Borgarás 10 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1
Ferill máls
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra
01
18. fundur
Lögð fram endurbætt tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásar) sem nær til lóðarinnar Borgarás 10.
Tillagan er sett fram á tveimur uppdráttum, annarsvegar breytingaruppdrætti deiliskipulags og skýringaruppdrætti sem sýnir útlit byggingar til vesturs, norðurs og suðurs og grunnmyndir neðri hæðar og efri hæðar sem eru í samræmi við aðaluppdrætti sem fylgja umsókn um byggingarleyfi.
Á breytingaruppdrætti er gert ráð fyrir byggingarreit við vesturgafl hússins og innan hans verða útitröppur fyrir aðgengi að íbúð á efri hæð heimilaðar. Stækkaður byggingarreitur nær einnig til þess hluta hússins sem er utan byggingarreits að vestanverðu.
Auk þess kemur eftirfarandi fram á uppdrætti: „Ef nústandandi hús verður fjarlægt skal nýbygging rísa innan byggingarreits eins og hann kemur fram á þessum uppdrætti fyrir breytingu og á mæliblaði 22.5774. útgefnu í janúar 2024“.
Skipulagsstjóri vísar umsókninni til grenndarkynningar sem óverulegri deiliskipulagsbreytingu Hraunsholts vestra (Ásar) í samræmi við 2.mgr, 43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Borgarási 4,6,8 og 12 og Melási 7,9 og 11.
Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.
Bæjarstjórn Garðabæjar
02
11. (981). fundur
Bæjarstjórn samþykkir afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. ágúst 2026 varðandi umsókn um byggingarheimild fyrir breytingar á íbúðarhúsinu að Borgarási 10 sem gerir ráð fyrir útitröppum við norðvesturgafl hússins. Skipulagsnefnd mat umsóknina sem óverulega breyting deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásar) sem gerir ráð fyrir stækkuðum byggingarreit sem nemur flatarmáli útitröppu. Þar sem að deiliskipulagsuppdráttur Hraunsholts vestra sýnir útlínur húsa að Borgarási 10 og 12 lýtur nefndin svo á að um ígildi byggingarreits sé að ræða. Útbúa skal breytingaruppdrátt deiliskipulags sem sýnir stækkaðan byggingarreit sem nemur útlínum hússins til norðvestur auk útitröppu eins og umsóknaruppdrættir sýna. Skipulagsnefnd vísaði umsókninni til grenndarkynningar sem óverulegri deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 2.mgr, 43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Bæjarráð Garðabæjar
03
27. (2222). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja afgreiðslu skipulagsnefndar frá fundi 13. ágúst 2026 varðandi umsókn um byggingarheimild fyrir breytingar á íbúðarhúsinu að Borgarási 10 sem gerir ráð fyrir útitröppum við norðvesturgafl hússins.
Skipulagsnefnd mat umsóknina sem óverulega breyting deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásar) sem gerir ráð fyrir stækkuðum byggingarreit sem nemur flatarmáli útitröppu. Þar sem að deiliskipulagsuppdráttur Hraunsholts vestra sýnir útlínur húsa að Borgarási 10 og 12 lýtur nefndin svo á að um ígildi byggingarreits sé að ræða. Útbúa skal breytingaruppdrátt deiliskipulags sem sýnir stækkaðan byggingarreit sem nemur útlínum hússins til norðvestur auk útitröppu eins og umsóknaruppdrættir sýna.
Skipulagsnefnd vísaði umsókninni til grenndarkynningar sem óverulegri deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 2.mgr, 43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
10. fundur
Lagðir fram aðaluppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarheimild fyrir breytingar á íbúðarhúsinu að Borgarási 10 sem gerir ráð fyrir útitröppum við norðvesturgafl hússins.
Skipulagsnefnd metur umsóknina sem óverulega breyting deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásar) sem gerir ráð fyrir stækkuðum byggingarreit sem nemur flatarmáli útitröppu. Þar sem að deiliskipulagsuppdráttur Hraunsholts vestra sýnir útlínur húsa að Borgarási 10 og 12 lýtur nefndin svo á að um ígildi byggingarreits sé að ræða. Útbúa skal breytingaruppdrátt deiliskipulags sem sýnir stækkaðan byggingarreit sem nemur útlínum hússins til norðvestur auk útitröppu eins og umsóknaruppdrættir sýna.
Skipulagsnefnd vísar umsókninni til grenndarkynningar sem óverulegri deiliskipulagsbreytingu í samræmi við 2.mgr, 43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Borgarási 4,6,8 og 12 og Melási 7,9 og 11.