Beint í efni

18. fundur

27.10.2026
Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

18. fundur

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

27.10.2026

Kl. 09:00 - 11:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Hrönn Hafliðadóttir - verkefnastjóri skipulagsmála

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 26102500

01

Fjarskiptamastur . Suðurnesv. - Höfðabraut - Umsókn um byggingarheimild eða -leyfi - Flokkur 1

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi á fjarskiptasendi við Suðurnesveg að undangengnu deiliskipulagsferli. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

Málsnúmer 2610168

02

Víðiholt 3 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um breytingu á lóðaruppdráttum við Víðiholt 3. Framlagðir uppdrættir eru í samræmi við ákvæði deiliskipulags. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við breytingar á sérafnotaflötum.

Málsnúmer 2605137

03

Holtstún 16 - Smáhýsi

Lögð fram fyrirspurn um garðhús á lóð við Holtstún 16. Skipulagsstjóri vísar fyrirspurn til afgreiðslu þegar ákvæði deiliskipulags Norðurness um smáhýsi á lóð liggur fyrir.

Málsnúmer 2609424

04

Kjarrprýði 6 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir Kjarrprýði 6 ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

Málsnúmer 2607298

05

Borgarás 10 - Umsókn um byggingarheimild - Fl. 1

Lögð fram endurbætt tillaga að breytingu deiliskipulags Hraunsholts vestra (Ásar) sem nær til lóðarinnar Borgarás 10.

Tillagan er sett fram á tveimur uppdráttum, annarsvegar breytingaruppdrætti deiliskipulags og skýringaruppdrætti sem sýnir útlit byggingar til vesturs, norðurs og suðurs og grunnmyndir neðri hæðar og efri hæðar sem eru í samræmi við aðaluppdrætti sem fylgja umsókn um byggingarleyfi.

Á breytingaruppdrætti er gert ráð fyrir byggingarreit við vesturgafl hússins og innan hans verða útitröppur fyrir aðgengi að íbúð á efri hæð heimilaðar. Stækkaður byggingarreitur nær einnig til þess hluta hússins sem er utan byggingarreits að vestanverðu.

Auk þess kemur eftirfarandi fram á uppdrætti: „Ef nústandandi hús verður fjarlægt skal nýbygging rísa innan byggingarreits eins og hann kemur fram á þessum uppdrætti fyrir breytingu og á mæliblaði 22.5774. útgefnu í janúar 2024“.

Skipulagsstjóri vísar umsókninni til grenndarkynningar sem óverulegri deiliskipulagsbreytingu Hraunsholts vestra (Ásar) í samræmi við 2.mgr, 43.gr.skipulagslaga nr.123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44.gr.sömu laga. Grenndarkynna skal eigendum og íbúum að Borgarási 4,6,8 og 12 og Melási 7,9 og 11.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

Málsnúmer 2609522

06

Pikkolo - Hafnarfjarðarvegur Olís - Umsókn um stöðuleyfi

Lögð fram umsókn um stöðuleyfi vegna Pikkolo afhendingastöðvar við Olís við Hafnarfjarðarveg í bæjarlandi. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu stöðuleyfis til 12 mánaða.

Málsnúmer 26102467

07

Bílastæði við Strandveg 18-20 og Norðurbrú 3-5 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn um bílastæði fyrir hreyfihamlaða við Strandveg 18-20 og Norðurbrú 3-5. Fyrirspurn vísað til skoðunar hjá umhverfissviði.

Málsnúmer 2609177

08

Blikanes 10 - Umsókn um byggingarheimild - Fl.1

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Um breytingu á innra skipulagi er að ræða. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

Málsnúmer 2605411

09

Teistunes 1 - Deiliskipulagsbreyting

Lagðir fram uppfærðir uppdrættir að undangenginni grenndarkynningu, 4 athugasemdir bárust. Uppfærðir uppdrættir skýra betur frá útliti og ásýnd fyrirhugaðrar byggingar við Teistunes 1.

Skipulagsstjóri vísar tillögunni til grenndarkynningar að nýju í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal lóðarhöfum að Kríunesi 1 og 4, Súlunesi 3 og 5 og Þernunesi 3 og 5. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.

Málsnúmer 2607068

10

Garðatorg 3 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi við Garðartorg 3. Um breytta notkun á rými er að ræða.

