Beint í efni

15. (985). fundur

15.10.2026
Bæjarstjórn Garðabæjar

15. (985). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í fundarsal bæjarstjórnar í Sveinatungu, Garðatorgi

15.10.2026

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Anna Ragnheiður Möller - forseti bæjarstjórnar
  • Almar Guðmundsson - bæjarfulltrúi
  • Björg Fenger - bæjarfulltrúi
  • Margrét Bjarnadóttir - bæjarfulltrúi
  • Hrannar Bragi Eyjólfsson - bæjarfulltrúi
  • Sigrún Antonsdóttir - varabæjarfulltrúi
  • Birkir Guðlaugsson - bæjarfulltrúi
  • Jón Þór Eggertsson - bæjarfulltrúi
  • Kjartan Atli Kjartansson - bæjarfulltrúi
  • Þorbjörg Þorvaldsdóttir - bæjarfulltrúi
  • Hlynur Elías Bæringsson - bæjarfulltrúi

Ritari

  • Lúðvík Örn Steinarsson

Fundurinn er hljóðritaður og streymt beint á vef bæjarins.

Anna Ragnheiður Möller, forseti bæjarstjórnar, setti fund og stjórnaði.

Fundargerð bæjarstjórnar frá 1. október 2026 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 2610002F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 6/10 ´26.

Hlynur Bæringsson ræddi 2.tl. opnunartíma sundlauga í Garðabæ og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Framsókn styður eindregið áframhaldandi sumaropnun sundlauganna á sunnudagskvöldum. Gögnin benda til þess að þjónustan sé vel nýtt og mæti eftirspurn íbúa.

Gott aðgengi að sundlaugum hefur gildi fyrir lýðheilsu. Rannsóknir sýna að regluleg sundþjálfun er heilsubætandi og benda jafnframt til jákvæðra áhrifa saunu á hjarta- og æðakerfið. Slíkt getur verið hluti af forvörnum og mögulega dregið úr þörf fyrir heilbrigðisþjónustu til lengri tíma.

Félagslega hliðin skiptir einnig máli. Sundlaugarnar eru samkomustaðir þar sem fólk hittist, spjallar og viðheldur tengslum."

Kjartan Atli Kjartansson ræddi 2.tl., opnunartíma sundlauga í Garðabæ, tók undir bókun Framsóknarflokksins og fagnaði góðri skýrslu um nýtingu lauganna í þessu verkefni.

Björg Fenger ræddi 2.tl., opnunartíma sundlauga í Garðabæ.

Kjartan Atli Kjartansson tók til máls að nýju og ræddi 2.tl., opnunartíma sundlauga í Garðabæ.

Fundargerðin sem er 12.tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 2610014F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 13/10 ´26.

Björg Fenger ræddi 7.tl. niðurstöður Spretthóps um lífsgæðakjarna og lagði fram eftirfarandi bókun fyrir hönd bæjarstjórnar:

"Bæjarstjórn Garðabæjar fagnar skýrslu Spretthóps um uppbyggingu hjúkrunarheimilis og lífsgæðakjarna í Vetrarmýri. Skýrslan er vönduð og metnaðarfull. Í henni er að finna ítarlega þarfagreiningu og skýra framtíðarsýn sem mun nýtast vel við áframhaldandi undirbúning og ákvarðanatöku um uppbyggingu svæðisins.

Með nýju hjúkrunarheimili skapast tækifæri til að byggja upp lífsgæðakjarna sem styður við virkni, sjálfstæði og vellíðan eldra fólks. Mikilvægt er að kjarninn tengist vel annarri þjónustu og þeirri uppbyggingu sem fyrirhuguð er í Vetrarmýri. Skýrslan er dýrmætt innlegg í þróun kjarnans og svæðisins í heild, með áherslu á góða þjónustu, fjölbreytt búsetuform og heilsueflandi umhverfi.

Bæjarstjórn Garðabæjar þakkar spretthópnum fyrir framúrskarandi vinnu. Hún leggur traustan grunn að næstu skrefum við mótun lífsgæðakjarna í Vetrarmýri sem eins af lykilsvæðum Garðabæjar til framtíðar."

Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 7.tl. niðurstöður Spretthóps um lífsgæðakjarna, 8.tl. innritun nemenda úr Garðabæ í framhaldsskóla, 10.tl. endurskoðun hámarkshraða í Garðabæ og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Garðabæjarlistinn fagnar því að endurskoðun hámarkshraða í Garðabæ sé nú að koma til framkvæmda, en listinn lagði fram tillögu þess efnis á síðasta kjörtímabili sem samþykkt var í bæjarstjórn. Sérstaklega ánægjulegt er að í fyrsta áfanga verði Urriðaholtsstræti skilgreint sem 30-gata, en þar höfðu foreldrar skólabarna haft áhyggjur af því að hraði yrði aukinn eftir framkvæmdatímabil."

Þá ræddi Þorbjörg 12.tl. framlag Garðabæjar til Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins 2027.

Hlynur Bæringsson ræddi 8.tl. innritun nemenda úr Garðabæ í framhaldsskóla og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Framsókn leggur áherslu á að leitað verði leiða til að sem flest ungmenni geti stundað nám í sínu nærumhverfi. Þótt ákvörðun um innritunarreglur sé á forræði skólanna, á Garðabær að eiga frumkvæði að samtali við Fjölbrautaskólann í Garðabæ um námsframboð og mögulegan forgang nemenda úr nágrenninu.

Finna þarf jafnvægi milli aðgengis að námi nálægt heimili og valfrelsis nemenda til að sækja nám sem hentar áhuga þeirra og áformum."

Þá ræddi Hlynur 12.tl. framlag Garðabæjar til Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins 2027.

Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 7.tl. niðurstöður Spretthóps um lífsgæðakjarna og 12.tl. framlag Garðabæjar til Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins 2027.

Fundargerðin sem er 15.tl. er samþykkt samhljóða.

Afgreiðsla mála.

2.3 - 2606044 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi tillögu að breytingu á deiliskipulagi Bæjargils vegna lóðarinnar við Bæjargil 3.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. október 2026 varðandi tillögu að óverulegri breytingu deiliskipulags að lokinni grenndarkynningu, vegna Bæjargils 3. Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. október 2026 varðandi tillögu að óverulegri breytingu deiliskipulags að lokinni grenndarkynningu, vegna Bæjargils 3. Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt.

2.4 - 2605038 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Akra vegna lóðarinnar við Kaldakur 6.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. október 2026 varðandi umsókn um byggingarleyfi að Kaldakri 6 til að breyta gluggum á 2 hliðum húss, setja skyggni yfir glugga á sömu hliðum ásamt að klæða hluta veggja með álgrind, sorpskýli stækkað. Að öðru leyti er hús óbreytt, stærðir breytast ekki.
Umsókn kallar á breytingu deiliskipulags Akra sem skipulagsnefnd metur sem óverulega breytingu í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Kaldakurs 3, 4, 5, 7 og 8 sem og Hvannakurs 5 og 7. Í samræmi við 3. mg. 44. gr. sömu laga er skipulagsstjóra heimilt að stytta tíma grenndarkynningar þar sem að þeir sem grenndarkynning nær til hafa með áritun sinni á uppdrátt lýst því yfir að þeir geri ekki athugasemd við breytingartillöguna.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. október 2026 varðandi umsókn um byggingarleyfi að Kaldakri 6 til að breyta gluggum á 2 hliðum húss, setja skyggni yfir glugga á sömu hliðum ásamt að klæða hluta veggja með álgrind, sorpskýli stækkað. Að öðru leyti er hús óbreytt, stærðir breytast ekki. Umsókn kallar á breytingu deiliskipulags Akra sem skipulagsnefnd metur sem óverulega breytingu í samræmi við 2.mgr.43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Kaldakurs 3, 4, 5, 7 og 8 sem og Hvannakurs 5 og 7. Í samræmi við 3. mg. 44. gr. sömu laga er skipulagsstjóra heimilt að stytta tíma grenndarkynningar þar sem að þeir sem grenndarkynning nær til hafa með áritun sinni á uppdrátt lýst því yfir að þeir geri ekki athugasemd við breytingartillöguna.

2.5 - 2607139 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Akra vegna lóðarinnar við Skeiðakur 2.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. október 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Akra vegna Skeiðakurs 2 sem gerir ráð fyrir nýtingu á gluggalausum kjallararýmum og útitröppu að Skeiðakri 2 að lokinni grenndarkynningu.
Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. október 2026 varðandi tillögu að breytingu deiliskipulags Akra vegna Skeiðakurs 2 sem gerir ráð fyrir nýtingu á gluggalausum kjallararýmum og útitröppu að Skeiðakri 2 að lokinni grenndarkynningu. Engar athugasemdir bárust og skoðast tillagan því samþykkt.

