjargil 3. Skipulagsstjóri vísar umsókn til umsagnar hjá skipulagshöfundi.