Í dag er tannlæknastofa starfandi í rýminu en ósk er um að gera tvær íbúðir úr því rými. Skipulagsstjóri getur ekki tekið afstöðu til málsins nema að afstaða húsfélags liggur fyrir. Skipulagsstjóri bendir jafnframt á að aðkoma að báðum íbúðum skal vera frá Hrísmóum en ekki göngugötu Garðatorgs.

Málsnúmer 2607177

11

Garðatorg 3 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl. 2

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi við Garðartorg 3. Um breytta notkun á rými er að ræða.

Í dag er tannlæknastofa starfandi í rýminu en ósk er um að gera tvær íbúðir úr því rými. Skipulagsstjóri getur ekki tekið afstöðu til málsins nema að afstaða húsfélags liggur fyrir. Skipulagsstjóri bendir jafnframt á að aðkoma að íbúð skal vera frá Hrísmóum en ekki göngugötu Garðatorgs.

Málsnúmer 2211061

12

Smáraflöt 20 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Lagðir fram uppfærðir uppdrættir sem sýna hæð veggja við lóðarmörk. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemdir við hæð veggja.

Málsnúmer 2609149

13

Gilsbúð 7 - Umsókn um byggingareyfi - Fl. 2

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Sótt er um breytingar innan húss, til að mynda er sett inn nýtt milliloft. Nýtingarhlutfall fer upp í 0,56 en deiliskipulag kveður á um að nýtingarhlutfall má vera allt 0,5. Byggður flötur á lóð breytist aftur á móti ekki. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við að við veitingu byggingarleyfis verið vikið frá kröfum 2.mgr. 43.gr. skipulagslaga nr.123/2010 sbr. 3.mgr.sömu greinar hvað aukningu á nýtingarhlutfalli varðar. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr.1182/2022.

Málsnúmer 2510437

14

Háhæð 10 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi við Háhæð 10. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

Málsnúmer 2409217

15

Stekkholt 22 - Umsókn um byggingarleyfi

Lagðir fram lóðaruppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlögð gögn.

Málsnúmer 2609028

16

Vífilsstaðavegur áhaldahús - Golfklúbbur Garðab - Umsókn um byggingareyfi - Fl. 3

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi fyrir byggingu þjónustumiðstöðvar GKG ásamt geymsluskúrum. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti. Yfirfara þarf uppdrætti þegar hæðarblöð liggja fyrir.

Málsnúmer 2607007

17

Suðurhraun 10 - Umsókn um byggingarleyfi - Fl.2

Lagðir fram uppdrættir sem fylgja umsókn um byggingarleyfi að undagenginni deiliskipulagsbreytingu ásamt umsögn deiliskipulagshöfundar. Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við veitingu byggingarleyfis sem er í samræmi við framlagða uppdrætti.

Málsnúmer 2610086

18

Brekkugata 8 - stækkun lóðar - fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram fyrirspurn þar sem lóðarhafi við Brekkugötu 8 óskar eftir stækkun á lóð. Eftirfarandi breyting kallar á breytingu á deiliskipulags Urriðaholts - norðurhlati 3. áfangi. Skipulagsstjóri vísar fyrirspurn til umsagnar hjá skipulagshöfundi.

Málsnúmer 2610022

19

Kauptún 4 - Beiðni um umsögn um geymslustað ökutækja.

Skipulagsstjóri gerir ekki athugasemd við staðsetningu bílastæða fyrir deilibíla á lóð Kauptúns 4.

Málsnúmer 2608096

20

Kumlamýri 21-23 - Fyrirspurn til umhverfissviðs

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Kumlamýrar sem nær til lóðarinnar Kumlarmýrar 21-23 að lokinni grenndarkynningu.

Engar athugasemdir bárust, tillagan skoðast því samþykkt.

Málsnúmer 2609344

21

Útboð - Breiðamýri Stígagerð

Lögð fram umsókn umhverfissviðs um framkvæmdarleyfi fyrir stígagerð og yfirborðsfrágang á svæði 1 í Breiðamýri á Álftanesi.

Framkvæmdin felur í sér:

-Malbikaða göngustíga

-Stígalýsingu

-Áningarstaði og leiksvæði með bekkjum, leiktækjum og vatnspósti

-Gróðursetningu og frágang yfirborðs

Skipulagsstjóri samþykkir veitingu framkvæmdarleyfis fyrir ofangreindu sem eru í samræmi við framlögð gögn í samræmi við 13. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.