Beint í efni

10. fundur

13.08.2026
Skipulagsnefnd Garðabæjar

10. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í Sveinatungu, Garðatorgi

13.08.2026

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Björg Fenger - aðalmaður
  • Ásgeir Sigurður Ágústsson - aðalmaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Agla Eir Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
  • Einar Þór Einarsson - aðalmaður
  • Guðjón Pétur Lýðsson - áheyrnarfulltrúi
  • Kjartan Atli Kjartansson - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
  • Guðbjörg Brá Gísladóttir - sviðsstjóri umhverfissviðs

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2607298

01

Borgarás 10 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1

Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarheimild fyrir breytingar á íbúðarhúsinu að Borgarási 10 sem gerir ráð fyrir útitröppum við norðvesturgafl hússins.

Skipulagsnefnd metur umsóknina sem óverulega breyting deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásar) sem gerir ráð fyrir stækkuðum byggingarreit sem nemur flatarmáli útitröppu. Þar sem að deiliskipulagsuppdráttur Hraunsholts vestra sýnir útlínur húsa að Borgarási 10 og 12 lýtur nefndin svo á að um ígildi byggingarreits sé að ræða. Útbúa skal breytingaruppdrátt deiliskipulags sem sýnir stækkaðan byggingarreit sem nemur útlínum hússins til norðvestur auk útitröppu eins og umsóknaruppdrættir sýna.

Skipulagsnefnd vísar umsókninni til grenndarkynningar sem óverulegri deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 2.mgr, 43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Borgarási 4,6,8 og 12 og Melási 7,9 og 11.

Málsnúmer 2605411

02

Teistunes 1 - Deiliskipulagsbreyting

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Arnarness að lokinni grenndarkynningu. 4 erindi með athugasemdum hafa borist. Tillögu og athugasemdum vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði. Skipulagsnefnd óskar eftir því að ítarlegri gögn verði send þeim sem grenndarkynning nær til þannig að viðkomandi aðilar geti betur áttað sig á umfangi tillögunnar. Veita skal 4 vikna frest til athugasemda frá því að gögn berast.

Málsnúmer 2405208

03

Spilda A úr landi Grundar - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2

Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi sem gerir ráð fyrir breytingum á byggingum og starfsemi í útihúsum á Spildu A í landi Grundar við austanverða Breiðabólsstaðatjörn að lokinni grenndarkynningu.

5 erindi með athugasemdum hafa borist og þau lögð fram.

Uppdráttum og athugasemdum vísað til umhverfissviðs til úrvinnslu.

Málsnúmer 2608047

04

Örnámskeið - Skipulagsnefnd

Hrafnhildur Brynjólfsdóttir skipulagsfræðingur M.Sc. hjá Eflu kynnti nefndarmönnum samantekt um viðfangsefni skipulagsnefnda sem samanstanda m.a. af mótun skipulagstillagna, skipulagsferli, umhverfismati áætlana og öðrum áskorunum.

Málsnúmer 2607023F

05

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 12

5.2 - 2607241 - Vetrarbraut 19, dsk breyting stærð lóðar

Málsnúmer 2607014F

06

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 11

6.1 - 2604571 - Steinprýði 6 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2607007F

07

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 10

7.2 - 2606363 - Garðprýði 6 - Umsókn um byggingar-leyfi - Fl. 2

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2606050F

08

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 9

8.1 - 2606006 - Landakot - Stöðuleyfi gámur - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Fylgiskjöl

8.10 - 2606044 - Bæjargil 3 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

Fylgiskjöl

8.11 - 2601487 - Suðurhraun 10 - Deiliskipulagsbreyting

Fylgiskjöl

8.12 - 2502253 - Vorbraut 8 - 12 - Umsókn um byggingarleyfi

Fylgiskjöl

8.13 - 2606212 - Keldugata 13 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Fylgiskjöl

8.14 - 2606258 - Víkurgata 29 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2

Fylgiskjöl

8.3 - 2606363 - Garðprýði 6 - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 2

Fylgiskjöl

8.4 - 2605452 - Steinprýði 8 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2

Fylgiskjöl

8.7 - 2606634 - Haukanes 25 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Fylgiskjöl

8.8 - 2606355 - Smáraflöt 24 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Fylgiskjöl

8.9 - 2606198 - Iðnbúð 3 - Umsókn um byggingarleyfi - Flokkur 2

Fylgiskjöl

Málsnúmer 2608004F

09

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra - 13

9.1 - 2608066 - Framkvæmdarleyfi - Arnarnesvegur einhalla hraðahindrun