2.6 - 2610057 - Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hnoðraholt norður vegna lóðanna við Vorbraut 8-12.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. október 2026 varðandi umsókn um deiliskipulagsbreytingu Hnoðraholts norður sem nær til svæðis í götu norðan við fjölbýlishúsalóðirnar Vorbraut 8, 10 og 12. Gert er ráð fyrir lóð fyrir djúpgáma við götu þar sem deiliskipulag gerir ráð fyrir tveimur bílastæðum samhliða götu. Tillagan gerir ráð fyrir því að tvö bílastæði verði innan lóðar fyrir þau stæði sem víkja við götu.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Vorbrautar 9, 11, 13, 14 og 15.

Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 8. október 2026 varðandi umsókn um deiliskipulagsbreytingu Hnoðraholts norður sem nær til svæðis í götu norðan við fjölbýlishúsalóðirnar Vorbraut 8, 10 og 12. Gert er ráð fyrir lóð fyrir djúpgáma við götu þar sem deiliskipulag gerir ráð fyrir tveimur bílastæðum samhliða götu. Tillagan gerir ráð fyrir því að tvö bílastæði verði innan lóðar fyrir þau stæði sem víkja við götu. Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu deiliskipulags Hnoðraholts norður í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum Vorbrautar 9, 11, 13, 14 og 15.

Málsnúmer 2610011F

03

Fundargerð íþrótta- og tómstundaráðs frá 8/10 ´26.

Birkir Guðlaugsson ræddi 1.tl. Ungmennahús Garðabæjar.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir ræddi 1.tl. Ungmennahús Garðabæjar.

Hrannar Bragi Eyjólfsson ræddi 1.tl. Ungmennahús Garðabæjar og fundargerðina.

Jón Þór Eggertsson ræddi 2.tl. forvarnir - Dale Carnegie námskeið.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2610005F

04

Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 6/10 ´26.

Almar Guðmundsson ræddi 9.tl. Barnamenningarhátíð Garðabæjar 2026.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2610006F

05

Fundargerð skipulagsnefndar frá 8/10 ´26.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2610004F

06

Fundargerð skólanefndar frá 7/10 ´26.

Margrét Bjarnadóttir ræddi 1.tl. starfsáætlanir grunnskóla 2026-2027, 2.tl. innritun nemenda úr Garðabæ í framhaldsskóla, 3.tl. Menntadagur leik- og grunnskóla 2026, 4.tl. íbúafundur um skólamál og 5.tl. viðmið um skólasókn í grunnskólum Garðabæjar.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2610021F

07

Fundargerð ungmennaráðs frá 7/10 ´26.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2602076

08

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 28/9 ´26.

Almar Guðmundsson ræddi 1.tl. verkefni sveitarfélaga sem standa eftir. Áfangaskýrsla verkefnahóps kynnt og 2.tl. niðurlagning heilbrigðisnefndar og verkefni því tengt, uppsagnir starfsfólks, skil á gögnum til Þjóðskjalasafns o.fl.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2610554

09

Tillaga Garðabæjarlistans um aðgengi allra barna að íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi tillögu:

"Tillaga Garðabæjarlistans um aðgengi allra barna og ungmenna að íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi.

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að fela fræðslu- og frístundasviði að kortleggja þátttöku barna og ungmenna í Garðabæ í skipulögðu íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi (þ.m.t. tónlistarnámi) eftir aldri, kyni og út frá eftirtöldum breytum eftir því sem kostur er:

a. Fötluð börn og ungmenni, þ.m.t. einhverf börn

b. Hinsegin börn og ungmenni

c. Börn og ungmenni með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn

Afurð kortlagningarinnar verði skýrsla sem verði tekin til umfjöllunar í íþrótta- og tómstundaráði, velferðarráði og skólanefnd grunnskóla."

Greinargerð:

Þátttaka barna og ungmenna í skipulögðu íþrótta-, tómstunda-, og æskulýðsstarfi er mikilvægur hluti af félagslegu umhverfi þeirra og getur skapað vettvang fyrir vináttu, virkni og þátttöku í samfélaginu. Þá er ótalið forvarnargildi skipulagðs starfs. Garðabær styður nú þegar við þátttöku barna með ýmsum hætti, meðal annars með hvatapeningum fyrir öll börn á aldrinum 5-18 ára, sem árið 2026 nema 67.000 krónum á barn og má meðal annars nýta í íþrótta-, æskulýðs- og tónlistarnám - auk viðbótarhvatapeninga upp á 15.000 krónur fyrir tekjulægri heimili. Til þess að unnt sé að meta hvort þau úrræði og sá stuðningur sem sveitarfélagið veitir nái jafnt til allra barna er mikilvægt að hafa betri yfirsýn yfir þátttöku ólíkra hópa. Markmið tillögunnar er því ekki að gefa sér fyrirfram að tilteknir hópar standi verr, heldur að afla upplýsinga sem gera sveitarfélaginu kleift að greina hvort munur sé á þátttöku, hvaða hindranir kunni að vera til staðar og hvort tilefni sé til sérstakra aðgerða.

