Tillaga Garðabæjarlistans um aðgengi allra barna að íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
15. (985). fundur
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls og lagði fram eftirfarandi tillögu:
"Tillaga Garðabæjarlistans um aðgengi allra barna og ungmenna að íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi.
Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að fela fræðslu- og frístundasviði að kortleggja þátttöku barna og ungmenna í Garðabæ í skipulögðu íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi (þ.m.t. tónlistarnámi) eftir aldri, kyni og út frá eftirtöldum breytum eftir því sem kostur er:
a. Fötluð börn og ungmenni, þ.m.t. einhverf börn
b. Hinsegin börn og ungmenni
c. Börn og ungmenni með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn
Afurð kortlagningarinnar verði skýrsla sem verði tekin til umfjöllunar í íþrótta- og tómstundaráði, velferðarráði og skólanefnd grunnskóla."
Greinargerð:
Þátttaka barna og ungmenna í skipulögðu íþrótta-, tómstunda-, og æskulýðsstarfi er mikilvægur hluti af félagslegu umhverfi þeirra og getur skapað vettvang fyrir vináttu, virkni og þátttöku í samfélaginu. Þá er ótalið forvarnargildi skipulagðs starfs. Garðabær styður nú þegar við þátttöku barna með ýmsum hætti, meðal annars með hvatapeningum fyrir öll börn á aldrinum 5-18 ára, sem árið 2026 nema 67.000 krónum á barn og má meðal annars nýta í íþrótta-, æskulýðs- og tónlistarnám - auk viðbótarhvatapeninga upp á 15.000 krónur fyrir tekjulægri heimili. Til þess að unnt sé að meta hvort þau úrræði og sá stuðningur sem sveitarfélagið veitir nái jafnt til allra barna er mikilvægt að hafa betri yfirsýn yfir þátttöku ólíkra hópa. Markmið tillögunnar er því ekki að gefa sér fyrirfram að tilteknir hópar standi verr, heldur að afla upplýsinga sem gera sveitarfélaginu kleift að greina hvort munur sé á þátttöku, hvaða hindranir kunni að vera til staðar og hvort tilefni sé til sérstakra aðgerða.
Sérstaklega er lagt til að horft verði til þátttöku fatlaðra barna og ungmenna, hinsegin barna og ungmenna og barna með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn. Í stefnu Garðabæjarlistans er lögð áhersla á að auka þátttöku þeirra barna og ungmenna sem síður taka þátt í skipulögðu starfi og að styðja íþrótta- og frístundastarf við að þróa inngildandi starfshætti.
Kortlagningin getur jafnframt gefið upplýsingar um hvort aðrar hindranir hafi áhrif á þátttöku, svo sem kostnaður, aðgengi, samgöngur, upplýsingagjöf, framboð starfsemi eða þörf fyrir sérstakan stuðning. Slík þekking getur nýst við stefnumótun, gerð þjónustusamninga við félög, þróun hvatapeningakerfisins og ákvarðanir um frekari stuðning við íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarf.
Mikilvægt er að niðurstöður kortlagningarinnar verði teknar til umræðu þvert á málaflokka. Því er lagt til að skýrslan verði lögð fyrir íþrótta- og tómstundaráð, velferðarráð og skólanefnd grunnskóla, með það að markmiði að niðurstöðurnar geti orðið grundvöllur frekari ákvarðana og aðgerða til að stuðla að jöfnum tækifærum barna og ungmenna.
Birkir Guðlaugsson tók til máls og lagði til breytingu á tillögunni:
"Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að fela fræðslu- og frístundasviði að efla enn frekar kortlagningu á þátttöku barna og ungmenna í Garðabæ í skipulögðu íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi, þ.m.t. tónlistarnámi.
Til viðbótar núverandi greining á nýtingu hvatapeninga þar sem greint er þátttaka eftir kyni og aldri verði horft til þátttöku barna og ungmenna í viðkvæmri stöðu, t.d. fötluð börn og ungmenni, hinsegin börn og ungmenni og börn og ungmenni með fjölbreyttan menningar- og tungumálabakgrunn og þeirra þátta sem kunna að hafa áhrif á aðgengi þeirra og þátttöku. Við þá vinnu verði byggt á niðurstöðum Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar og öðrum fyrirliggjandi gögnum eftir því sem við á.
Markmiðið verði að greina hvort tilteknir hópar barna og ungmenna taki síður þátt í skipulögðu íþrótta-, tómstunda- og æskulýðsstarfi og hvort ástæða sé til að grípa til sérstakra aðgerða til að stuðla að jafnara aðgengi og aukinni þátttöku.
Niðurstöður verði teknar til umfjöllunar í íþrótta- og tómstundaráði, velferðarráði og skólanefnd grunnskóla."
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls að nýju.
Björg Fenger tók til máls.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls að nýju.
Hlynur Bæringsson tók til máls.
Hrannar Bragi Eyjólfsson tók til máls.
Björg Fenger tók til máls að nýju.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls að nýju.
Almar Guðmundsson tók til máls.
Kjartan Atli Kjartansson tók til máls.
Birkir Guðlaugsson tók til máls að nýju.
Þorbjörg Þorvaldsdóttir tók til máls að nýju og lagði til orðalagsbreytingu að framkominni breytingatillögu.
Almar Guðmundsson tók til máls að nýju og lagði til að orðalagsbreyting yrði færð inn í fyrirliggjandi breytingatillögu.
Kjartan Atli Kjartansson tók til máls að nýju.
Bæjarstjórn samþykkir fyrirliggjandi breytingatillögu og að vísa málinu til fræðslu- og frístundasviðs.