Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 6/10 ´26.

Málsnúmer 2610002F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

15. (985). fundur

Hlynur Bæringsson ræddi 2.tl. opnunartíma sundlauga í Garðabæ og lagði fram eftirfarandi bókun:

"Framsókn styður eindregið áframhaldandi sumaropnun sundlauganna á sunnudagskvöldum. Gögnin benda til þess að þjónustan sé vel nýtt og mæti eftirspurn íbúa.

Gott aðgengi að sundlaugum hefur gildi fyrir lýðheilsu. Rannsóknir sýna að regluleg sundþjálfun er heilsubætandi og benda jafnframt til jákvæðra áhrifa saunu á hjarta- og æðakerfið. Slíkt getur verið hluti af forvörnum og mögulega dregið úr þörf fyrir heilbrigðisþjónustu til lengri tíma.

Félagslega hliðin skiptir einnig máli. Sundlaugarnar eru samkomustaðir þar sem fólk hittist, spjallar og viðheldur tengslum."

Kjartan Atli Kjartansson ræddi 2.tl., opnunartíma sundlauga í Garðabæ, tók undir bókun Framsóknarflokksins og fagnaði góðri skýrslu um nýtingu lauganna í þessu verkefni.

Björg Fenger ræddi 2.tl., opnunartíma sundlauga í Garðabæ.

Kjartan Atli Kjartansson tók til máls að nýju og ræddi 2.tl., opnunartíma sundlauga í Garðabæ.

Fundargerðin sem er 12.tl. er samþykkt samhljóða.