Beint í efni

Teistunes 1 - Deiliskipulagsbreyting

Málsnúmer 2605411

Ferill máls

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

01

18. fundur

Lagðir fram uppfærðir uppdrættir að undangenginni grenndarkynningu, 4 athugasemdir bárust. Uppfærðir uppdrættir skýra betur frá útliti og ásýnd fyrirhugaðrar byggingar við Teistunes 1.

Skipulagsstjóri vísar tillögunni til grenndarkynningar að nýju í samræmi við 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal lóðarhöfum að Kríunesi 1 og 4, Súlunesi 3 og 5 og Þernunesi 3 og 5. Um ákvörðun skipulagsstjóra vísast til viðauka II við samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 1182/2022.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

10. fundur

Lögð fram tillaga að óverulegri breytingu deiliskipulags Arnarness að lokinni grenndarkynningu. 4 erindi með athugasemdum hafa borist. Tillögu og athugasemdum vísað til úrvinnslu hjá umhverfissviði. Skipulagsnefnd óskar eftir því að ítarlegri gögn verði send þeim sem grenndarkynning nær til þannig að viðkomandi aðilar geti betur áttað sig á umfangi tillögunnar. Veita skal 4 vikna frest til athugasemda frá því að gögn berast.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

9. fundur

Afgreiðslufundir skipulagsstjóra

04

8. fundur

Lögð fram umsókn um breytingu deiliskipulags Arnarness vegna stækkunar á byggingarreit við Teistunes 1.

Skipulagsstjóri metur tillögina sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Arnarness í samræmi við 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar í samræmi við 44. gr. sömu laga. Grenndarkynna skal lóðarhöfum að Kríunesi 1 og 4, Súlunesi 3 og 5 og Þernunesi 3 og 5.