19. fundur
19. fundur
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
17.11.2026
Kl. 11:00 - 12:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri skipulagsmála
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
01
Skeiðakur 2 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi við Skeiðakur 2 að undangenginni deiliskipulagsbreytingu. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti og deiliskipulagsbreytingu.
02
Dyngjugata 6 - Fyrirspurn til umhverfissviðs
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja fyrirspurn um frágang lóðarmarka við Dyngjugötu 4-6, ásamt samþykki nærliggjandi lóðarhafa. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við útfærslu á lóðarmörkum.
03
Kumlamýri 17 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir Kumlamýri 17, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Vegghæð húss en 3,65 m en deiliskipulag kveður á um að vegghæð skal ekki vera hærri en 3 m. Þar sem fordæmi er fyrir slíkum frávikum í Kumlamýri gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlögð gögn.
04
Kumlamýri 19 - Umsókn um byggingareyfi - Fl. 2
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir Kumlamýri 19, ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Vegghæð húss en 3,65 m en deiliskipulag kveður á um að vegghæð skal ekki vera hærri en 3 m. Þar sem fordæmi er fyrir slíkum frávikum í Kumlamýri gerir skipulagsstjóri ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlögð gögn.
05
Vorbraut 16 - Umsókn um stöðuleyfi
Lögð fram fyrirspurn um stöðuleyfi á vinnuskúrum í bæjarlandi sunnan við Vorbraut 16. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að byggingarfulltrúi veiti stöðuleyfi til 6 mánaða. Gæta skal þess að staðsetja skúra svo þeir skerði ekki aðgengi að lóð 16a (spennistöð) eða raðhúsalóðum við Haustbraut.
06
Bæjargil 3 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi við Bæjargil 3 sem snýr að bílskúr. Uppdrættir eru í samræmi við undangengna deiliskipulagsbreytingu. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
07
Vesturhraun 3 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 3
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við Vesturhraun 3. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.
08
Markarflöt 9 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1
Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi vegna viðbyggingar við Markarflöt 9. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.