Sérstaklega er lagt til að horft verði til þátttöku fatlaðra barna og ungmenna, hinsegin barna og ungmenna og barna með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn. Í stefnu Garðabæjarlistans er lögð áhersla á að auka þátttöku þeirra barna og ungmenna sem síður taka þátt í skipulögðu starfi og að styðja íþrótta- og frístundastarf við að þróa inngildandi starfshætti.

Kortlagningin getur jafnframt gefið upplýsingar um hvort aðrar hindranir hafi áhrif á þátttöku, svo sem kostnaður, aðgengi, samgöngur, upplýsingagjöf, framboð starfsemi eða þörf fyrir sérstakan stuðning. Slík þekking getur nýst við stefnumótun, gerð þjónustusamninga við félög, þróun hvatapeningakerfisins og ákvarðanir um frekari stuðning við íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarf.

Mikilvægt er að niðurstöður kortlagningarinnar verði teknar til umræðu þvert á málaflokka. Því er lagt til að skýrslan verði lögð fyrir íþrótta- og tómstundaráð, velferðarráð og skólanefnd grunnskóla, með það að markmiði að niðurstöðurnar geti orðið grundvöllur frekari ákvarðana og aðgerða til að stuðla að jöfnum tækifærum barna og ungmenna.

Birkir Guðlaugsson tók til máls og lagði til breytingu á tillögunni:

"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að fela fræðslu- og frístundasviði að efla enn frekar kortlagningu á þátttöku barna og ungmenna í Garðabæ í skipulögðu íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi, þ.m.t. tónlistarnámi.

Til viðbótar núverandi greining á nýtingu hvatapeninga þar sem greint er þátttaka eftir kyni og aldri verði horft til þátttöku barna og ungmenna í viðkvæmri stöðu, t.d. fötluð börn og ungmenni, hinsegin börn og ungmenni og börn og ungmenni með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn og þeirra þátta sem kunna að hafa áhrif á aðgengi þeirra og þátttöku. Við þá vinnu verði byggt á niðurstöðum Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar og öðrum fyrirliggjandi gögnum eftir því sem við á.

Markmiðið verði að greina hvort tilteknir hópar barna og ungmenna taki síður þátt í skipulögðu íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi og hvort ástæða sé til að grípa til sérstakra aðgerða til að stuðla að jafnara aðgengi og aukinni þátttöku.

Niðurstöður verði teknar til umfjöllunar í íþrótta- og tómstundaráði, velferðarráði og skólanefnd grunnskóla."

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls að nýju.

Björg Fenger tók til máls.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls að nýju.

Hlynur Bæringsson tók til máls.

Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls.

Björg Fenger tók til máls að nýju.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls að nýju.

Almar Guðmundsson tók til máls.

Kjartan Atli Kjartansson tók til máls.

Birkir Guðlaugsson tók til máls að nýju.

Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls að nýju og lagði til orðalagsbreytingu að framkominni breytingatillögu.

Almar Guðmundsson tók til máls að nýju og lagði til að orðalagsbreyting yrði færð inn í fyrirliggjandi breytingatillögu.

Kjartan Atli Kjartansson tók til máls að nýju.

Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi breytingatillögu og að vísa málinu til fræðslu- og frístundasviðs.

Málsnúmer 2601508

10

Fundargerð stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins frá 2/10 ´26.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2610095

11

Gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins fyrir árið 2027.

Lögð fram til afgreiðslu gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins sem samþykkt var á stjórnarfundi 2. október 2026.

Bæjarstjórn samþykkir samþykktina fyrir sitt leyti.

Málsnúmer 2601374

12

Fundargerð eigendafundar Sorpu bs. frá 5/10 ´26.

Fundargerðin er lögð fram.

Málsnúmer 2602305

13

Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 13/10 ´26.

Fundargerðin er lögð fram.